Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015 Er hrossarækt búfjárrækt eða ekki? Þegar markmiðslýsing ræktun- arstefnu um íslenska hestinn er skoðuð hljóðar fyrsta setningin svona: „Heilbrigði, frjósemi, ending. Hið opinbera ræktunar- mark miðar að því að rækta heil- brigðan, frjósaman og endingar- góðan hest – hraustan íslenskan hest. „ Göfugt markmið og áreið- anlega allir sammála um að þetta sé rétt stefna. Sjálfur er ég mikill áhugamaður um búfjárrækt almennt, hvort sem við kemur hrossum, sauðfé, kúm, hundum, hænum, svínum eða hverri annarri dýrategund. Almennt finnst mér búfjárrækt göfugt markmið allra þeirra sem dýrahald stunda. Ræktun er fólki í blóð borin hvort sem er í dýra- eða jurtaríki og er unun oft að sjá hversu mikla alúð fólk leggur í sín ræktunarverk. Fyrir rúmum 20 árum síðan fluttti ég í ræðu og ritum varnað- arorð til íslenskrar hrossaræktar um að viðhalda yrði frjósemi íslenska hestsins. Þá voru uppi hættumerki um stóðhesta sem ekki voru nógu frjósamir með tilliti til sæðisgæða. Þær viðvaranir voru byggðar á rannsóknum sem gerðar voru á sæðisgæðum vinsælla hesta þess tíma. Allir voru sammála um að þenn- an eiginleika íslenska hestsins yrði að varðveita en forsvarsmönnum hrossaræktarinnar hefur enn í dag ekki auðnast sú sýn að snúa vörn í sókn. Á hverju ári bætast stóð- hestar í hóp ræktunarhesta sem eru illa frjóir og jafnvel getulausir til framræktunar. Sumir þessara hesta eru hæst dæmdu kynbótagripr íslenskrar hrossaræktar og eigendur hryssna flykkjast í stríðum straum- um um að komast undir þá með með sína bestu gripi. Vonbrigði hryssu- eigendanna birtast mér í mínu starfi á hverjum degi þegar hryssurnar reynast tómar efir að hafa gengið með þessum hátt dæmdu hestum, jafnvel allt sumarið. Hugsum aðeins og spyrjum okkur hvort við séum á réttri braut. Hvað segja komandi kynslóðir um verk okkar samtíma ef við höld- um svona áfram. Mín skoðun er sú að sagt verði, hvaða kjánar voru þarna við völd. Ef við gerum ekki strangari kröfur um frjósemi en nú eru viðhafðar í dag þá getum við gleymt því að íslenski hesturinn verði talinn frjósamur í framtíðnni. Hnignun frjóseminnar er staðreynd sem löngu er hafin og við verðum að gera eitthvað í málinu. Þá spyrja menn hvað skal gera. Nokkuð er síðan að kynbótageir- inn hóf skoðun á eistum hesta sem koma til dóms. Þetta var stórt skref í rétta átt því þar eru gerðar mæl- ingar á stærð og ummáli eistna, en vísindaleg staðreynd liggur fyrir um hlutfall stærðar og stinnleika eistna í samhenginu sæðismagn og -gæði. Þeir hestar sem hafa stærstu og stinnustu eistun eru líklegastir til að vera með mestu og bestu sæðis- gæðin. Þetta er gott viðmið sem við eigum að halda betur á lofti en gert hefur verið en það dugar ekki til og tel ég kröfurnar um lágmörk þessara mælinga af rúmar. Einnig finnst mér það alveg út í hött að t.d. eineystungar skuli ekki hreinlega vera útilokaðir frá ræktun. Þar á ekki að vera um neytt neytendaval að ræða heldur verður þar forsjár- hyggja að ráða. Mín skoðun er sú að við stöndum á þeim tímamótum að nauðsynlegt sé að taka sæðisprufur úr þeim hest- um sem hátt eru dæmdir til kynbóta- dóms og upplýsa þannig ræktendur um sæðisgæði hestanna. Neytendur þjónustunnar (hryssueigendur) eiga fullan rétt á að vita hvort hestar eru í lagi með tilliti til sæðisgæða alveg eins og hvort þeir séu með spatt eða ekki, jafnvel fremur. Tækni til sæðistöku og nákvæmrar grein- ingar á sæðisgæðum er til staðar í landinu og ætti að nýta til opinberr- ar birtingar. Enn í dag er ekki til neinn staðall um lágmarkskröfur sæðismagns og -gæða íslenska hestsins. Út frá öllum þeim upplýsingum sem við eigum um fjölda íslenskra stóð- hesta í gegnum tíðina væri það þó ekki mikið mál. Það er til mikið magn upplýsinga bæði hérlendis og erlendis á þessu sviði og tel ég það löngu tímabært að setja slík- ar lágmarkskröfur. Kröfurnar yrði einnig að byggja á lágmarkskröfum annarra sambærilegra smáhesta- kynja í heiminum en víðast hvar eru menn langt á undan okkur í þessum málum. Hestar sem notaðir eru til sæðinga verða að vera úrvals sæðis- gjafar, annað er ekki ásættanlegt. Ef nota á stóðhest í sæðingum þá skulu lágmarkskröfur hans vera þær að sæði hans sé það gott og mikið að kynlöngun sé minni en kyngeta. Tölulega séð þá á að vera hægt að skipta daglegum sæðisskammti þess hests í að lágmarki 6–8 hrys- sur (helst meira). Með því er átt við að gæði sæðisins séu með þeim hætti að sæðisgjöf hestsins geti fylj- að mun fleiri hryssur en hann sjálf- ur getur annað undir venjulegum kringumstæðum. Fyrr á árum þegar hrossaræktar- félög- og – sambönd áttu flesta stóðhestana og leigðu girðingar undir þá voru menn búnir að komast að ákveðnum reynsluniðurstöðum um frjósemisárangur hestanna. 25 hryssur (alls ekki fleiri) voru settar í hólf með hesti í 4–6 vikur og þá varð niðurstaðan alla jafna 70–80 % fyljun. Á tímabilinu var ekkert hreyft við hólfunum. Hestarnir voru í góðum haga og næði með hópinnn og sinntu sínu hlutverki. Nú í dag eru menn jafnvel að setja 40–60 hryssur í hólf með hest- um til að sinna eftirspurn. Þetta tel ég rangt og hreinlega vörusvik við kaupendur þjónustunnar. Því til rökstuðnings vil ég minna á eðli hestsins sem hjarðdýrs á gresjum heimsins þar sem fjölskyldur villtra hesta eru aldrei stærri en 6–8 hryss- ur með folöldum og afkomendum. Það er ekki í eðli stóðhests að geta haldið utan um hóp hryssna sem telja 40–60 stk. auk folalda. Ég er nokkuð viss um að reynslubanki gömlu hrossaræktarsambandanna með 25 hryssur að hámarki í hólfi með stóðhesti var ekki nein tilviljun heldur var hún byggð á áralöngum tölum um hlutfall fæddra folalda og geldra hryssna ári eftir að hestarnir voru notaðir. Menn stunduðu ekki neinar markvissar fangskoðanir þá og ekki var sónartæknin komin. Aftur að inntaki og titli minnar greinar. Er hrossarækt búfjárrækt eða ekki? Í allri búfjárrækt, einnig í hrossarækt, er frumskilyrði að kynbótagripir séu heilbrigðir með tilliti til frjósemi og má hvergi slaka á þeim kröfum. Hvort stóðhestarnir eru með frábæra byggingu út frá fagurfræðilegu sjónarmiði, þeir séu með fótlyftu sem heilli hvern mann og geti tölt eða skeiðað á svo ótrú- legan hátt að menn hafi aldrei séð annað eins skiptir ekki máli ef þeir eru ekki frjóir. Sú staðreynd blasir við að nokkrir af hæst dæmdu stóðhestum nútímans eru ekki að standa sig í frjósemi og það er ekki í lagi. Páll Stefánsson, dýralæknir. Lesendabás Land í Skagafi rði Til sölu er eignin Hamraborg, 78 ha land í vestanverðu Hegranesi í Skagafi rði. Á jörðinni er 119,6 m2 íbúðarhús byggt 1993 og   vönduð vélaskemma sem er 56,7 m2 auk 36,6 m2 kjallara. Fasteignasala Sauðárkróks Ágúst Guðmundsson löggiltur fasteignasali Sími 453 5900 & 864 5889 fasteignir@ krokurinn.is / krokurinn.is E-vítamín er alger snilld fyrir húðina! Dr. Organic E-Vítamín krem er 100% lífrænt, án allra kemískra efna. Línan inniheldur E-vítamín, Aloe Vera, Coco Butter og Shea Butter. E-vítamín línan er ennfremur án allra ilm- og rotvarnarefna. Þetta dásamlega silkimjúka krem hefur einstaka eiginleika til að: Endurnýjar húðfrumurnar og dregur úr hrukkum Lagfærir ör og slit Hentar einkar vel fyrir eldri og mjög þurra húð. Nærir húðina og gefur henni frískandi útlit Húðina verður endurnærð allan daginn Fæst í Lyfju, Apótekinu og Heilsuhúsinu Verðandi hestamenn á reiðnámskeiði í Reykjavík. Mynd / HKr CLARVISTA STURTUGLER FYRIR VANDLÁTA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.