Lifandi vísindi - 11.01.2016, Blaðsíða 13
12
NÝ ÞEKKING
Lifandi vísindi . 01/2016
myndavélar eru í nýja GoPro-vélinni
sem getur tekið upp í sýndarveruleika.
Það þýðir að minningar má endurupp-
lifa bæði í 3D og 360 gráðum. 16
LED-ljós getur
fjarstýrt músum
LÆKNISFRÆÐI Vísindamenn við
Stanford University í BNA hafa nú
afrekað að fjarstýra mús með að-
stoð ljóss í byltingarkenndri tækni
sem nefnist optogenetic eða ljós-
erfðafræði. Tæknin gengur út á að
vísindamennirnir lagfæra gen í
frumum þannig að þau verði ljós-
næm. Síðan geta þeir lýst á
frumurnar og kveikt eða slökkt
þannig á virkninni.
Í tilrauninni var komið fyrir
LED-ljósi á stærð við piparkorn í
heila músar, hrygg eða fótum.
LED-einingin sendir frá sér ljós sem
örvar taugarnar og músin hreyfir
sig fyrir vikið þar sem ljósið örvar
vöðva nærri búnaðinum.
Á Þ E S S U M H N E T T I
Lösshásléttan, Shanxi- og Shaanxi-hérað í Kína
Vindurinn hefur á síðustu 2,6 milljón árum mótað feiknarlegar ryköldur Löss-
hásléttunnar, með sínum fjallagörðum og gljúfrum í norðurhluta Kína. Rykið
samanstendur m.a. af fínum sandi og leir og er upprunnið frá nærliggjandi
eyðimerkursvæðum. Hásléttan nær yfir 300.000 km2 og er því með viðlíka
flatarmál og Ítalía.
Vindurinn hefur mótað heimsins stærstu ryköldur
Tunga kólibrífuglsins er dæla
Vísindamenn við University of Connecticut, BNA,
hafa uppgötvað að tunga kólibrífuglsins er með
innbyggða dæluvirkni sem fuglinn nýtir þegar
hann er grafkyrr í loftinu og sýgur blómsafa.
Tungan er með tvö þunn rör sem fuglinn
getur þrýst saman með goggnum. Þegar
þrýstingi er létt af þenjast rörin út og
draga til sín blómsafann inn í tunguna.
Áður var talið að tungan virkaði sem
eins konar sogrör.
Í STUTTU MÁLI
APAR NOTA HLJÓÐ
EINS OG UNGABÖRN
Vísindamenn hafa uppgötv-
að að dvergsimpansar búa
yfir álíka orðaforða og
kornabarn. Þeir nota stutt
og skræk hljóð sem geta
merkt margvíslega hluti,
allt eftir félagslegum vensl-
um viðkomandi apa.
Búið er að koma fyrir LED-ein-
ingu við hæl músarinnar sem
getur stýrt hreyfingum hennar.
PA
U
L
KA
PP
/U
N
IV
ER
SI
TY
O
F
A
RI
ZO
N
A
SHUTTERSTOCK
A
U
ST
IN
L
EE
/S
TA
N
FO
RD
U
N
IV
ER
SI
TY