Lifandi vísindi - 11.01.2016, Side 39

Lifandi vísindi - 11.01.2016, Side 39
38 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 Lifandi vísindi . 01/2016 DNA-skrár verða nýttar við þróun eit- urefna sem hlífa býflugum. Stofn- frumublóð dregur úr hætt- unni á að sjúk- dómar smitist með blóðgjöf. Blóðgjafarar geta ekki annað spurn eftir blóði Gjafarablóð er hörgulvara í blóðbönk-um víðs vegar í heimi, einkum í þróunarlöndunum. En nú eru bundnar vonir við að breskt-írskt vísinda- mannateymi geti ræktað stofnfrumur úr naflastrengjum og fullorðnum gjöfurum og fengið þær til að framleiða rauð blóðkorn. Hver stofnfruma getur myndað allt að 10.000 rauð blóðkorn og á árinu 2016 verða fyrstu skammtarnir af stofnfrumublóði til- búnir til klínískrar prófunar. TILBÚIÐ BLÓÐ HANDA MANNESKJU Blóð skapað úr stofnfrumum á að fylla alla blóðbanka heims. Eitt veigamesta nytjaskordýr okkar, hun-angsbýflugan sem sér um að frjóvga fjöl-margar nytjajurtir á ökrunum, stendur frammi fyrir mikilli ógn. Því er m.a. spáð að hún verði aldauða fyrir árið 2035 ef bændur heims halda áfram að sprauta skordýraeitri í sama magni og nú er raunin. Það gæti leyst úr læðingi vistfræðilegar hamfarir á heimsvísu þar sem framleiðsla á ávöxtum og grænmeti gæti orðið helmingi minni. Rannsóknarteymið i5k mun kortleggja erfða- efni 5.000 skordýra – m.a. til að þróa skordýraeitur sem ekki skaðar hunangsbýflugur. Jafnframt mun genakortlagning þessi leiða til skilvirkari vopna gegn malaríumýflugunni sem talið er að drepi 1,5 – 2,7 milljón manns árlega. Talið er að kortlagningunni ljúki nú í ár. DNA 5.000 SKORDÝRA ER KORTLAGT Rannsókn nokkurri er ætlað að bjarga býflugum frá aldauða og til að berjast gegn malaríumýflugunni. 5000 skordýr verða kortlögð í NA skrám rannsóknar i5k 70 % af þeirri uppskeru sem brauðfæðir heiminn er frjóvguð af býflugum. 4.000 milljarðar króna er áætlað virði uppsker- unnar sem hunangsbýflugur frjóvga ár hvert. SHUTTERSTOCK ISTOCKPHOTO SHUTTERSTOCK

x

Lifandi vísindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.