Þjóðmál - 01.12.2008, Blaðsíða 22
20 Þjóðmál VETUR 2008
á langri hefð abstraksjónar og fást fyrst og
fremst við tæmingu malerískra mögu leika“ .
Bragi Ásgeirsson sagði í Morgunblaðinu
að upphenging myndanna væri ef til vill hið
frumlegasta við sýninguna . „Þótt greina megi
vel ásjáleg málverk innan um á þessari sýningu
eru þau ekki umbrotasöm né eftirminnileg –
þó greinir maður gjarnan mikla hugsun bak
við sum þeirra .“16
8 . Frá nýju sjónarhorni
Dagana 16 .–25 . janúar 1987 sýndi Eggert þrjátíu verk í Nýlistasafninu í Reykjavík .
Þau mynduðu ákveðna heild og bók tengd-
ist verkunum . Upphengingin vakti sérstaka
athygli, myndirnar voru neðarlega á veggjum
í neðri salnum, á miðhæð hússins var eitt
verk á miðjum vegg og í efri salnum voru
mynd irnar nær alveg upp við loft, þannig
að áhorfand inn þurfti að horfa hátt upp og
horfa á verkin frá nýju sjónarhorni .
„Gerandinn er auðsjáanlega maður hinna
há vaðalausu stemninga og djúpu hugsana,“
sagði Bragi Ásgeirsson í dómi í Morgun blað-
inu .17 „En myndirnar luma á sér í einfald leika
sín um og segja, er best lætur, margræða sögu
um hugmyndir og áhrif er verða á vegi leit and-
ans .“ Braga fannst sýningin í heild áhuga verð
og sagði að hún skildi eftir góð hughrif .
Aðalsteinn Ingólfsson skrifaði um sýning-
una í DV .18 „Lágvær og fíngerð myndlist
Eggerts Péturssonar stingur í stúf við flest
annað sem ungir íslenskir myndlistarmenn
aðhafast í dag,“ sagði hann . „Myndir Eggerts
ganga að einhverju leyti út á náttúruleg ferli . . .
Einkum og sérílagi virðist hann velta fyrir sér
hugmyndinni um flæði, bæði í nátt úrufræði-
legum og heimspekilegum skiln ingi .“
9 . Vestur á fjörðum
Eggert sýndi í sýningarsalnum Slunkaríki á Ísafirði 9 .–22 . maí 1987 . Þetta var
innsetning, eitt verk samsett úr mörgum
litlum . 19
10 . Sex blómamyndir
Tíunda einkasýning Eggerts Péturssonar hér á landi var í Galleríi Sævars Karls við
Bankastræti í Reykjavík frá því um miðjan
ágúst og til 8 . september 1989 . Á sýning-
unni voru sex nafnlaus myndverk, unnin á því
ári, allt olíumálverk nema eitt unnið í gvass á
pappír . Ódýrustu verkin kostuðu 40 þúsund
krónur, það dýrasta 100 þúsund krónur .
„Ef til vill mætti nefna þetta myndljóð, því
að í þeim er einhver ofurviðkvæmur ljóðrænn
strengur og um leið er í þeim heilmikið af
heimspeki,“ sagði Bragi Ásgeirsson í Morg-
unblaðinu .20 „Þessar myndir, sem láta svo lítið
yfir sér, eru í raun þaulhugsuð tjáning lista-
mannsins á brotabroti hlutveruleikans, og hér
leitar hann mjög til jurtaríkisins, en samkvæmur
sér, aðeins hluta þess .“ Bragi talaði um galdur
og ríkidóm smáatriðanna og sagði myndirnar
minna á verk meistara fyrri alda .
Eggert hefur síðar sagt í viðtölum að þetta
hafi verið fyrsta sýningin þar sem eingöngu
voru blómamálverk .
Málverk af fífum, málað 1999– 2001,
155x122 sentimetrar .