Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 65

Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 Jólasokkur fyrir hnífapörin HannyrðaHornið garn@garn.is Hugmyndina af þessum sokk sá ég á netinu í fyrra. Þykir þetta skemmti- leg skreyting á jólaborðið en þar sem ég fann ekki uppskrift, setti ég þessa saman. Garnið í sokkana fáið þið hjá Handverkskúnst og endursöluaðilum víða um land. Á heimasíðunni www. garn.is finnið þið lista yfir endursölu- aðila okkar. Garn: Kartopu Kar-Sim - Litur 1: rauður nr KS150, 1 dokka - Litur 2: hvítur nr KS010, 1 dokka Prjónar: Sokkaprjónar nr 3,5 Prjónfesta: 28 lykkjur slétt prjón = 10 sm Skammstafanir: L – lykkja / lykkjur 2Ss – prjónið 2 lykkjur slétt saman Kaðll: Umferð 1-6: Prjónið *1L slétt, 1L brugðin, 4L slétt, 1L brugðin* Endurtakð *-* út umferðina Umferð 7: Prjónið *1L slétt, 1L brugðin, setjið 2 lykkjur á hjálparprjón fyrir framan stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt og síðan lykkjurnar af hjálparprjóni slétt, 1L brugðin* Endurtakið frá *-* út umferðina Aðferð: Sokkurinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Hællinn er mótaður með styttum umferðum. Fitjið upp 24 lykkjur með lit 2 og prjónið stroff, 14 umferðir (2L slétt og 2L brugðið). Skiptið yfir í lit 1 og prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4 lykkjur = 28 lykkjur á prjóninum. Prjónið 2 kaðla + fyrstu 2 umferðir af 3ja kaðli en þá er komið að hæl. Hæll: Hællinn er prjónaður í garðaprjóni (allar umferðir slétt prjón) með styttum umferðum yfir 13 lykkjur (færið fyrstu lykkju á prjóni 1 yfir á hægri prjón og prjónið hæl yfir næstu 13 lykkjur): Umferð 1: Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á vinstri prjóni, takið lykkjuna óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 2: Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á vinstri prjóni, takið lykkjuna óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 3: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á vinstri prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 2 lykkjur á vinstri prjóni) Snúið við. Umferð 4: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á vinstri prjónim, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 2 lykkjur á vinstri prjóni) Snúið við. Umferð 5: Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á vinstri prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 3 lykkjur á vinstri prjóni) Snúið við. Umferð 6: Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á vinstri prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 3 lykkjur á vinstri prjóni) Snúið við. Umferð 7: Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir á vinstri prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 4 lykkjur á vinstri prjóni) Snúið við. Umferð 8: Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir á vinstri prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 4 lykkjur á vinstri prjóni) Snúið við. Nú byrjum við að taka lykkjurnar sem geymdar voru í umferðunum á undan aftur með í prjónið. Umferð 9: Prjónið 6 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 10: Prjónið 7 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 11: Prjónið 8 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 12: Prjónið 9 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 13: Prjónið 10 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 14: Prjónið 11 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 15: Prjónið 12 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Umferð 16: Prjónið 13 lykkjur slétt, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við. Nú hefur hællinn verið mótaður. Haldið áfram að prjóna kaðlamunstur þar sem frá var horfið (byrjið á umferð 3 í kaðli). Þegar prjónaðir hafa verið 6 kaðlar (talið frá stroffi) hefst úrtaka á tá. Úrtaka: Prjónið *2Ss, 2S* endurtakið *-* út umferðina Prjónið *2Ss, 1S* endurtakið *-* út umferðina Prjónið 2Ss út umferiðna Slítið bandið frá og dragið bandið í gegnum lykkjurnar sem eftir eru. Gangið frá endum, þvoið sokkinn og leggið til þerris. Prjónakveðja Guðrún María www.garn.is Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 3 4 2 1 6 6 4 3 9 7 9 1 2 3 5 7 1 2 2 5 6 9 3 8 5 4 3 1 8 7 5 9 2 5 7 5 6 3 4 8 Þyngst 1 8 2 7 2 5 7 1 3 9 1 3 1 5 9 8 3 9 6 4 8 6 4 5 4 2 5 4 8 7 9 2 7 6 1 8 8 6 5 4 3 2 1 6 9 5 8 5 6 3 1 7 5 4 4 9 7 8 2 2 5 4 7 1 4 2 6 7 3 4 7 3 9 1 9 4 8 5 7 9 4 6 3 5 6 1 8 4 1 9 6 2 Fólkið seM erFir landið Hamborgarar uppáhaldsmaturinn Þór er átta ára strákur sem býr í Reykjavík. Hann gengur í Melaskóla og æfir körfubolta af miklum krafti enda langar hann að leggja boltann fyrir sig. Fyrsta minning hans er ferðalag til Danmerkur. Nafn: Þór Ármannsson. Aldur: 8 ára. Stjörnumerki: Vog. Búseta: Vesturbær Reykjavíkur. Skóli: Melaskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Stærðfræði. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Dverghamstur. Uppáhaldsmatur: Hamborgari. Uppáhaldshljómsveit: Skálmöld og One-Direction. Uppáhaldskvikmynd: Aulinn ég. Fyrsta minning þín? Heimsókn til Danmerkur. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóð- færi? Æfi körfubolta. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Körfuboltamaður og þjálfari. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Handleggsbrotnaði á fótboltamóti. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Vera skammaður og fara í jóga. Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Fór á McDonalds í Osló í Noregi. Borðapantanir í síma 511 5090 Alla daga til 20. des. Jólamatseðill www.einarben.is Við komum þér í jólaskapið með frábærum matseðli Einar Ben v/ Ingólfstorg, 101 Reykjavík A ndrea G rafiker
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.