Lifandi vísindi - 11.01.2016, Page 58
Print: steenh Status: 750 - Sprog godkendt Layout:SH
Red.sek:BAV
57
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
01/2016 . Lifandi vísindi
Á flugbraut flugmóðurskips er verk-stjórinn tilbúinn. Hann heldur á
háþróuðu stjórntæki og setur inn hnit
og flugáætlun flaugarinnar. Við hlið
hans ekur orrustuflugvél út á flugbraut-
ina. Engir menn eru um borð. Með
miklum drunum eykur flaugin hraðann
og tekur á loft. Nú getur verkstjórinn
slakað á og beðið þess að
flaugin lendi aftur á skip-
inu að lokinni flugferð.
Northrop Grummans
X-47B er þróaðasta
flugmannslausa flaugin sem hefur verið
framleidd til þessa. Hún tekur við skip-
unum, eins og t.d. að fylgjast með til-
teknu svæði eða sprengja það í loft upp,
og með hjálp gervigreindar leysir
flaugin þetta verkefni eins og best verð-
ur á kosið. Stjórnandinn blandar sér
einungis inn í atburðarásina í neyðartil-
vikum. Flugvélin er þó ennþá í prófun.
Næsta skref í röðinni að fullbúinni orr-
ustuflaug er X-47C. Sú virkar með sama
hætti og fyrirrennarinn en getur borið
þyngri og öflugri vopn.
líkist manni setjast í flugmannssætið en
það verður með nægjanlega gervigreind til
þess að takast á við flugið.
Slíkur þjarki er á ensku nefndur pibot,
samsett úr pilot og robot. Unnið er að þróun
hans við Advanced Institute of Science and
Technology í Suður-Kóreu og hann hannað-
ur til að geta flogið mismunandi gerðum
flugvéla með því að sitja við stýrið og ýta á
takka. Kosturinn er að pibot með sinni
gervigreind getur lært að bera kennsl á ólík
tæki og takka og þannig flogið núverandi
flugvélum án þess að þeim þurfi að breyta
verulega mikið. Með aðstoð myndavéla
metur vélmennið hraðann og flugleiðir og
bregst við því sem hann sér í gegnum
myndavélar sínar.
Í flughermi getur þessi litli þjarkur start-
að og flogið eftir fyrirfram skilgreindum
leiðum en hann á ennþá örðugt með að
lenda sjálfur án aðstoðar sjálfstýringar. Eins
býr hann ekki enn yfir getunni til að leysa
flókin vandamál sem að gætu komið upp á
flugleiðinni.
Fraktflug ryður brautina
Flugmannslausar farþegaflugvélar eru um-
deildar þrátt fyrir að tækni til að koma þeim
á loft sé til staðar. Raunverulegur flugmaður
í stjórnklefanum veitir farþegum öryggi
enda þarf hann að takast á við sömu hættu
eins og farþegarnir og mun því gera allt sem
í hans valdi stendur til að komast heill í
höfn. Þegar þetta öryggi er horfið mun
drjúgur hluti farþeganna líka hverfa.
Þrátt fyrir þennan annmarka telja
margir sérfræðingar að framtíðarsviðs-
myndin innan næstu 20 ára, þar sem
flugfélag mun t.d. ráða yfir 300 far-
þegaflaugum en aðeins 50 flugmenn.
Farþegaflugvélarnar munu sjálfar sjá
um að komast á áfangastað.
Um það bil 10 af flugmönnun-
um eru að störfum hverju sinni í
stjórnstöð á jörðu niðri. Þeir hafa
tölvur sem líkjast þeim sem eru
í stjórnklefanum og geta
tengt þær við allar flug-
vélar fyrirtækisins.
Þeim til aðstoð-
ar eru síðan um
tugur tækni-
manna. Í sjald-
gæfum tilvik-
um þar sem
tæknivanda-
mál koma upp
á flugi mun við-
vörun hljóma og í
kjölfarið mun allt flug og kerfisgögn fyrir
viðkomandi flugvél birtast á skjáum í
stjórnstöðinni. Mennirnir geta þannig grip-
ið inn í með sama hætti og væru þeir um
borð í flugvélinni.
Í fragtflugi þarf ekki að hafa neinar
áhyggjur af farþegum. Því geta ómannaðar
fraktflaugar verið heppilegar til að ryðja
brautina fyrir flugmannslausar flugvélar.
Samtímis mun það auðvelda flugumferðar-
yfirvöldum að velja tilteknar flugleiðir og
hæðir þar sem ómannaðar flaugar geta ver-
ið þegar engir farþegar eru um borð. Þá
verða slíkar vélar ekkert að þvælast innan
um venjulegt farþegaflug.
Það tekur þó afar langan tíma fyrir slíkar
flugvélar að öðlast viðurkenningu. Frá upp-
hafi til loka tekur það um áratug og þegar
flugmannslausar flaugar eiga í hlut mun
ferlið taka ennþá lengri tíma. Flaugarnar
þurfa að standast miklar öryggiskröfur og af
þeim sökum munu flugmannslausar flug-
ferðir fyrst verða raunveruleiki einhvern
tímann um 2050.
Orrustuflaug setur
nýja staðla
Sem fyrsta flugmannslausa flaugin tekur orrustuflugvélin X47B við skip
unum sem hún vinnur sjálf úr – án þess að nokkrir menn komi nálægt.
Northrop Grummans
X-47B bregst við skipun-
um og er nánast alveg
sjálfvirk.
Stýriarmur
Þessi þróaða orrustuflaug tekur
við skipunum með stjórntæki sem
komið er fyrir á handleggnum.
U.S. NAVY