Þjóðmál - 01.12.2008, Blaðsíða 15
Þjóðmál VETUR 2008 13
aðar brot og að misnota aðstöðu sína . „Stjórn
Bonus Stores þykir í hæsta máta óeðli legt að
framkvæmdastjóri hagnist á viðskiptum við
eigið fyrirtæki,“ stendur svart á hvítu í frétta-
tilkynningunni sem er undir rituð af Tryggva
Jónssyni þáverandi aðstoðar forstjóra Baugs .
Það sem Jim Schafer var rekinn fyrir í Banda-
ríkjunum stundaði Jón Ásgeir hér heima í
trausti þess að verða ekki afhjúpaður .
Haustið 2003 keypti útgáfufélag Frétta-
blaðsins bú DV sem hafði verið tekið til gjald-
þrotaskipta . Um áramótin gekk Jón Ásgeir frá
samningum við Jón Ólafsson, kenndan við
Skífuna, um að kaupa eignir hans á Íslandi,
þar með talinn ráðandi hlutur í Norður ljós-
um sem rak m .a . Stöð 2 og Bylgjuna .
Jón Ásgeir er næmur á almenningsálitið og taldi sig hafa sterkt vopn í hendi þar sem
fjölmiðlarnir voru til að berja á þeim sem
andæfðu vaxandi veldi hans . Davíð Oddsson
forsætisráðherra var einn þeirra sem hafði
fullan fyrirvara á framferði nýauðvaldsins .
Davíð gagnrýndi matvöruverslanir fyrir að
lækka ekki vöruverð þegar gengi krónunnar
hækkaði . Á Alþingi í janúar 2002 sagði Davíð
í utandagskrárumræðum að til greina kæmi
að skipta Baugi upp ef fyrirtækið misnotaði
markaðsráðandi stöðu sína .
Málshefjandi var Össur Skarphéðinsson sem
þá var formaður Samfylkingarinnar . „Stóru
keðjurnar hafa í skjóli einokunar keyrt upp
matarverð . Hreðjatak þeirra á markaðnum
hefur kallað fáheyrða dýrtíð yfir neytendur,“
sagði Össur og bætti við: „Það er skoðun okkar
í Samfylkingunni að Samkeppnisstofnun eigi
að fá í hendur þau tæki sem hún þarf til þess að
skipa fyrir um breytingar, þar á meðal að skipta
upp slíkum einokunarrisum ef hún telur þess
þörf til þess að vernda hagsmuni neytenda .“
Í fyrsta svari sínu til Össurar fór for sætis-
ráðherra almennum orðum um efnahags-
ástandið og taldi það horfa til betri vegar
þrátt fyrir verðbólguskot . Össur fór öðru
sinni í ræðustól og brýndi forsætisráðherra .
Davíð svaraði með þessum orðum:ð „[Auð-
vi tað á að fylgja því eftir að stórir aðilar séu
ekki að misnota aðstöðu sína . Auðvitað er
60% eignaraðild í matvælafyrirtækjum,
versl unar fyrirtækjum í matvælaiðnaði, allt
of há hlutdeild . Auðvitað er það uggvænlegt
og sérstaklega þegar menn hafa á tilfinning-
unni að menn beiti ekki því mikla valdi sem
þeir hafa þar af skynsemi . Auðvitað hlýtur að
koma til greina af hálfu ríkisins og Alþingis
að skipta upp slíkum eignum ef þær eru
misnotaðar .“
Jón Ásgeir tók gagnrýninni illa og gremja
hans beindist að forsætisráðherra en ekki
máls hefjanda . Hreinn Loftsson, þáverandi
stjórn arformaður Baugs, var sendur á fund
Davíðs . Hreinn var aðstoðarmaður Davíðs
áður en hann hóf störf hjá Baugi . Þeir hittust
í London og áttu þar tveggja manna tal sem
nokkru síðar var gert að umtalsefni á forsíðu
Frétta blaðsins .
Forstjóri Baugs beit það í sig að forsætis-
ráðherra stæði á bakvið húsrannsóknina hjá
Baugi haustið áður . Lögreglurannsóknin
var upphafið að Baugsmálum svokölluðum
sem lauk með dómi Hæstaréttar um mitt ár
2008 . Jóni Ásgeiri fannst óhugsandi að lög-
reglan tæki Baug til rannsóknar án beinna
fyrirskipana frá forsætisráðherra . Dagskrár-
valdi Fréttablaðsins, sem Jón Ásgeir stýrði án
þess að almenningur vissi að hann ætti blaðið,
skyldi beitt á forsætisráðherra .
Veturinn 2003 varð til áætlun hjá Jóni Ásgeiri og Gunnari Smára ritstjóra
um að binda enda á pólitískan feril Davíðs
en þingkosningar voru þá um vorið . Fyrir
kosningar eru stjórnmálamenn hvað veikastir
fyrir . Ef tekst að draga trúverðugleika og
heilindi stjórnmálamanns í efa skömmu fyrir
kosningar stendur hann höllum fæti . Í hita
kosningabaráttunnar er snúið að vinda ofan
af rangfærslum og blekkingum .
Í aðdraganda kosninganna fengu Baugs-
menn góðan liðstyrk frá forsætisráðherra-
efni Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur . Í svonefndri Borgarnesræðu tók