Bændablaðið - 03.12.2015, Síða 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Rétt um 2.000 km frá mínu flata
heimalandi skrifa ég þessa grein
í Bændablaðið. Ég heiti Myrthe
Brabander frá Hollandi og er
22 ára nemi við CAH Vilentum
University of Applied Sciences
(landbúnaðarháskóli í Hollandi).
Ég er á fjórða ári í B.Sc. námi í
búfjárrækt. Fóðrun dýra er mjög
áhugaverður hluti námsins og
sérhæfði ég mig í því síðastliðið
haust.
Í febrúar á þessu ári fór ég
úr mildu hollensku vetrarveðri í
íslenska snjóinn til þess að taka
verknámið mitt ásamt því að gera
lokaverkefni eða -rannsókn hjá
Landstólpa ehf. Veturinn var óvenju
langur svo að grasvöxtur var seinni
til og ekki var hægt að slá fyrr en um
3 vikum seinna heldur en í venju-
legu árferði. Það er þó ekki einungis
á Íslandi sem var slegið 3 vikum
seinna heldur voru hollenskir bænd-
ur einnig 3 vikum seinna á ferðinni
með slátt heldur en yfirleitt áður.
Hér á Íslandi er ekki einungis
frábrugðið veðurfar miðað við það
sem ég hef vanist, heldur er mat-
arhefðin öðruvísi. Íslenska skyrið
er uppáhalds íslenski maturinn
minn. Í Hollandi borðaði ég mikinn
gouda-ost, en hér á Íslandi borða ég
mikið skyr. Bragðið af skyri er mjög
einstakt og hreint og svo er það svo
hollt. Mér finnst að Ísland eigi að
upphefja íslenska skyrið því það er
ómetanlegur fjársjóður þjóðarinnar.
Hollenska fóðurfyrirtækið De
Heus kom mér í samband við
dreifingaraðila sinn á Íslandi. Í verk-
náminu vinn ég hjá Landstólpa til
þess að öðlast dýrmæta starfsreynslu
ásamt því að gera rannsókn á fóðrun
mjólkurkúa á Íslandi. Ég útbjó raf-
ræna könnun fyrir íslenska bændur
sem gaf mér góða innsýn í fóðrun
mjólkurkúa hérlendis. Í þessari
könnun spurði ég einnig bænd-
ur hvort þeir vildu fá heimsókn. Í
heildina fékk ég um 200 svör og
af þeim voru 100 sem vildu fá mig
í heimsókn. Ég var mjög hissa og
ánægð með hvað íslenskir bændur
sýndu þessu mikinn áhuga.
Fyrir mánuði síðan byrjaði ég
að heimsækja bændur. Til að byrja
með var ég mjög spennt fyrir heim-
sóknunum vegna þess að ég vissi
ekki alveg hvers ég mætti vænta. Ég
hef nú heimsótt 46 bændur og hafa
þeir allir verið mjög vingjarnlegir og
hjálplegir. Á komandi vikum mun
ég heimsækja fleiri bændur úr öllum
landshlutum. Það góða við þessar
bændaheimsóknir er að ég get hjálp-
að bændum með minni þekkingu
frá Hollandi og þeir hjálpa mér á
móti með því að veita mér gögn fyrir
rannsóknina mína.
Kýr framleiða ekki allar sömu
mjólkursamsetningu. Innihald
ýmissa næringarefna í mjólkinni
(eins og fitu, próteins og laktósa)
eru ekki þau sömu á milli bæja.
Innihald þessara næringarefna eru
nefnilega mjög háð gæðum fóðrunar.
Verðmætustu næringarefnin í mjólk-
inni eru prótein og fita en þau eru
mikilvæg vegna líffræðilegs gildis
þeirra. Prótein og fita eru mjög mik-
ilvæg fyrir vöxt og viðhald gripa sem
og mannsins. Mjólk með hátt hlutfall
fitu og próteins veitir fleiri tækifæri
til framleiðslu afurða. Margar mjólk-
urafurðir, eins og ostur og smjör, eru
búin til úr mjólkurfitu og mjólk-
urpróteini. Þetta er einmitt ein af
ástæðunum fyrir því að mjólkurverð
á Íslandi ræðst af fitu- og prótein-
innihaldi í mjólkinni. Áherslan
í mjólkuriðnaði er þess vegna á
framleiðslu á miklu magni fitu og
próteins. Það er nauðsynlegt fyrir
mjólkurkúabændur að þeir finni gott
hlutfall milli framleiðslumagns og
innihalds fitu og próteins. Bóndinn
vill framleiða sem flest kílógrömm af
fitu og próteini eins og mögulegt er.
Þannig má ná góðum fjárhagslegum
árangri hjá kúabændum.
Frá því árið 2012 hefur neysla
mjólkurafurða með hærra hlutfall fitu
heldur en próteins aukist til muna á
Íslandi. Þessa mikla eftirspurn eftir
þessum fituríku mjólkurafurðum
ollu skorti á mjólkurfitu á Íslandi.
Íslenskir bændur geta þó aukið fitu-
innihaldið í mjólkinni með einföld-
um hætti, með breyttri fóðrun.
Meðal þess sem er mismunandi
milli mjólkurframleiðslu í Hollandi
og Íslandi er loftslagið og magn
dagsbirtu. Sykurhlutfall í gróffóðri
á Íslandi er mun hærra heldur en
í Hollandi, þetta er vegna þess að
dagarnir eru langir og næturnar kald-
ar hér á Íslandi. Plöntur umbreyta
vatni og kolefni í glúkósa og súr-
efni vegna áhrifa frá sólarljósi og
hitastigi en þetta ferli nefnist ljóstil-
lífun. Sykurinnihald er þó ekki
einungis háð sólarljósi og hitastigi
heldur einnig þurrefnisinnihaldi
gróffóðursins. Sykur er eldsneyti
fyrir vöxt mjólkursýrugerla sem
varðveita gróffóðrið. Blautt gróf-
fóður þarf meiri sykur fyrir varð-
veisluna til þess að lækka pH-gildi.
Þess vegna er sykurinn mikilvægur
fyrir einsleitni fóðursins. Vothey sem
inniheldur hátt hlutfall sykurs inni-
heldur minna magn smjörsýrugerla,
niðurbrotsgerla og gers. Sykur
umbreytist hratt í orku fyrir kýrnar
og þegar það er of mikið þá verður
það fitumyndandi. Sykur er umbreytt
í mjólkursýrur og framleiðir lágt
pH-gildi. Vambastarfsemi kúnna
byggist á sýrustiginu og til þess að
sporna gegn of háu sýrustigi í vömb
er smjörsýra framleidd úr sykrinum.
Þetta umbreytist í fitu en það getur
verið merki um súra vömb.
Að sjálfsögðu er þetta meðal
annars mismunurinn milli mjólkur-
framleiðslu í Hollandi og á Íslandi.
Íslenskt loftslag veldur því að upp-
skerutímabilið er styttra og minni
möguleikar eru á fjölbreyttri ræktun.
Ég sé ekki einungis mun á aðstæð-
um heldur einnig á hugsunarhætti.
Hollenskir bændur horfa meira á
kostnað og nýtingu fóðursins en
íslenskir bændur horfa meira á magn
og vinnu eða fyrirhöfn. Í heimsókn-
um mínum hef ég tekið eftir því að
íslenskir bændur eru mjög opnir og
ófeimnir við að sýna mér tölur þrátt
fyrir að þeir vilji helst ekki ræða það
við aðra bændur.
Ég hef mikla ánægju af heim-
sóknunum til bænda, fallegri nátt-
úrunni og vonast til að tala við mun
fleiri bændur hér á Íslandi á kom-
andi mánuðum. Að mínu mati hefur
Ísland ótal marga möguleika á sviði
mjólkurframleiðslu; „Land tækifær-
anna“!
Myrthe Brabander
Lesendabás
Úr hollenskum gouda-osti í íslenskt skyr
Myrthe Brabander frá Hollandi er 22 ára nemi við CAH Vilentum University
of Applied Sciences (landbúnaðarháskóli í Hollandi).
Fjárvís
Dagana 10. og 11. desember verða haldin námskeið í Fjárvís.
Fyrra námskeiðið verður haldið á Höfn í Heppuskóla - Grunnskóla Hornafj arðar,
frá kl. 13:00-17:00 og seinna námskeiðið verður á Egilsstöðum í húsnæði
BsA/RML - Miðvangi 2-4, frá kl. 13:00-17:00. Ath. Þátttakendur á námskeiði á
Egilsstöðum þurfa að koma með eigin tölvur.
Námskeiðið er einkum ætlað sauðfj árbændum sem eru þátttakendur í
skýrsluhaldi í sauðfj árrækt. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi einhverja
reynslu í færslu skýrsluhalds og hafi með sér skýrsluhaldsgögn til að vinna með
á námskeiðinu. Farið verður í helstu aðgerðir sem FJARVIS.IS býður upp á fyrir
skýrsluhaldara m.a. skráningarþætti, gripaleit og skýrslur.
Kennari: Eyjólfur Ingvi Bjarnason ráðunautur hjá RML.
Námskeiðsgjald er kr. 15.000,-
Unnt er að sækja um styrk úr starfsmenntasjóði Bændasamtaka Íslands á móti
námskeiðsgjaldinu.
Hámarksfj öldi þátttakenda á hvoru námskeiði er 15.
Staðfesta skal þátttöku til RML í síma 516-5000 eigi síðar en 8. desember.
Námskeiðið er á vegum RML og tölvudeildar Bændasamtaka Íslands.
RML og Bændasamtök Íslands áskilja sér þann rétt að fella niður
námskeið ef næg þátttaka næst ekki.
FR
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Steinagreip 200
Verð 192.000 kr.
án virðisaukaskatts
með festingum
Flexibal rúllugreip
Verð 195.000 kr.
án virðisaukaskatts
með festingum
Unigrip rúllugreip
Verð 224.000 kr.
án virðisaukaskatts
með festingum
Aukahlutir frá Trima á tilboði
Dæmi um verð:
Tilboðið gildir til
31. desember 2015
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is
Frostagata 2a 600 Akureyri www.claas.is
VERKIN TALA