Þjóðmál - 01.12.2008, Side 45

Þjóðmál - 01.12.2008, Side 45
 Þjóðmál VETUR 2008 43 Gunnar Rögnvaldsson Seðlabankinn og þjóðfélagið Hugleiðingar í tilefni af linnulausum árásum á Seðlabanka Íslands og íslensku krónuna Þokan í Frankfurt er mér minnisstæð því þar fór grátt í grátt svo oft saman og hljóp síðan yfir í blýgrátt við enda dagsins . Ég er að tala um gráu þokuna og gráu steinsteypuna við innkeyrsluna í þýska seðlabankann, Deutsche Bundesbank . Gráar Mercedes Benz bifreiðar komu brunandi upp að varðskýlinu sem ennþá er þarna fyrir framan þennan gráa seðlabanka Þýskalands . Enginn vissi hvort nokkur væri inni í þessum gráu bifreiðum því rúðurnar voru svo dökkar . En stuttu seinna komu nokkrir gráir menn í gráum jakkafötum fram í sjónvarpinu og sögðu aftur nei . Þetta endurtók sig mörgum sinnum í nokkur ár . Nei, nei, engin stýrivaxtalækkun núna . Þetta var bank inn sem gárungarnir kölluðu Bunkers-bankann, með tilvísun í sprengjuheld þýsk stein steypubyrgi úr fyrri styrjöldum sem hafa verið ekki svo fátíðar á þessum slóðum hin síðustu hundrað ár . Nei og aftur nei . Allir biðu í eftirvæntingu, en enginn vissi neitt eða gat gert neitt . Hvað munu þessir gráu menn í þýska seðlabankanum gera núna? Munu þeir lækka vextina? Núna eru engar fréttamyndavélar sem taka mynd af einu né neinu við þennan seðlabanka Þýskalands . Það er vegna þess að hann er búinn að missa það sem honum var svo kært og sem hann varðveitti ef til vill betur en nokkur annar seðlabanki hefur gert, og oft undir erfiðum aðstæðum . Hann missti myntina sína . Elsti starfandi seðlabanki heimsins er sænski seðlabankinn, Sveriges Riksbank, sem tók til starfa árið 1668 . Völd og áhrifamáttur seðlabanka heimsins eru oft stórlega ofmetin . Þá er ekki hægt að segja með vissu að árangur í baráttunni gegn verðbólgu sé meiri eftir að það komst í tísku að seðlabankar yrðu sjálfstæðar og óháðar stofnanir . En þegar illa tekst til við stjórn efnahagsmála er það yfirleitt lenska alls staðar að kenna seðlabönkunum um ófarirnar . Þegar vel tekst til eru það hins vegar ríkisstjórn, atvinnulífið og fyrirtækin sem fá þakkirnar . Seðlabankar gegna mjög mikilvægu hlut- verki . Tilvist þeirra er jafnan til vitnis um að við- komandi ríki sé með sjálfstæða mynt í notkun . Hlutverk seðlabankans er að gæta mynt ar innar . Þess vegna þarf að hlúa vel að seðla bank anum

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.