Þjóðmál - 01.12.2008, Side 12

Þjóðmál - 01.12.2008, Side 12
10 Þjóðmál VETUR 2008 Hér skal þessi grein ekki rakin frekar, en lýsingin er ekki beint uppörvandi séð með íslenskum augum . Hún er hins vegar í stíl við margt, sem sagt er hér á landi, þegar leitast er við að afla ESB-málstað stuðnings . Dregnar eru upp myndir, sem einkennast af ótta og gylliboðum . Athyglisvert er, að norski prófessorinn og sendiherra ESB á Íslandi segja Íslendinga verða að leita á náðir Brussel-valdsins til að geta lifnað að nýju eftir dauðann . Þetta líkingamál um mátt og samúð manna í Brussel sýnir, hve sterka samningsstöðu ESB telur sig hafa . Ólafur Gunnarsson, rithöfundur, sagði í Frétta blaðinu 22 . nóvember, 2008: ,,Ég er opinn fyrir öllum kúltúráhrifum . En ég er samt skíthræddur við Evrópusamband ið . Eins og stendur í Egilssögu: Konungsgarður er víður inngöngu en þröngur útgöngu . Var það ekki í fréttum í vikunni að Evrópusam band- ið hygðist engar tilslakanir gera vegna fiski- mið anna? Vilja Íslendingar missa sjálfstæðið? Einhver fugl stakk upp á því að við ættum að breyta stefnu sambandsins hvað varðar þessi mál þegar við værum gengin í það . Hver vitiborinn maður hlýtur að sjá að þetta er brjálsemi; svipuð heimspeki eins og að segja að gott væri að komast í helvíti vegna þess að maður gæti haft svo góð áhrif á djöfulinn .“ III . Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands, flutti ræðu á morg- un fundi Viðskiptaráðs Íslands 6 . nóvember, 2007 og sagði meðal annars: „Hitt er einnig til að ný orð fái nánast á sig goðsagnakennda helgimynd, eins og orðið útrás, sem enginn þorir að vera á móti, svo hann verði ekki sakaður um að vera úr takti, hafi ekki framtíðarsýn eins og það heitir nú, og þekki ekki sinn vitjunartíma . „Útrás“ virðist þegar grannt er skoðað ekki vera annað en venjuleg fjárfesting erlendis; auðvitað iðulega einnig nýting á þekkingu og hæfileikum í bland við fjárfestinguna .“ Í huga Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, var útrás Íslendinga annað og meira en „venjuleg fjárfesting erlendis“ . Hún var til marks um snilligáfu Íslendinga . Að öllum öðrum ólöstuðum má fullyrða, að enginn hafi ýtt eins mikið undir þjóðrembu með tali um útrásina og sjálfur forsetinn . Nægir í því efni að líta til erindis, sem hann flutti hjá Sagnfræðingafélagi Íslands 10 . janúar 2006 undir fyrirsögninni: Útrásin: Uppruni – einkenni – framtíðarsýn . (Á fundarstað hittust þeir Ólafur Ragnar og Guðjón Friðriksson og af því samtali spratt bókin um Ólaf Ragnar, sem út kom í nóvember 2008 .) Ólafur Ragnar sagði næga peninga til í ver- öldinni, en frumleg og skapandi hugsun væri af skornum skammti . Hér gætu hin smáu ríki öðlast lykilstöðu því sagan sýndi að nýsköp un og áfangar í þróun siðmenningar gætu birst með skýrum hætti í fámennum samfélögum . Flórens og Feneyjar á tímum endurreisnar, Aþena og Róm til forna myndu á okkar tím- um teljast til smæstu ríkja heims . Fór ekki á milli mála, að hann líkti Íslandi við þessi frægu borgríki, þegar hann sagði: „Allt á þetta erindi í umræður um útrásina og ég hef hvað eftir annað áréttað mikilvægi menningar og siðvenja til skýringar á árangri Íslendinga; nýlega í erindum bæði í London og New York og nokkru áður í Kaupmannahöfn en í þessum borgum er oft spurt hvernig á því standi að íslenskir athafnamenn beri sigurorð af öðrum, nái árangri sem tíðindum sætir og það í greinum þar sem þjóðin var áður lítt að verki svo sem í lyfjaframleiðslu, fjármálastarfsemi og alþjóðlegum bankarekstri, í viðskiptum með tískuvörur og í smásöluverslun, í framleiðslu á gervilimum og í rekstri símafyrirtækja svo að nokkur dæmi sé nefnd auk flugrekstrar og markaðssetningar matvæla þar sem við hefðum áður sýnt hvað lítil þjóð getur gert .“ Þegar hann ræddi um skaphöfn íslensku at hafna mannanna sagði hann, að þeir ættu auðvelt með að taka áhættu, að þora þegar aðrir hikuðu, kannski vegna þess að lífi sjó- mannsins fylgdi jafnan hætta og útrásin væri

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.