Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 47

Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 47
 Þjóðmál VETUR 2008 45 Svona fæddust spekúlasjónirnar í huga Andrés Kostolanys . Mikilvægustu verk færi hans voru heilinn og reynslan . André hafði ekki mikið álit á gulldrengjum hlutabréfa- mark að ar ins . Þeir eru spilafíklar, sagði hann . Árangur þeirra er enginn til lengri tíma litið . Seðlabankinn og gjaldþrot ríkja Þegar André Kostolany vann sem verðbréfasali hjá þekktu bandarísku fjármálafyrirtæki í París sinnti hann mörgum frægum og sérvitrum viðskiptavinum . Einn þessara erfiðu viðskiptavina keypti oft frönsk ríkisskuldabréf . Hann krafðist þess alltaf að André sæi um þau kaup . Hvers vegna? Jú, vegna þess að hann treysti ekki franska ríkinu . Hann vildi að André skrifaði undir sem ábyrgðarmaður ef svo færi að franska ríkið yrði gjaldþrota og ófært um að greiða skuldabréfin . Þetta gerði André Kostolany með glöðu geði . Af hverju gerði hann það? Jú, sagði André, ríki fara ekki á hausinn, þau fella bara gengið! André Kostolany var viss í sinni sök . Engin ríki munu gera sig gjaldþrota . Þau munu fella gengið, sama hvað hver segir . Fella gengið og þannig vinna sig út úr vandræðum . En hvað skyldi André Kostolany hafa gert í dag? Hefði hann þorað að skrifa uppá fyrir franska ríkið? Núna getur franska ríkið nefnilega ekki fellt gengið . Það er horfið . Það fór með seðlabankanum . Seðlabanki Frakklands er ekki lengur við lýði . Hann er farinn úr landi – og þar með erum við komin að kjarna þessarar greinar . Hvað gerist þegar virkur seðlabanki þjóðfélagsins deyr? Þegar seðlabankinn í Danmörku fór til Þýskalands Hvernig þætti þér lesandi góður að búa við vaxtastig og lánskjör sem eru ekki í neinu samhengi við hinn efnahagslega raunveruleika í því þjóðfélagi sem þú býrð í, starfar eða rekur fyrirtæki? Hvorki í samhengi við verðbólgustig, atvinnustig, eftirspurn, framboð né gengi gjaldmiðils þíns? Eina samhengið sem þú gætir fundið við raunveruleikann væri eitt orð á blaði – „fastgengi“ . Þetta gerðist í Dan mörku árið 1982 . Þá var ákveðið með einu pennastriki að afnema hinn efnahagslega raunveruleika, ef svo má segja, og taka upp efnahagsstjórn sem mætti líkja við það að aka bifreið án útsýnisglugga . Þeir gangandi vegfarendur sem yrðu á vegi manns yrðu keyrðir miskunar laust niður . Öðru hverju myndi maður stoppa til að athuga hvort maður væri á réttri leið sam- kvæmt stöðu á staðsetningartæki í bifreiðinni . Það var svona sem hagstjórnin var í Dan- mörku á upphafsárum hinnar svoköll uðu fast- gengisstefnu og á þeim næstu 15 árum sem fylgdu . Með einni pólitískri ákvörðun var mælt svo fyrir, að gengi dönsku krónunnar ætti að fylgja gengi þýska marksins . Til þess að svo gæti orðið þurftu stýrivextir að vera svo miklu hærri en þeir annars hefðu þurft að vera, því það var hátt stýrivaxtastig sem átti að verja þessa einhliða bindingu við gjaldmiðilinn í Þýskalandi og átti að sjá til þess að það kæmi sem mestur erlendur gjaldeyrir í gjaldeyrisforðann í Danmörku, sem svo var notaður til þess að kaupa og selja krónur og erlendan gjaldeyri til varnar „föstu gengi“ við Þýskaland . Seinna meir varð þessi binding gagnkvæm . Fyrstu 7 árin, frá október 1983 fram til mars 1990, voru stýrivextir fastir 7,5% . Það var sem sagt engin stýrivaxtabreyting í heil 7 ár . Afleiðingarnar voru hörmulegar . Árið 1982 var ekki gott efnahagsástand í Danmörku . Olíukreppa hafði leitt til verðbólgu og stöðnunar og mikils halla á greiðslujöfnuði . Gegndarlaus skuldasöfnun og eyðslusemi ríkisstjórnar Ankers Jørgensens gerði illt verra . Við upphaf fastgengisstefnunnar voru um 250 .000 Danir atvinnulausir . En 12 árum seinna voru þeir orðnir 350 .000 talsins . Þær skatttekjur sem hefðu getað komið frá þessum 250–350 þúsund einstaklingum hefðu nægt til þess að greiða vexti af öllum erlendum skuld- um danska ríkisins . Mest varð atvinnuleysið árið 1994 þegar 12% vinnufærra manna þáðu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.