Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 41
Þjóðmál VETUR 2008 39
Antonin Scalia, dómari við Hæstarétt Banda ríkjanna
flutti þann 18 . október 2008
fyrirlestur í Háskóla Íslands
í boði laga deildar skólans og
Hæstaréttar Íslands . Til efnið
var aldarafmæli lagakennslu á
Íslandi . Fyrir lesturinn kall aði
hann „Mullahs of the West:
Judges as Moral Arbiters of the
World .“ Hátíðarsal ur HÍ var
troðfullur og gerðu áheyr endur
góðan róm að bráð skemmtilegum fyrir lestr-
inum . Í honum gagn rýndi ræðumaður hvasst
tilhneigingu dóm stóla á Vesturlöndum til
að taka sér vald, sem þeim hefði aldrei verið
fengið, til að setja nýjar reglur undir því yfir-
skini að verið væri að vernda mannréttindi . En
hver er hann þessi beinskeytti og skemmtilegi
ræðumaður?
I
Antonin Scalia er fæddur 1936 og var skip aður dómari við Hæstarétt Banda-
ríkjanna af Ronald Reagan á árinu 1986 .
Hann er þekktur fyrir að skrifa beittan texta
og á auðvelt með að tjá lögfræðilega hugsun
sína á einfaldan og eftirminnilegan hátt .
Meginviðhorfi hans í lögskýringum má lýsa
með þeim orðum að hann telji
lögin, og þá sérstaklega þau lög
sem talin eru öðrum helgari,
stjórnarskrána, segja það sem
þau þýða og þýða það sem þau
segja . Hvorki meira né minna .
Sjálfur lýsir Scalia grunn-
viðhorfi sínu til að ferðafræði við
lögskýringar með því að segjast
vera það sem ensku mælandi
menn kalla „textualist“ . Á
íslensku gæti þetta þýtt að
hann sé maður textans eða orðskýr ing-
anna . Þannig leggur hann áherslu á að við
lögskýringar, sérstaklega á ákvæðum stjórnar-
skrár Bandaríkjanna, eigi menn að einbeita
sér að textanum . Haldi menn því fram að
brotin séu á þeim mannréttindi verði þeir að
finna beina stoð fyrir því í texta réttindakafla
stjórnarskrárinnar (Bill of Rights) að um sé að
ræða réttindi sem njóti verndar . Í því sambandi
telur hann að leita eigi að upprunalegri merk-
ingu textans, það er að segja þeirri merk ingu
sem hann hafði, þegar viðkomandi stjórn-
arskrárákvæði öðlaðist gildi .
Þegar leysa þarf úr álita málum um merk-
ingu texta stjórnarskrár telur hann skipta
máli að athuga laga legar og félagslegar hefðir
í Bandaríkjunum . Hafi til dæmis handhafi
opinbers valds farið með tiltekna valdheimild
Jón Steinar Gunnlaugsson
Antonin Scalia
Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna