Þjóðmál - 01.12.2008, Page 23
Þjóðmál VETUR 2008 21
11 . Lofsöngur til náttúrunnar
Laugardaginn 6 . apríl 1991 var opnuð sýning á verkum Eggerts í Nýlistasafninu
við Vatnsstíg í Reykjavík og stóð hún til 21 .
apríl .
Á jarðhæð safnsins var stórt
umhverfislistaverk, á fyrstu hæð voru
náttúruljósmyndir og í efri sölunum málverk
úr íslenskri náttúru . Sýningin var sögð
afrakstur sex mánaða starfslauna sem Eggert
hafði hlotið árið áður .
„Sérhvert málverk er eins og tilviljunar-
kennd og um leið yfirmáta hlutlæg nærmynd
af náttúrunni,“ sagði Aðalsteinn Ingólfsson
í DV .21 Honum fannst sum málverkanna
með afbrigðum fínunnin og áhrifamáttur inn
fælist í trúnaði þeirra við náttúruna . „List og
veruleiki eru eitt .“
„Er hér um að ræða nokkurs konar lofsöng
til náttúrunnar og brotabrota hennar . Hins
lífræna í því smágerða og ljósflæðisins sem
umlykur það,“ sagði Bragi Ásgeirsson í Morg-
unblaðinu .22
12 . Örveröld jurtanna
Eggert hafði dvalið í Bretlandi í þrjú ár þegar opnuð var sýning á verkum hans í
Galleríi Sævars Karls í Bankastræti í Reykja-
vík, 16 . september 1994, en hún stóð til 6 .
október . Málverkin sjö á sýningunni voru frá
þessum þremur árum, en fyrirmyndirnar voru
íslenskar plöntur .
„Í verkum hans birtist örver öld jurtanna,
sem fylla hina smáu myndfleti listamannsins
gjörsamlega þannig að út af flóir, og
listunnendur geta hrein lega týnt sér í skrúði
lágplantna og smá blóma,“ sagði Eiríkur Þor-
láksson í Morgunblaðinu .23
Listamaðurinn sjálfur sagðist í sýningarskrá
hafa sótt innblástur til íslenskra plantna . „Við
vinnslu málverkanna legg ég mikið upp úr að
ná sem mestum smáatriðum svo oft jaðrar við
þráhyggju .“24
13 . Friður og ró
Eggert var enn búsettur í Bretlandi þegar fyrsta sýning hans var í Galleríi Ingólfs-
stræti 8, frá 10 . október til 3 . nóvember
1996 . Galleríið er nú betur þekkt sem i8,
eftir götunafninu og númerinu, og hefur
annast sölu á verkum Eggerts undanfarin ár .
Á sýningunni voru átta verk, máluð 1995
og 1996 .25 Dökkir og grænir litir þóttu ein-
kennandi á sýningunni .
Ingólfur Arnarsson sagði í sýningarskrá:
„Þegar hann málar blóm er hann á vissan hátt
blóma málari því blómin eru meðhöndluð af
virðingu en jafnframt er list hans dulbúin í
gervi blómamálverka .“26
Braga Ásgeirssyni fannst vinnubrögð
Eggerts minna á átjándu aldar málara . „Hin
sterka tilvísun felst hér í hinum jafna og
hárnákvæma stígandi jurta- og blómaforma,
sem minnir okkur á þörf mannsins fyrir frið
og ró, að ljósið, loftið, kyrrðin og hin mettaða
flóra jarðar eru hinir sönnu vinir mannsins,“
sagði Bragi í Morgunblaðinu .27
„Eggert Pétursson hefur lagt sig eftir því að
mála myndir af botngróðri íslenskrar fjalla flóru
Málverk af ljósbera, málað 2003,
115x90 sentimetrar .