Þjóðmál - 01.12.2008, Page 37

Þjóðmál - 01.12.2008, Page 37
 Þjóðmál VETUR 2008 35 bréfa sinna og hugsuðu sér að selja á réttu augnabliki . Þeir nefna sig „kjölfestufjárfesta“ . Í skilningi hagfræðinnar eru fjárfestar þeir einir sem leggja fé í framleiðslutæki í atvinnulífi . Þá sem kaupa hlutabréf með gróða til skamms tíma í huga ber hins vegar að nefna spákaupmenn . Þeir vaka yfir skekkjum hins ófullkomna markaðar eins og hrægammar yfir vígvelli . Þeir gera sama gagn og njóta sama trausts . Efnahagslægð er að hefjast, dregið hefur úr lánveitingum, lendingin verður líklega hörð . Vanskil myndast, verð húsnæðis kann að falla, ef svo fer munu útlán banka og eigið fé tapast . Tvö til fjögur ár tekur að komast til botns í því . Brýnt er að efla starfhæfa og ábyrga banka, hagur þjóðar er í húfi . Það gerist ekki ef gammarnir eru fóðraðir með góðu fé sem kastað er á eftir slæmu . Óhjákvæmilegt kann því að reynast að færa núverandi hlutafé banka niður áður en almannafé er lagt fram . Vandinn nú er hluthafa, ríkisábyrgð á bönkum er liðin tíð . Ósjálfbjarga bankar – apríl 2008 Ekki er líklegt að stjórnvöld vilji vernda hluthafa banka, en á hinn bóginn þarf að huga að hagsmunum innlánaeigenda og jafnvel annarra sem lánað hafa þeim fé . Yfirgnæfandi meirihluti þessara umsvifa tengist Íslandi lítið . Þeir erlendu stórbankar sem lánuðu féð vissu það . Einnig að ríkis ábyrgðir eru liðin tíð . Lán þeirra leiddu til vandræða . Þeir eru ótryggðir kröfuhafar og þurfa að bera sinn hluta byrðanna . Engar léttar lausnir eru til . Valin lausn á að halda þessum erlendu lánveitendum til ábyrgðar . Maklegt er að eigendur og stjórnendur banka glími við sjálfskaparvíti sín . Stjórnvöld þurfa að gæta íslenskra hagsmuna í því ferli . Hvorki má aðstoða þannig að í því felist gjöf né hagnaður . Bankarnir eru nú eins og hver önnur óregluheimili . Veislan er búin . Örmagna og ráðþrota, með skottið á milli lappanna, rétta þeir nú fram lófann . Sjálfræðissvipting vofir yfir . Aðgreina ber sem fyrst innlenda bankastarfsemi frá annarri og flytja í sérstök ný dótturfélög . Ríkissjóður láni bönkunum fyrir hlutafjárframlagi til hinna nýju félaga, gegn handveði í hlutabréfunum . Unnið verði að viðskiptalegum aðskilnaði nýju bankanna frá móðurbönkunum strax í framhaldinu, svo skilja megi þá frá þeim án fyrirvara . Flutningur viðskiptanna í ný félög yrði ekki riftanlegur af því að gerningurinn yrði kröfuhöfum móðurbankanna í hag . Ástæðan er sú að eigið fé þeirra stæði þá eftir til stuðnings þeim eingöngu . Að auki verður ekki séð að mismunur sé á gæðum erlendra og innlendra eigna . Veðtakan í hlutabréfunum yrði ekki heldur riftanleg, af því að nýtt lán fylgdi . Eigendur og stjórnendur viðskiptabanka og dótturfélaga þeirra fái að þessu gerðu ráð rúm til að vinna, ásamt lánardrottnum, að fjár- hags legri endurskipulagningu félaganna . Þeir þekkja eignir og skuldir bankanna best og eiga sjálfir mikilla hagsmuna að gæta . Hér eiga við gamlar og góðar reglur: Sjálfs er höndin hollust, sá veit best hvar skórinn kreppir sem ber hann á fætinum og hver er sinnar gæfu smiður . Er frjálshyggjan að bregðast? – apríl 2008 Við lánsfjárkreppuna hefur nú bæst olíu-kreppa á borð við þær sem við kynnt- umst 1973 og 1980 . Kröpp efnahagslægð fer í hönd . Ekkert er séríslenskt við okkar aðstæður . Við höfum elt tískustrauma í hagstjórn eins og aðrir og bætt gráu ofan á svart . 250 ára gömul hugmynd Adams Smith um hina ósýnilegu hönd hins frjálsa markaðar var enn á ný gerð að þungamiðju í hagstjórn . Ófrávíkjanlegur áskilnaður gamla mannsins um að markaðir skuli vera í senn frjálsir og háðir góðu siðferði var ekki virtur . Þar liggur vandinn . Annars vegar blasir við að markaðir eru sífellt að verða ófrjálsari . Samþjöppun, fákeppni og markaðsráðandi staða er áberandi . Yfirvöld samþykkja samruna með skilyrðum í stað þess að synja . Reynslan sýnir að þrátt fyrir tilsjón hins opinbera þróast markaðir í átt til

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.