Þjóðmál - 01.12.2008, Page 44
42 Þjóðmál VETUR 2008
við réttindaskrá stjórnarskrárinnar (Bill of
Rights), þar sem kveðið er svo á að ekkert
ríkjanna megi svipta menn lífi, frelsi eða
eignum, án málsmeðferðar lögum samkvæmt .
(„nor shall any State deprive any person of
life, liberty or property, without due process
of law“) . Eftir því sem best verður séð byggist
þessi hugmynd á því að til „frelsis“ heyri
réttur til fóstureyðinga og er þá talið að slíkur
réttur sé að efni til varinn af ákvæðinu . Eftir
að Scalia varð dómari hefur nokkrum sinnum
verið fjallað fyrir réttinum um ætlaðan rétt
kvenna til fóstureyðinga . Hann hefur hafnað
því að slíkur réttur sé verndaður af nefndu
ákvæði . Í texta ákvæðisins sé veitt vernd
fyrir málsmeðferð lögum samkvæmt í þeim
tilvikum sem nefnd séu en ekki sé þar kveðið á
um efnislega vernd fyrir tiltekin réttindi . Þessi
ætlaði réttur styðjist heldur ekki við lagahefðir
í Bandaríkjunum enda hafi ýmis ríki þar lagt
hömlur við fóstureyðingum gegnum tíðina og
lagt refsingar við brotum . Hann telur þetta
vera gott dæmi um tilvik þar sem það sé að auki
óframkvæmanlegt fyrir dómstóla að taka sér
svona vald, því að um leið og menn setji reglur
sem verndi rétt kvenna til fóstureyðinga verði
að setja þeim rétti efnislegar takmarkanir, svo
sem um aðferðir við fóstureyðingar, tímalengd
meðgöngu og fleira . Það geti aldrei heyrt
undir dómstóla að setja reglur um slíka hluti .
Raunar reki hvað sig á annars horn í þessum
efnum ef athugaðir séu dómar sem upp hafi
verið kveðnir af Hæstarétti Bandaríkjanna á
þessu sviði undanfarna áratugi . Sýni þetta vel
að lagasetning á sviði fóstureyðinga verði að
vera á verksviði handhafa löggjafarvaldsins,
þar sem unnt sé að taka ákvarðanir um þau
álitaefni sem leysa verði úr þegar kveðið sé á
um réttinn .
Við ofangreinda samantekt er einkum stuðst við
lýsingu á lífsspeki Scalia í 1 . kafla ritsins „Scalia
dissents“ eftir Kevin A . Ring, útg . 2004 .