Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Jólasokkur fyrir hnífapörin
HannyrðaHornið garn@garn.is
Hugmyndina af þessum sokk sá ég á
netinu í fyrra. Þykir þetta skemmti-
leg skreyting á jólaborðið en þar
sem ég fann ekki uppskrift, setti ég
þessa saman.
Garnið í sokkana fáið þið hjá
Handverkskúnst og endursöluaðilum
víða um land. Á heimasíðunni www.
garn.is finnið þið lista yfir endursölu-
aðila okkar.
Garn: Kartopu Kar-Sim
- Litur 1: rauður nr KS150, 1 dokka
- Litur 2: hvítur nr KS010, 1 dokka
Prjónar: Sokkaprjónar nr 3,5
Prjónfesta:
28 lykkjur slétt prjón = 10 sm
Skammstafanir:
L – lykkja / lykkjur
2Ss – prjónið 2 lykkjur slétt saman
Kaðll:
Umferð 1-6: Prjónið *1L slétt, 1L brugðin, 4L slétt, 1L
brugðin* Endurtakð *-* út umferðina
Umferð 7: Prjónið *1L slétt, 1L brugðin, setjið 2 lykkjur
á hjálparprjón fyrir framan stykkið, prjónið 2 lykkjur
slétt og síðan lykkjurnar af hjálparprjóni slétt, 1L
brugðin* Endurtakið frá *-* út umferðina
Aðferð:
Sokkurinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Hællinn
er mótaður með styttum umferðum.
Fitjið upp 24 lykkjur með lit 2 og prjónið stroff, 14
umferðir (2L slétt og 2L brugðið). Skiptið yfir í lit 1
og prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4 lykkjur =
28 lykkjur á prjóninum.
Prjónið 2 kaðla + fyrstu 2 umferðir af 3ja kaðli en þá
er komið að hæl.
Hæll:
Hællinn er prjónaður í garðaprjóni (allar umferðir
slétt prjón) með styttum umferðum yfir 13 lykkjur
(færið fyrstu lykkju á prjóni 1 yfir á hægri prjón
og prjónið hæl yfir næstu 13 lykkjur):
Umferð 1: Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir
á vinstri prjóni, takið lykkjuna óprjónaða yfir á
hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn
og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Umferð 2: Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir
á vinstri prjóni, takið lykkjuna óprjónaða yfir á
hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið
lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón. Snúið við.
Umferð 3: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á vinstri
prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón,
setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna
til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 2 lykkjur á vinstri
prjóni) Snúið við.
Umferð 4: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á
vinstri prjónim, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á
hægri prjón, setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið
lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 2 lykkjur á
vinstri prjóni) Snúið við.
Umferð 5: Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á vinstri
prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón,
setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna
til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 3 lykkjur á vinstri
prjóni) Snúið við.
Umferð 6: Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á vinstri
prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón,
setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna
til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 3 lykkjur á vinstri
prjóni) Snúið við.
Umferð 7: Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir á vinstri
prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón,
setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna
til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 4 lykkjur á vinstri
prjóni) Snúið við.
Umferð 8: Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir á vinstri
prjóni, takið næstu lykkju óprjónaða yfir á hægri prjón,
setjið bandið fram fyrir prjóninn og færið lykkjuna
til baka yfir á vinstri prjón (nú eru 4 lykkjur á vinstri
prjóni) Snúið við.
Nú byrjum við að taka lykkjurnar sem geymdar voru í
umferðunum á undan aftur með í prjónið.
Umferð 9: Prjónið 6 lykkjur slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir
prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Umferð 10: Prjónið 7 lykkjur slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir
prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Umferð 11: Prjónið 8 lykkjur slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir
prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Umferð 12: Prjónið 9 lykkjur slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir
prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Umferð 13: Prjónið 10 lykkjur slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir
prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Umferð 14: Prjónið 11 lykkjur slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir
prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Umferð 15: Prjónið 12 lykkjur slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir
prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Umferð 16: Prjónið 13 lykkjur slétt, takið næstu lykkju
óprjónaða yfir á hægri prjón, setjið bandið fram fyrir
prjóninn og færið lykkjuna til baka yfir á vinstri prjón.
Snúið við.
Nú hefur hællinn verið mótaður. Haldið áfram að
prjóna kaðlamunstur þar sem frá var horfið (byrjið á
umferð 3 í kaðli). Þegar prjónaðir hafa verið 6 kaðlar
(talið frá stroffi) hefst úrtaka á tá.
Úrtaka:
Prjónið *2Ss, 2S* endurtakið *-* út umferðina
Prjónið *2Ss, 1S* endurtakið *-* út umferðina
Prjónið 2Ss út umferiðna
Slítið bandið frá og dragið bandið í gegnum lykkjurnar
sem eftir eru. Gangið frá endum, þvoið sokkinn og
leggið til þerris.
Prjónakveðja
Guðrún María
www.garn.is
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
3 4 2 1 6
6 4 3 9
7 9 1 2 3
5 7 1 2
2 5 6 9
3 8 5 4
3 1 8 7 5
9 2 5 7
5 6 3 4 8
Þyngst
1 8 2 7
2 5 7 1 3
9 1 3
1 5 9 8
3 9 6 4
8 6 4 5
4 2 5
4 8 7 9 2
7 6 1 8
8 6
5 4 3
2 1 6 9 5
8 5
6 3 1 7
5 4
4 9 7 8 2
2 5 4
7 1
4 2 6 7
3 4
7 3 9
1 9 4 8
5 7
9 4 6 3
5 6 1
8 4
1 9 6 2
Fólkið seM erFir landið
Hamborgarar
uppáhaldsmaturinn
Þór er átta ára strákur sem
býr í Reykjavík. Hann gengur í
Melaskóla og æfir körfubolta af
miklum krafti enda langar hann
að leggja boltann fyrir sig. Fyrsta
minning hans er ferðalag til
Danmerkur.
Nafn: Þór Ármannsson.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Vog.
Búseta: Vesturbær Reykjavíkur.
Skóli: Melaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Dverghamstur.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari.
Uppáhaldshljómsveit: Skálmöld og
One-Direction.
Uppáhaldskvikmynd: Aulinn ég.
Fyrsta minning þín? Heimsókn til
Danmerkur.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóð-
færi? Æfi körfubolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Körfuboltamaður og
þjálfari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Handleggsbrotnaði á
fótboltamóti.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Vera skammaður og fara
í jóga.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fór á McDonalds í Osló
í Noregi.
Borðapantanir í síma
511 5090
Alla daga til 20. des.
Jólamatseðill
www.einarben.is
Við komum þér í jólaskapið
með frábærum matseðli
Einar Ben v/ Ingólfstorg, 101 Reykjavík
A
ndrea G
rafiker