Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Er hrossarækt búfjárrækt
eða ekki?
Þegar markmiðslýsing ræktun-
arstefnu um íslenska hestinn er
skoðuð hljóðar fyrsta setningin
svona: „Heilbrigði, frjósemi,
ending. Hið opinbera ræktunar-
mark miðar að því að rækta heil-
brigðan, frjósaman og endingar-
góðan hest – hraustan íslenskan
hest. „ Göfugt markmið og áreið-
anlega allir sammála um að þetta
sé rétt stefna.
Sjálfur er ég mikill áhugamaður
um búfjárrækt almennt, hvort sem
við kemur hrossum, sauðfé, kúm,
hundum, hænum, svínum eða hverri
annarri dýrategund. Almennt finnst
mér búfjárrækt göfugt markmið
allra þeirra sem dýrahald stunda.
Ræktun er fólki í blóð borin hvort
sem er í dýra- eða jurtaríki og er
unun oft að sjá hversu mikla alúð
fólk leggur í sín ræktunarverk.
Fyrir rúmum 20 árum síðan
fluttti ég í ræðu og ritum varnað-
arorð til íslenskrar hrossaræktar um
að viðhalda yrði frjósemi íslenska
hestsins. Þá voru uppi hættumerki
um stóðhesta sem ekki voru nógu
frjósamir með tilliti til sæðisgæða.
Þær viðvaranir voru byggðar á
rannsóknum sem gerðar voru á
sæðisgæðum vinsælla hesta þess
tíma.
Allir voru sammála um að þenn-
an eiginleika íslenska hestsins yrði
að varðveita en forsvarsmönnum
hrossaræktarinnar hefur enn í dag
ekki auðnast sú sýn að snúa vörn
í sókn. Á hverju ári bætast stóð-
hestar í hóp ræktunarhesta sem eru
illa frjóir og jafnvel getulausir til
framræktunar. Sumir þessara hesta
eru hæst dæmdu kynbótagripr
íslenskrar hrossaræktar og eigendur
hryssna flykkjast í stríðum straum-
um um að komast undir þá með með
sína bestu gripi. Vonbrigði hryssu-
eigendanna birtast mér í mínu starfi
á hverjum degi þegar hryssurnar
reynast tómar efir að hafa gengið
með þessum hátt dæmdu hestum,
jafnvel allt sumarið.
Hugsum aðeins og spyrjum
okkur hvort við séum á réttri braut.
Hvað segja komandi kynslóðir um
verk okkar samtíma ef við höld-
um svona áfram. Mín skoðun er sú
að sagt verði, hvaða kjánar voru
þarna við völd. Ef við gerum ekki
strangari kröfur um frjósemi en nú
eru viðhafðar í dag þá getum við
gleymt því að íslenski hesturinn
verði talinn frjósamur í framtíðnni.
Hnignun frjóseminnar er staðreynd
sem löngu er hafin og við verðum
að gera eitthvað í málinu.
Þá spyrja menn hvað skal gera.
Nokkuð er síðan að kynbótageir-
inn hóf skoðun á eistum hesta sem
koma til dóms. Þetta var stórt skref
í rétta átt því þar eru gerðar mæl-
ingar á stærð og ummáli eistna, en
vísindaleg staðreynd liggur fyrir
um hlutfall stærðar og stinnleika
eistna í samhenginu sæðismagn og
-gæði. Þeir hestar sem hafa stærstu
og stinnustu eistun eru líklegastir til
að vera með mestu og bestu sæðis-
gæðin. Þetta er gott viðmið sem við
eigum að halda betur á lofti en gert
hefur verið en það dugar ekki til
og tel ég kröfurnar um lágmörk
þessara mælinga af rúmar. Einnig
finnst mér það alveg út í hött að t.d.
eineystungar skuli ekki hreinlega
vera útilokaðir frá ræktun. Þar á
ekki að vera um neytt neytendaval
að ræða heldur verður þar forsjár-
hyggja að ráða.
Mín skoðun er sú að við stöndum
á þeim tímamótum að nauðsynlegt
sé að taka sæðisprufur úr þeim hest-
um sem hátt eru dæmdir til kynbóta-
dóms og upplýsa þannig ræktendur
um sæðisgæði hestanna. Neytendur
þjónustunnar (hryssueigendur) eiga
fullan rétt á að vita hvort hestar eru
í lagi með tilliti til sæðisgæða alveg
eins og hvort þeir séu með spatt
eða ekki, jafnvel fremur. Tækni
til sæðistöku og nákvæmrar grein-
ingar á sæðisgæðum er til staðar í
landinu og ætti að nýta til opinberr-
ar birtingar.
Enn í dag er ekki til neinn staðall
um lágmarkskröfur sæðismagns
og -gæða íslenska hestsins. Út frá
öllum þeim upplýsingum sem við
eigum um fjölda íslenskra stóð-
hesta í gegnum tíðina væri það þó
ekki mikið mál. Það er til mikið
magn upplýsinga bæði hérlendis
og erlendis á þessu sviði og tel ég
það löngu tímabært að setja slík-
ar lágmarkskröfur. Kröfurnar yrði
einnig að byggja á lágmarkskröfum
annarra sambærilegra smáhesta-
kynja í heiminum en víðast hvar
eru menn langt á undan okkur í
þessum málum.
Hestar sem notaðir eru til
sæðinga verða að vera úrvals sæðis-
gjafar, annað er ekki ásættanlegt.
Ef nota á stóðhest í sæðingum þá
skulu lágmarkskröfur hans vera þær
að sæði hans sé það gott og mikið
að kynlöngun sé minni en kyngeta.
Tölulega séð þá á að vera hægt að
skipta daglegum sæðisskammti
þess hests í að lágmarki 6–8 hrys-
sur (helst meira). Með því er átt
við að gæði sæðisins séu með þeim
hætti að sæðisgjöf hestsins geti fylj-
að mun fleiri hryssur en hann sjálf-
ur getur annað undir venjulegum
kringumstæðum.
Fyrr á árum þegar hrossaræktar-
félög- og – sambönd áttu flesta
stóðhestana og leigðu girðingar
undir þá voru menn búnir að komast
að ákveðnum reynsluniðurstöðum
um frjósemisárangur hestanna. 25
hryssur (alls ekki fleiri) voru settar
í hólf með hesti í 4–6 vikur og þá
varð niðurstaðan alla jafna 70–80
% fyljun. Á tímabilinu var ekkert
hreyft við hólfunum. Hestarnir voru
í góðum haga og næði með hópinnn
og sinntu sínu hlutverki.
Nú í dag eru menn jafnvel að
setja 40–60 hryssur í hólf með hest-
um til að sinna eftirspurn. Þetta
tel ég rangt og hreinlega vörusvik
við kaupendur þjónustunnar. Því
til rökstuðnings vil ég minna á eðli
hestsins sem hjarðdýrs á gresjum
heimsins þar sem fjölskyldur villtra
hesta eru aldrei stærri en 6–8 hryss-
ur með folöldum og afkomendum.
Það er ekki í eðli stóðhests að geta
haldið utan um hóp hryssna sem
telja 40–60 stk. auk folalda. Ég er
nokkuð viss um að reynslubanki
gömlu hrossaræktarsambandanna
með 25 hryssur að hámarki í hólfi
með stóðhesti var ekki nein tilviljun
heldur var hún byggð á áralöngum
tölum um hlutfall fæddra folalda og
geldra hryssna ári eftir að hestarnir
voru notaðir. Menn stunduðu ekki
neinar markvissar fangskoðanir þá
og ekki var sónartæknin komin.
Aftur að inntaki og titli minnar
greinar. Er hrossarækt búfjárrækt
eða ekki? Í allri búfjárrækt, einnig
í hrossarækt, er frumskilyrði að
kynbótagripir séu heilbrigðir með
tilliti til frjósemi og má hvergi slaka
á þeim kröfum. Hvort stóðhestarnir
eru með frábæra byggingu út frá
fagurfræðilegu sjónarmiði, þeir séu
með fótlyftu sem heilli hvern mann
og geti tölt eða skeiðað á svo ótrú-
legan hátt að menn hafi aldrei séð
annað eins skiptir ekki máli ef þeir
eru ekki frjóir.
Sú staðreynd blasir við að
nokkrir af hæst dæmdu stóðhestum
nútímans eru ekki að standa sig í
frjósemi og það er ekki í lagi.
Páll Stefánsson, dýralæknir.
Lesendabás
Land í Skagafi rði
Til sölu er eignin Hamraborg, 78 ha land í vestanverðu
Hegranesi í Skagafi rði. Á jörðinni
er 119,6 m2 íbúðarhús byggt 1993 og vönduð
vélaskemma sem er 56,7 m2 auk 36,6 m2 kjallara.
Fasteignasala Sauðárkróks
Ágúst Guðmundsson löggiltur fasteignasali
Sími 453 5900 & 864 5889
fasteignir@ krokurinn.is / krokurinn.is
E-vítamín
er alger snilld fyrir húðina!
Dr. Organic E-Vítamín krem er 100% lífrænt, án allra
kemískra efna. Línan inniheldur E-vítamín, Aloe Vera,
Coco Butter og Shea Butter. E-vítamín línan
er ennfremur án allra ilm- og rotvarnarefna.
Þetta dásamlega silkimjúka krem hefur
einstaka eiginleika til að:
Endurnýjar húðfrumurnar og dregur úr hrukkum
Lagfærir ör og slit
Hentar einkar vel fyrir eldri og mjög þurra húð.
Nærir húðina og gefur henni frískandi útlit
Húðina verður endurnærð allan daginn
Fæst í Lyfju, Apótekinu og Heilsuhúsinu
Verðandi hestamenn á reiðnámskeiði í Reykjavík. Mynd / HKr
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA