Þjóðmál - 01.12.2008, Qupperneq 40

Þjóðmál - 01.12.2008, Qupperneq 40
38 Þjóðmál VETUR 2008 einkennin fremur en meinið . Til eru lausnir, en þær eru ekki sársaukalausar . Glópagullið sem við eltumst við er horfið, raunhagkerfið með böggum hildar . Við getum þó hörfað í hlé, staldrað við og náð vopnum okkar á ný . Hinn kosturinn er að gefa sig óreiðu, deilum og upplausn á vald . Tillaga mín er etv . ekki til vinsælda fallin en getur þó gert gæfumuninn um farsæld okkar í framtíðinni . Afnám eignarskatts var mistök Öll metum við líklega líf okkar og limi með svipuðum hætti, en hvað eignirnar snertir erum við ekki eins sett . Þeir sem meira eiga fá ljóslega meiri vernd frá ríkinu í formi eignarréttar . Ef menn keyptu þá vernd færi kostnaðurinn án efa eftir umfangi eignanna . Ég hefi áður lýst þeirri skoðun minni að afnám eignarskatts hafi verið mistök, heppilegra hefði verið að hækka skattleysismörk hans og lækka tekjuskatt á móti . Eignarskattur er í raun ,,eignarréttargjald“ og það að sá réttur sé verndaður án endurgjalds eins og t .d . málfrelsi er órökrétt . Kostnaður við að vernda eignir auðmanna fellur nú í raun á almenning . Það er hrópandi ranglæti að þeir sem féflettir hafa verið með eignatilfærslum beri þennan kostnað fyrir fjárplógsmennina . Að auki nær eignarskattur til fjármuna sem skotið er undan eða koma ekki til tekjuskatts . Auðokun og eignarréttur Auðæfi hinna ofríku eru að mestu fengin með eignatilfærslum . Ekki með vinnu og ekki með arðbærum rekstri sem skapar um leið atvinnu handa fólki . Vanhugsuð framkvæmd einkavæðingar, verðbólur á hlutabréfa- og fasteignamarkaði og sjálftaka ofurlauna eru nýleg dæmi . Erfitt er að rekja frá hvaða einstaklingum fé er tekið . Það breytir ekki því að þetta er að ýmsu leyti illa fengið fé . Sumir hafa þegar flutt fé úr landi, en aðrir leitað skjóls innanlands . Þetta þarf að athuga þegar fjallað er um þá vernd sem ríkið lætur þegnum sínum í té með eignarrétti án endurgjalds, en þó með ærnum tilkostnaði . Þess má minnast í því samhengi að slík fjáröflun er ekki háð tekjuskattslagningu og eignarskattur hefur verið lagður af . Það er eingöngu 10% fjármagnstekjuskattur sem nær til þessa fjár og er hann hvergi lægri á byggðu bóli . Endurskoða ber skattkjör þessa fjár og leggja gjald á hreina eign manna, umfram það sem venjuleg fjölskylda þarf sér til viðurværis . Leggja ber hömlur á flutning slíks fjár úr landinu eða leggja tilfinnanleg gjöld á slíka flutninga . Eignarréttargjald Endurgreiða þarf þau háu lán sem ríkið er nú að taka til að bera það tjón sem auðokun hinna ofríku hefur valdið . Tekjum af eignarréttargjaldi, sem er betra nafn á eignarskatt af því að það minnir stöðugt á röksemdirnar fyrir gjaldinu, verði varið til að endurgreiða lánin . Á meðan verður ekki unnt að auka ríkisútgjöld . Varla mun sjá högg á vatni í pyngju hinna ofríku . Fljótlega mun saxast á skuldirnar . Um leið er unnið gegn auðokun, vextir lækka smám saman vegna batnandi stöðu ríkissjóðs, sem aftur veldur vaxandi einkaneyslu og almennri eftirspurn . Atvinnulífið tekur því næst við sér með endurnýjun framleiðslutækja . Alvöru fjárfestar, sem helst er að finna í smærri fyrirtækjum í framleiðslugreinum, færast í aukana og atvinna fer vaxandi . Senn verða mestu erfiðleikarnir að baki og þá má fínstilla eignarréttargjaldið eða hækka skattleysismörk eftir atvikum . Engar sérstakar hættur eru við að taka þetta gjald upp nú . Auðvitað munu hinir ofríku reyna að flytja fé úr landi, en stemma má stigu við því með reglum og eftirliti . Sumum dettur vafalaust í hug að gjaldið drægi úr framtaki og fjárfestingum . Svo er ekki, hinir ofríku eru ekki fjárfestar heldur spákaupmenn . Frekar má reikna með vaxandi fjárfestingum þegar fram í sækir, vegna lækkandi vaxta . R. Ön.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.