Þjóðmál - 01.12.2008, Page 6
4 Þjóðmál VETUR 2008
út rás arinnar“ . Allt fram á síðasta dag trúðu
for svars menn ríkisstjórnarinnar frem ur skýr-
ingum banka- og útrásarmann anna en að -
vör un um seðlabankastjórans . Og hvað er það
annað en dæmalaust mont og grunn hyggni að
herlaus örþjóð láti sér til hugar koma að setjast
í öryggisráð Sameinuðu þjóð anna sem hefur
það hlutverk að tryggja öryggi alls heimsins?
Meðal annars efnis í blaðinu er bók ardóm-ur Gústafs Níelssonar sem ber yfir-
skriftina Sekir uns sakleysi sannast . Er þar vísað
til fársins sem skapaðist við gjald þrot Hafskips
á sínum tíma . Þá var krafa um „rann sókn“ og
„ábyrgð“ ekki síður hávær en nú um stundir .
Vonandi ferst rannsóknar að ilum betur nú en í
Hafskipsmálinu og von andi leiði r rannsóknin
nú ekki til réttar hneyksla á borð við einangrun-
ar vist Hafskips manna á sínum tíma .
Mikil eru örlög Björgólfs Guð munds son ar .
Það á vafalaust við um fleiri, sem taldir eru
bera mesta ábyrgð á hruni íslensks fjármála-
kerfis, að Björgólfur hélt sig vera að vinna í
þágu lands og þjóðar með „útrás“ sinni . Hvað
sem því líður er ljóst að á undanförnum árum
hafa fáir verið örlátari í styrkveitingum til
einstaklinga og félagasamtaka en Björgólfur
Guðmundsson . Mun þess sjá víða stað í þjóð-
lífinu þegar fégjafir hans þrýtur .
Það er flókið mál að gera upp mannleg sam-
skipti, það eru bæði plúsar og mínusar sem
þarf að taka tillit til, líka hjá þeim sem komast
í þrot og valda öðru fólki fjárhagsskaða .
Mannlegt eðli gerir það líka að verk um að
fólk forðast í lengstu lög að horfast í augu við
villur síns vegar . Það á við um alla . Ekki er
til dæmis vanþörf á því að
þeir sem hæst láta núna í
kröfugerð um ábyrgð til-
tekinna einstaklinga hugsi
sinn gang og líti í eigin
barm . Það þarf ekki lengi
að skoða Baugsmiðlana á
meðan allt lék í lyndi – og
Hannes Smárason og Jón
Ásgeir Jóhannesson voru
menn ársins í Fréttablaðinu – til að átta sig
á því hvar hin raunverulega ábyrgð liggur .
Bók Óla Björns Kárasonar, Stoðir FL-Group
bresta, sýnir í hnotskurn það viðskiptasið ferði
sem Baugsmiðlarnir og aðrar „klapp stýr ur
út rás arinnar“ hömpuðu og hefur nú komið
þjóð inni í koll . Fyrir allar slíkar við skipta-
hunda kúnstir og blekkingar, sem rann sóknin
á bönkunum mun leiða í ljós, ber að að refsa
af fullum þunga .
Sagan endurtekur sig . Ríkisvæddir bankar, gjaldeyrishöft og ákall um víðtæk ríkis-
afskipti minna á haftaárin svonefndu, 1930–
1960 . Þá var öll verslun á Íslandi hneppt í
svo harðar viðjar að ekki mátti flytja bók til
landsins án þess að biðja yfirvöld um leyfi .
Þá sáust ávextir ekki árum saman og fólk
stóð næturlangt í biðröðum í von um að geta
keypt sér eitt par af bomsum . Þá gengu inn-
flutningsleyfi fyrir bílum kaupum og sölum
fyrir hærra verð en sjálfur bíllinn kostaði . Þá
rak ríkið prentsmiðju og vélsmiðju og setti
á fót ótal einkasölur . Þá grasséraði pólitísk
spilling, smygl og svartamarkaður – og voldug
hagsmunasamtök risu upp í öllum áttum til
að tryggja hlut sinn í haftakerfinu . Um þetta
fjallar bók ritstjóra Þjóðmála, Þjóð í hafti, sem
kom út fyrir tuttugu árum . Hún er nú vænt-
anleg á bókamarkað í kilju .
Önnur bók sem er ekki síður þörf lesn -ing við núverandi aðstæður er meist ar-
a verk Scotts Fitzgeralds, Hinn mikli Gatsby,
sem ný lega kom út hjá Bókafélaginu Uglu .
Það er áhrifamikil lýsing á miklum vel meg-
una r tíma fyrir kreppuna
miklu, djass-áratugnum –
glysi og glaumi, tálsýnum
og dvín andi sið ferðis-
þrótti .
A ð svo mæltu óska ég lesend um gleðilegra
jóla og far sæld ar á komandi
ári .