Bændablaðið - 03.12.2015, Qupperneq 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Hægt er að hefja nytjar á terunn-
um tveimur til fimm árum eftir sán-
ingu og hámarks uppskera fæst eftir
sjö til tíu ár. Runninn getur hæglega
náð rúmlega 100 ára aldri en nytjar
af honum eru mestar til fertugs eða
sextugs eftir aðstæðum. Vex vel í
beinni sól og hálfskugga skóglendis.
Kýs rakan, vel framræstan, eilítið
sendinn og súran moldarjarðveg.
Við tínslu á tei eru einungis tvö
til þrjú efstu blöðin tínd og við góðar
aðstæður er hægt að safna laufinu á
tveggja vikna fresti. Til að varðveita
bragðgæði telaufanna eru þau þurrk-
uð strax eftir tínslu.
Auk þess sem telauf eru notuð í te
er unnið úr þeim bragðefni sem nýtt
eru til að bragðbæta áfenga drykki,
mjólkurdeserta, sælgæti, kökur og
búðinga.
Uppruni og saga
Ættkvíslin Camellia telur eitthvað
á þriðja hundrað tegundir sem vaxa
víða um heim. C. sinensis skiptist
í fjögur kvæmi C. sinensis var.
sinensis, C. sinensis var. assamica,
C. sinensis var. pubilimba og C.
sinensis var. dehungensis.
Tvær af þeim eru C. sinensis var.
sinensis og C. sinensis var. assamica,
mest ræktaðar til teframleiðslu. Sú
fyrri í Kína en sú seinni á Sri Lanka
og Indlandi.
Ekki er vitað fyrir víst hvaðan
terunninn er upprunninn og plant-
an þekkist ekki villt í náttúrunni og
því um ræktunartegund að ræða.
Ýmislegt bendir til að Camellia
sinensis var. sinensis reki uppruna
sinn til Yunnan-héraðs í Kína og C.
sinensis var. assamica til Assna á
Indland og landanna í Suðaustur-
Asíu. Í dag er plantan ræktuð á hita-
beltissvæðum allt í kringum jörðina.
Auk þess sem hún er skrautjurt í
görðum á norðlægari slóðum.
Nafnið Camellia er í höfuðið á
moldóvíska jesúítaprestinum Georg
Kamel sem stundaði trúboð og rann-
sóknir á plöntum á Filippseyjum í
lok 17. aldar.
Ræktunaryrki af C. sinensis skipta
hundruðum en þau helstu kallast
benifuuki, fushun, kanayamidori,
meiryoku, saemidori, okumidori og
yabukita.
Talið er að neysla á seyði
te runnans hafi fyrst átt sér stað í
Yunnan-héraði í Kína og það drukkið
í lækningaskyni. Elstu heimildir í
Kína benda til að te hafi verið þekkt
þar í landi í allt að þrjú þúsund ár
fyrir upphaf okkar tímatals. Elstu rit-
uðu heimildir um ræktun terunnans
eru aftur á móti mun yngri eða frá
því um 40 fyrir Krist.
Tedrykkja var orðin almenn
í Kína um miðja áttundu öld og
þaðan breiddist hún til nágranna
landanna, Kóreu, Japan og Víetnam.
Þrátt fyrir að te hafi verið drukkið
í Himalayafjöllum Indlands varð
drykkja þess ekki almenn í landinu
fyrr en við hernám Breta og stórrækt-
un þeirra á terunnum þar.
Fyrstu Evrópumenn til að kynn-
ast tei voru portúgalskir trúboðar
og kaupmenn sem heimsóttu Kína
í byrjun sextándu aldar og kölluðu
þeir það chá. Hollenska Austur-
Indíafélagið flutti fyrsta tefarminn
frá Japan til Evrópu árið 1609.
Tedrykkja náði fljótlega vinsældum
í hollensku borginni Haag og barst
þaðan til Þýskalands, Frakklands og
fljótlega með kaupmönnum verstur
yfir Atlantshafsála til New York.
Te var í boði á kaffihúsum í
London 1657 og þegar hefðarmærin
Katrín frá Bragansa í Portúgal giftist
Karli II Englandskonungi árið 1662
hófst innreið tedrykkju við ensku
hirðina. Vegna þess hvað te var dýrt
var það ekki fyrr en í upphafi 18.
aldar sem drykkurinn náði verulegri
útbreiðslu á Englandi og það voru
Englendingar sem fyrstir settu sykur
og mjólk út í teið sitt.
Árið 1770 birti framkvæmdastjóri
Twining, sem var stórinnflytjandi tes
til Englands, grein þar sem hann hélt
því fram að íbúar smáþorps skammt
frá London lifðu á því að falsa te.
Að sögn greinarhöfundar framleiddu
þorpsbúar yfir 20 tonn á ári af telíki
sem samanstóð af muldu og ristuðu
laufi asktrjáa og sauðfjárskít og í
sumum tilfellum blómum yllis til
að bæta bragðgæðin.
Te átti sinn þátt í sjálfstæðis-
baráttu Bandaríkjanna. Árið 1773
klæddust nokkrir sjálfstæðissinnar
indíánaklæðum og fóru um borð í
flutningaskip sem var að flytja te.
Mennirnir hentu farminum í höfn-
ina í Boston og segir sagan að hún
hafi litið út eins og þykk teleðja.
Aðgerðin var til að mótmæla háum
skatti Breta á tei til Bandaríkjanna
og leiddi að lokum til stríðs milli
ríkjanna.
Smygl á tei frá Kína fram-
hjá einkaleyfi breska Austur-
Indíafélagsins leiddi einnig til
tveggja stríða milli Breta og Kínverja
á nítjándu öld sem kallast ópíum-
stríðin.
Skelfilegar aðstæður teverkafólks
Reglulega berast fregnir af börnum
allt niður í sjö ára aldur sem vinna
myrkranna á milli við tetínslu hvort
sem það er í Kína, Sri Lanka eða
Kenía. Árið 2015 birti BBC úttekt á
aðstæðum verkafólks sem starfar við
tetínslu og tevinnslu á Indlandi. Teið
sem umræðir er notað af mörgum
af helstu teframleiðendum í heimi.
Aðstæður fólksins eru víða mjög
slæmar, launin undir lögbundnum
lágmarkslaunum og svo lág að í
fæstum tilfellum nægja þau fyrir
nauðþurftum. Börn og fullorðnir
úða skordýraeitri og öðrum varnar-
efnum án hlífðarbúnaðar og eitranir
af þeirra völdum tíðar.
Algengt er að fjölskyldur teverka-
fólksins búi á jörðunum þar sem teið
er ræktað. Oft og tíðum er bústaður
þess kofaræksni með hripleku þaki
og þar er hvorki rafmagn, rennandi
vatn né salernisaðstaða. Á einu býl-
anna voru 464 sameiginleg salerni
fyrir 740 heimili, með allt að tíu í
heimili, og flest stífluð. Fólkið gerir
því þarfir sínar utandyra í opin ræsi
eða á milli terunnanna.
Bragðbætt og styrkt te
Misjafnt er milli þjóða hvort fólk
kýs að drekka sitt te með eða án
bragðefna. Auk þess sem er hægt
að fá grænt og svart te. Munurinn á
svörtu og grænu tei felst aðallega í
þurrkunartíma laufanna. Svart te er
þurrkað lengur en grænt og er um
60% heimsframleiðslunnar af tei af
terunnum.
Hægt er að fá te með sítrónu-, pip-
armintu- eða ávaxtabragði. Jasmín,
Darjaeeling og Earl Grey te sem er
bragðbætt með bergamótappelsínum
sem er súr og perulaga ávöxtur af
sítrusætt. Á Sri Lanka þykir gott að
krydda te með kanil. Víða í Evrópu
er te styrkt með viskíi eða koníaki.
Öðrum finnst skipta máli hvort
er sett á undan í bollann, teið eða
mjólkin.
Hægt er að fá te í lausu eða
pressað í kökur. Árið 1907 sendi
bandarískur tesölumaður út tepruf-
ur í litlum pokum sem hengu á
spotta. Viðtakendur prufanna
komust fljótlega upp á lag með að
stinga pokunum í heitt vatn. Það
var þó ekki fyrr en eftir heimsstyrj-
öldina seinni að te í tepokum varð
söluvara.
Te á Íslandi
Danskir embættismenn voru fyrstir
til að flytja te til Íslands á fyrri hluta
18. aldar. Vinsældir drykkjarins
virðast snemma hafa orðið tals-
verðar og heldri Íslendingar voru
fljótir að koma sér upp tekönnu,
bollum og kötlum.
Framan af var fágætt að almenn-
ingur ætti slíkt fínerí en í ferða-
bók Eggerts Ólafssonar og Bjarna
Pálssonar, sem kom fyrst út 1772,
segir: „Te og sykur eru nú orðin svo
algengar vörur, að næstum því hver
góður bóndi á nú teáhöld.“
Bjarni Pálsson landlæknir, annar
höfundur ferðabókarinnar, átti
teketil þegar hann lést í Nesi við
Seltjörn árið 1779. Hjónin Þorkell
og Guðrún í Ketu á Skaga, sem lét-
ust árið 1785, áttu teketil, svarta
tekönnu úr leir og aðra með tréloki,
þrjú bollapör og þrjár teskeiðar. Í
eignauppgjöri sextugs bónda á
Melrakkasléttu, sem lést sama ár,
segir að hann hafi átt stóran teketil
úr eir, annan lítinn og tekönnu úr
tini.
Í dag er slíkur munaður á hverju
heimili og sumir drekka aldrei neitt
annað en grænt te úr örþunnum
postulínsbollum með litla fingur
út í loftið.
Siðir við tedrykkju eru formfastir víða í Asíu.
Árið 1907 sendi
bandarískur te-
sölumaður út
teprufur í litlum
pokum sem
hengu á spotta.
Það var þó ekki
fyrr en eftir
h e i m s s t y r j -
öldina seinni
að te í tepokum
varð söluvara.
Þrátt fyrir að tetínsla sé mest með höndum er hún sums staðar vélvædd.
Tetínsla á Sri Lanka. Við tínslu á tei
eru einungis tvö til þrjú efstu blöðin
tínd og við góðar aðstæður er hægt
fresti. Mynd / VH
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Láttu ekki hálkuna koma þér
að óvörum. Skrúfaðir ísnaglar í
ýmsum lengdum, fyrir dráttavéla- og
vinnuvéladekk, vélsleðabelti ofl. Einnig
karbítnagla til að skrúfa undir skó.
ÍSNAGLAR