Lifandi vísindi - 11.01.2016, Blaðsíða 62
Print: lku Status: 5 - InD
esign Tem
plate Layout: Red.sek:
ÞRÍR LÉTUST Í LOFTTÆMI
Hingað til hafa þrír látist í lofttómu
rúmi geimsins. Þrír sovéskir geimfarar
fórust þegar ventill gaf sig og loftið
streymdi út.
6101/2016 . Lifandi vísindi
Stækka ósasvæði stöðugt?
Drepur kaffikorgur maura?
Af hverju vekja lög í moll depurð?
FÁÐU SVAR
Í NÆSTA
BLAÐI
Getur virkilega staðist að ...
Þrýstingi er haldið uppi í geimbúningi
en þýðir það að líkaminn tætist sund-
ur ef geimbúningurinn fer í sundur í
geimnum?
Þann 8. apríl 1991 kom gat á annan hanska
bandaríska geimfarans Jeromes Apt þegar
hann fór í geimgöngu frá geimferjunni
Atlantis. Gatið uppgötvaðist þó ekki fyrr
en komið var til jarðar.
Reyndar eru geimbúningar ekki alveg
fyllilega þéttir og um 40 rúmsentimetrar
af súrefni leka út á hverri mínútu í alveg
lofttómu rúmi. En smávægilegur leki
skapar ekki vandamál vegna þess að
aukasúrefni bætist við og þrýstingurinn
helst. Stórt gat væri hins vegar banvænt,
þar eð súrefnið hverfur þá allt og
þrýstingurinn um leið. Líkaminn lendir þá
í lofttómu rúmi og tútnar út þar eð sam-
eindir í frumum leitast við að dreifa sér
sem víðast. Við það þrýstist súrefni úr
lungunum og geimfarinn missir meðvit-
und á svo sem 10 sekúndum vegna súr-
efnisskorts. Loftbólur myndast í blóði og
geimfarinn deyr á innan við mínútu vegna
blóðtappa sem stöðva blóðflæðið. En lík-
aminn tætist ekki sundur.
Rétt og rangt um
göt á geimbúningi
1 LÍKAMINN SPRINGURNei, en hann þenst út í allt að
tvöfalda stærð.
2 BLÓÐIÐ SÝÐURNei, enda er blóðið enn undir
þrýstingi. En munnvatn og sviti gufa
strax upp því suðumark er mjög lágt í
geimnum.
3 HALTU ANDANUM NIÐRISlæm hugmynd, því þá bresta
lungun, loftið streymir út í blóðið og
skapar blóðtappa.
4 LÍKAMINN HRAÐFRÝSNei. Í tómarúmi eru engar sam-
eindir til að leiða hitann burtu og því
líður langur tími áður en líkaminn kóln-
ar, jafnvel án geimbúnings.
... geimfarar springi ef
búningurinn opnast?
Í geimnum
getur brotið
hjálmgler
kostað
mannslíf.
SH
U
TT
ER
ST
O
CK