Þjóðmál - 01.12.2008, Page 35
gegnum lífeyrissjóðina er mikil . Er þetta einn
mesti styrkur hagkerfisins og greinir stöðu
okkar nokkuð frá öðrum . Íslendingar eru
vegna þessa að spara umfram eyðslu til lengri
tíma litið og það svo verulegum fjárhæðum
skiptir . En það breytir ekki því að íslenska
hag kerfið er berskjaldað fyrir ytri áhrifum .
Reynslan sýnir að þegar niðursveifla verður
getur kaupmáttur dregist saman um 15–20%
og að efnahagslægð varir oftast um 4–8 ára
bil . Á slíkum tímum kæmi sér vel að eiga
sterkan ríkissjóð og það getur enn orðið .
Kosningar til sveitarstjórna eru á næsta ári
og til Alþingis árið eftir . Reynslan sýnir að
slíkir tímar eru ríkissjóði erfiðir . Áform um
dýrari leiðir í opinberum framkvæmdum en
nauðsyn krefur, t .d . jarðgangagerð, eru til
vitnis um það .
Rithvíld
Viðbrögð við þessum átta greinum mínum voru nánast engin . Algleymi
dansins í kringum gullkálfinn mátti ekki
trufla . Ég var sagður neikvæður, svartsýnn og
jafnvel úrtölumaður . Það voru etv . mistök að
hætta skrifum, en ég hafði a .m .k náð að segja
það sem mér bjó í brjósti og að hamra frekar
á því áleit ég að mundi aðeins valda því að
lesendur Mbl . yrðu þreyttir á mér . Ég tók mér
því rithvíld um sinn .
Í upphafi árs 2008, þegar afleiðingar hinnar
alþjóðlegu lánakreppu tóku að koma í ljós, gat
ég ekki lengur orða bundist . Ég hafði þá látið
af störfum hjá Kreditkorti hf . Hef ég síðan
skrifað allmargar greinar í Morgunblaðið .
Lánakreppan kallar á nýja hagstjórn
– janúar 2008
Bankastarfsemi er einkennileg atvinnu-grein . Hún er svo háð trausti, að minnstu
grunsemdir geta sópað burt rekstrarárangri
heils árs, rétt eins og ársuppskera fellur
stundum á einni hélunótt,“ sagði L . Holland
á ársfundi Englandsbanka árið 1866 . Þetta
gildir enn . Margir óttast harða lendingu í
sam tengdum hagkerfum heimsins . Bankar
um víða veröld draga nú útlán saman svo eig-
in fjárhlutfall og traust haldist . Einmitt þetta
veldur vanda: Þeir ýkja hagsveiflur, ekki síður
á niðurleið en uppleið .
Þróun efnahagslífsins ræður áherslum í
hagstjórn . Fleira skiptir þó máli en að halda
verðbólgu lágri og hagvexti uppi, s .s . velferð
eða farsæld . Fari svo illa að lánakreppunni
fylgi djúp lægð hljóta stjórnvöld að íhuga
hvort hagstjórnin hafi þjónað nógu vel .
Niðurstaðan verður að svo hafi verið áður, en
ekki lengur .
Afskiptaleysi í hagstjórn hefur verið í
tísku á Vesturlöndum, en hagsveiflur eru
þó óæski legar . Þær leiða til atvinnuleysis,
vannýtingar og tefja framfarir . Verðbólga
dregur úr verðskyni og leiðir til sóunar .
Á hinn bóginn virðast menn hafa álitið
ofmat tiltölulega meinlaust, nema auðvitað
þeim sem sitja uppi með eignirnar þegar
verðið fellur . Hið rétta er þó að þessar
sápukúlur valda miklum skaða . Hann felst í
eignatilfærslum . Nú eiga þúsundir íslenskra
fjölskyldna ofmetnar íbúðir og skulda meira
en nokkru sinni . Sama gildir um hluta-
bréfakaup . Lífeyrissjóðir almennings eiga
mikið af ofmetnum hlutabréfum og bankar
eru með dulinn vanda í veðlánum sínum .
Víða um lönd er ástandið svipað . Félagslegar
afl eiðingar þessa verða miklar og langvarandi .
Sumir seinheppnir munu ekki ná að rétta úr
kútnum . Aðrir munu þurfa að breyta stærstu
áformum sínum . Vitað er að hjónaskilnaðir
tengjast helst fjárhagserfiðleikum . Mistökin
geta skipt sköpum um sjálfa hamingjuna . Á
sama tíma og fjöldi vonsvikinna og eignalítilla
vex sjáum við auðinn safnast á fárra hendur .
Ársins 2007 verður minnst fyrir lána-
kreppuna . Árið 2008 munu bónusar og
kaupréttir bankastjóranna sæta gagnrýni, því
í samdrætti er ekki unnt að gera sér mat úr
slíku með vexti . Einu raunhæfu leiðirnar eru
uppsagnir og vaxta- og verðhækkanir . Þegar
öll kurl eru svo komin til grafar munum við sjá
kaflaskipti í hagstjórn . Bönkum verða sniðnar
þrengri almennar reglur en áður í starfsemi
Þjóðmál VETUR 2006 33