Þjóðmál - 01.12.2008, Page 48
46 Þjóðmál VETUR 2008
at vinnu leysisbætur frá ríkinu . Verðbólgan á
þessum tíma var aðeins um 1,5% . Enginn
hafði efni á því að kaupa vörur og þjónustu og
fyrirtæki í þeim geira lögðu unnvörpum upp
laupana . Samkeppnin varð svo hörð að eftir
stóðu aðeins tvær keðjur í matvöruverslun .
Síðan hefur fákeppni verið ríkjandi á flestum
sviðum verslunar og þjónustu . Þótt verðbólga
væri aðeins 1,5% voru stýrivextir árum
saman á bilinu 9–11% . Allt tímabilið 1982–
1996 voru stýrivextir í Danmörku nánast
í engu samræmi við verðbólgu í landinu .
Engu var hægt að stýra nema með aðgerðum
í ríkisfjármálum og höftum frá yfirvöldum .
Lánafyrirgreiðsla var mjög erfið því vextir
voru svo háir að arðsemi fjárfestinga gat ekki
borið þessa vaxtabyrði . Fjárfestingar drógust
saman og neysla minnkaði, því laun voru
frosin föst vegna offramboðs á vinnuafli .
Öllu var stýrt með álögum, refsingum og
afskiptasemi ríksins sem þandist út eins og
stór blaðra . Í þessu ferli urðu til svo mörg
„léleg“ störf og „léleg“ afleidd störf að það
hefur heft stórkostlega allan hagvöxt allar
götur síðan .
Það er mín skoðun og persónuleg reynsla
sem atvinnurekandi í Danmörku að á þessum
árum hafi danskt þjóðfélag verið stórskaðað
til langframa . Enda hefur Danmörk hrapað
neðar og neðar á skala OECD yfir ríkustu
þjóðir heims . Hagvöxtur Danmerkur síðustu
14 árin er sá sjötti lélegasti í OECD .
Eyðileggingin er núna komin vel í ljós, var-
an leg framfærslubyrði hins opinbera er mörg-
um sinnum þyngri en ella hefði verið, því at-
vinnuleysið hafði þau áhrif að ýta þurfti mikl-
um fjölda fólks út af vinnumarkaðnum og yfi r
í allskonar kassageymslur hins opinbera . Fólki
var „kennt“ að vera atvinnulaust og það var
farið að líta á atvinnuleysi nánast eins og nýjan
lífsstíl . Fyrir vikið hefur vinnuafl Dan merk ur
minnkað varanlega . Það lítur að sjálfsögðu vel
út á pappírnum, því opinbert atvinnuleysi er
minna í prósentum . En afleiðingin er sú að
þjóðarframleiðslan getur varla aukist þegar
atvinnuástand batnar og eftirspurn eykst eftir
þeim vörum og þjónustu sem þjóðfélagið
framleiðir . Jafnframt er erfitt um vik að lækka
tekjuskatt á einstaklinga sem er ennþá sá hæsti
í heimi . Vélin í samfélaginu var minnkuð,
Ver bólga / St rivextir / Atvinnuleysi í Danmörku 1976-2007
Fastgengi hefst 1982. St rivextir óbreyttir næstu 7 ár
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
19
76
19
77
19
78
19
79
19
80
19
81
19
82
19
83
19
84
19
85
19
86
19
87
19
88
19
89
19
90
19
91
19
92
19
93
19
94
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
Ár
P
ró
se
n
t
Ver bólga
St rivextir
Atvinnuleysi