Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 61

Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 Rétt um 2.000 km frá mínu flata heimalandi skrifa ég þessa grein í Bændablaðið. Ég heiti Myrthe Brabander frá Hollandi og er 22 ára nemi við CAH Vilentum University of Applied Sciences (landbúnaðarháskóli í Hollandi). Ég er á fjórða ári í B.Sc. námi í búfjárrækt. Fóðrun dýra er mjög áhugaverður hluti námsins og sérhæfði ég mig í því síðastliðið haust. Í febrúar á þessu ári fór ég úr mildu hollensku vetrarveðri í íslenska snjóinn til þess að taka verknámið mitt ásamt því að gera lokaverkefni eða -rannsókn hjá Landstólpa ehf. Veturinn var óvenju langur svo að grasvöxtur var seinni til og ekki var hægt að slá fyrr en um 3 vikum seinna heldur en í venju- legu árferði. Það er þó ekki einungis á Íslandi sem var slegið 3 vikum seinna heldur voru hollenskir bænd- ur einnig 3 vikum seinna á ferðinni með slátt heldur en yfirleitt áður. Hér á Íslandi er ekki einungis frábrugðið veðurfar miðað við það sem ég hef vanist, heldur er mat- arhefðin öðruvísi. Íslenska skyrið er uppáhalds íslenski maturinn minn. Í Hollandi borðaði ég mikinn gouda-ost, en hér á Íslandi borða ég mikið skyr. Bragðið af skyri er mjög einstakt og hreint og svo er það svo hollt. Mér finnst að Ísland eigi að upphefja íslenska skyrið því það er ómetanlegur fjársjóður þjóðarinnar. Hollenska fóðurfyrirtækið De Heus kom mér í samband við dreifingaraðila sinn á Íslandi. Í verk- náminu vinn ég hjá Landstólpa til þess að öðlast dýrmæta starfsreynslu ásamt því að gera rannsókn á fóðrun mjólkurkúa á Íslandi. Ég útbjó raf- ræna könnun fyrir íslenska bændur sem gaf mér góða innsýn í fóðrun mjólkurkúa hérlendis. Í þessari könnun spurði ég einnig bænd- ur hvort þeir vildu fá heimsókn. Í heildina fékk ég um 200 svör og af þeim voru 100 sem vildu fá mig í heimsókn. Ég var mjög hissa og ánægð með hvað íslenskir bændur sýndu þessu mikinn áhuga. Fyrir mánuði síðan byrjaði ég að heimsækja bændur. Til að byrja með var ég mjög spennt fyrir heim- sóknunum vegna þess að ég vissi ekki alveg hvers ég mætti vænta. Ég hef nú heimsótt 46 bændur og hafa þeir allir verið mjög vingjarnlegir og hjálplegir. Á komandi vikum mun ég heimsækja fleiri bændur úr öllum landshlutum. Það góða við þessar bændaheimsóknir er að ég get hjálp- að bændum með minni þekkingu frá Hollandi og þeir hjálpa mér á móti með því að veita mér gögn fyrir rannsóknina mína. Kýr framleiða ekki allar sömu mjólkursamsetningu. Innihald ýmissa næringarefna í mjólkinni (eins og fitu, próteins og laktósa) eru ekki þau sömu á milli bæja. Innihald þessara næringarefna eru nefnilega mjög háð gæðum fóðrunar. Verðmætustu næringarefnin í mjólk- inni eru prótein og fita en þau eru mikilvæg vegna líffræðilegs gildis þeirra. Prótein og fita eru mjög mik- ilvæg fyrir vöxt og viðhald gripa sem og mannsins. Mjólk með hátt hlutfall fitu og próteins veitir fleiri tækifæri til framleiðslu afurða. Margar mjólk- urafurðir, eins og ostur og smjör, eru búin til úr mjólkurfitu og mjólk- urpróteini. Þetta er einmitt ein af ástæðunum fyrir því að mjólkurverð á Íslandi ræðst af fitu- og prótein- innihaldi í mjólkinni. Áherslan í mjólkuriðnaði er þess vegna á framleiðslu á miklu magni fitu og próteins. Það er nauðsynlegt fyrir mjólkurkúabændur að þeir finni gott hlutfall milli framleiðslumagns og innihalds fitu og próteins. Bóndinn vill framleiða sem flest kílógrömm af fitu og próteini eins og mögulegt er. Þannig má ná góðum fjárhagslegum árangri hjá kúabændum. Frá því árið 2012 hefur neysla mjólkurafurða með hærra hlutfall fitu heldur en próteins aukist til muna á Íslandi. Þessa mikla eftirspurn eftir þessum fituríku mjólkurafurðum ollu skorti á mjólkurfitu á Íslandi. Íslenskir bændur geta þó aukið fitu- innihaldið í mjólkinni með einföld- um hætti, með breyttri fóðrun. Meðal þess sem er mismunandi milli mjólkurframleiðslu í Hollandi og Íslandi er loftslagið og magn dagsbirtu. Sykurhlutfall í gróffóðri á Íslandi er mun hærra heldur en í Hollandi, þetta er vegna þess að dagarnir eru langir og næturnar kald- ar hér á Íslandi. Plöntur umbreyta vatni og kolefni í glúkósa og súr- efni vegna áhrifa frá sólarljósi og hitastigi en þetta ferli nefnist ljóstil- lífun. Sykurinnihald er þó ekki einungis háð sólarljósi og hitastigi heldur einnig þurrefnisinnihaldi gróffóðursins. Sykur er eldsneyti fyrir vöxt mjólkursýrugerla sem varðveita gróffóðrið. Blautt gróf- fóður þarf meiri sykur fyrir varð- veisluna til þess að lækka pH-gildi. Þess vegna er sykurinn mikilvægur fyrir einsleitni fóðursins. Vothey sem inniheldur hátt hlutfall sykurs inni- heldur minna magn smjörsýrugerla, niðurbrotsgerla og gers. Sykur umbreytist hratt í orku fyrir kýrnar og þegar það er of mikið þá verður það fitumyndandi. Sykur er umbreytt í mjólkursýrur og framleiðir lágt pH-gildi. Vambastarfsemi kúnna byggist á sýrustiginu og til þess að sporna gegn of háu sýrustigi í vömb er smjörsýra framleidd úr sykrinum. Þetta umbreytist í fitu en það getur verið merki um súra vömb. Að sjálfsögðu er þetta meðal annars mismunurinn milli mjólkur- framleiðslu í Hollandi og á Íslandi. Íslenskt loftslag veldur því að upp- skerutímabilið er styttra og minni möguleikar eru á fjölbreyttri ræktun. Ég sé ekki einungis mun á aðstæð- um heldur einnig á hugsunarhætti. Hollenskir bændur horfa meira á kostnað og nýtingu fóðursins en íslenskir bændur horfa meira á magn og vinnu eða fyrirhöfn. Í heimsókn- um mínum hef ég tekið eftir því að íslenskir bændur eru mjög opnir og ófeimnir við að sýna mér tölur þrátt fyrir að þeir vilji helst ekki ræða það við aðra bændur. Ég hef mikla ánægju af heim- sóknunum til bænda, fallegri nátt- úrunni og vonast til að tala við mun fleiri bændur hér á Íslandi á kom- andi mánuðum. Að mínu mati hefur Ísland ótal marga möguleika á sviði mjólkurframleiðslu; „Land tækifær- anna“! Myrthe Brabander Lesendabás Úr hollenskum gouda-osti í íslenskt skyr Myrthe Brabander frá Hollandi er 22 ára nemi við CAH Vilentum University of Applied Sciences (landbúnaðarháskóli í Hollandi). Fjárvís Dagana 10. og 11. desember verða haldin námskeið í Fjárvís. Fyrra námskeiðið verður haldið á Höfn í Heppuskóla - Grunnskóla Hornafj arðar, frá kl. 13:00-17:00 og seinna námskeiðið verður á Egilsstöðum í húsnæði BsA/RML - Miðvangi 2-4, frá kl. 13:00-17:00. Ath. Þátttakendur á námskeiði á Egilsstöðum þurfa að koma með eigin tölvur. Námskeiðið er einkum ætlað sauðfj árbændum sem eru þátttakendur í skýrsluhaldi í sauðfj árrækt. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi einhverja reynslu í færslu skýrsluhalds og hafi með sér skýrsluhaldsgögn til að vinna með á námskeiðinu. Farið verður í helstu aðgerðir sem FJARVIS.IS býður upp á fyrir skýrsluhaldara m.a. skráningarþætti, gripaleit og skýrslur. Kennari: Eyjólfur Ingvi Bjarnason ráðunautur hjá RML. Námskeiðsgjald er kr. 15.000,- Unnt er að sækja um styrk úr starfsmenntasjóði Bændasamtaka Íslands á móti námskeiðsgjaldinu. Hámarksfj öldi þátttakenda á hvoru námskeiði er 15. Staðfesta skal þátttöku til RML í síma 516-5000 eigi síðar en 8. desember. Námskeiðið er á vegum RML og tölvudeildar Bændasamtaka Íslands. RML og Bændasamtök Íslands áskilja sér þann rétt að fella niður námskeið ef næg þátttaka næst ekki. FR U M - w w w .f ru m .is Steinagreip 200 Verð 192.000 kr. án virðisaukaskatts með festingum Flexibal rúllugreip Verð 195.000 kr. án virðisaukaskatts með festingum Unigrip rúllugreip Verð 224.000 kr. án virðisaukaskatts með festingum Aukahlutir frá Trima á tilboði Dæmi um verð: Tilboðið gildir til 31. desember 2015 Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is Frostagata 2a 600 Akureyri www.claas.is VERKIN TALA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.