Lifandi vísindi - 11.01.2016, Blaðsíða 61
60
SPURNINGAR OG SVÖR
Lifandi vísindi . 01/2016
Er það sjaldgæft að rautt hár og blá
augu fari saman? Og hvert er samhengið
milli augnalitar og háralitar?
Rautt hár stafar af breytingu í geninu MC1R
sem ákvarðar myndun hins dökkbrúna af-
brigðis litarefnisins melaníns sem er að finna
í húð og hári og nefnist eúmelanín.
Hin stökkbreytta útgáfa gensins kóðar
fyrir rauðgula litarafbrigðinu feómelaníni. Í
okkar heimshluta ber um fjórðungur þetta
stökkbreytta gen en þar eð við höfum tvær
útgáfur af öllum genum, þarf stökkbreytingin
að vera í báðum til að mynda rautt hár og
ljósa húð.
Í heiminum öllum eru aðeins 2% rauð-
hærð en í Norður-Evrópu og þó einkum Ír-
landi og Skotlandi fer hlutfallið í 10%. Gena-
breytileikinn er misöflugur og getur valdið
litbrigðum allt frá næstum vínrauðum lit yfir
í koparrautt eða jafnvel allt að því appel-
sínugult.
Blái augnlitur-
inn kemur aðeins
fram ef gen frá
báðum foreldrum
kóða fyrir bláum
augum. Engin
tenging er milli lit-
ar á hári og augum
og nærri allar sam-
setningar mögu-
legar. Þótt rautt hár
og blá augu séu al-
geng í Norðvestur-Evrópu eru blá augu fátíð
á heimsvísu og rautt hár enn sjaldséðara. Að
þetta tvennt fari saman er því enn fáséðara.
Af hverju blómstra
vetrargosar í snjó?
Stundum má sjá vorlauka á borð við vetrargosa og
vorboða vaxa upp í gegnum dálítið snjólag. Hiti er
svo lágur að blómin eiga á hættu að skaddast ef
veturinn snýr aftur. En til að verjast frostskaða fram-
leiða þessar plöntur eins konar frostlög, prótín sem
koma í veg fyrir kristallamyndun. Og öfugt við
sumarblómin eru vorlaukar duglegir að komast upp
úr snjó, vegna þess að laukurinn sjálfur myndar hita.
Vetrargosi er fær um að
bræða snjóinn kringum
spíruna.
TVENNT TRYGGIR SIGURLAUKSINS Á SNJÓNUMPlöntur sem spíra upp í gegn-um snjó búa yfir hörðu frjó-hylki og innbyggðum „hitara“.
1 Spíran er oft umlukin hörðu hylki sem auð-veldlega nær að þrýsta snjón-um frá.
2 Spírunarferlið sjálft framleiðir svo mikinn hita í lauknum að plantan nær að bræða snjóinn frá sér.
Sjaldséð
blanda
Ekkert samhengi er milli
rauðs hárs og blárra augna
og hvort tveggja er misal-
gengt eftir heimshlutum.
Eru rautt hár og blá augu sjaldgæf?
BLÁ, GRÆN OG GRÁ AUGU
RAUTT HÁR
> 80 %
50-79 %
20-49 %
1-19 %
> 10 %
5-10 %
1-4 %
< 1 %
Rauðhært fólk er
með stökkbreytt gen
sem annars kóðar
fyrir brúnum lit.
ÍRAR OG SKOTAR
Á TOPPNUM
Rautt hár er algengt í
Skotlandi og Írlandi,
þar sem hlutfallið er
um 10%. Um 25% hafa
blá augu svo þetta fer
því saman í um 2,5%
(0,1x0,25) tilvika.
SH
U
TT
ER
ST
O
CK
G
ETTY IM
A
G
ES