Þjóðmál - 01.12.2008, Side 53

Þjóðmál - 01.12.2008, Side 53
 Þjóðmál VETUR 2008 51 framfærslubyrði íslenska ríkisins er mjög létt miðað við framfærslubyrði ríkissjóða evrusvæðisins, þar sem flestar lífeyrisgreiðslur framtíðarinnar hvíla á herðum skattgreiðenda . En margir telja að Trichet hafi rangt fyrir sér því verðbólga hafi ekki verið og sé alls ekki vandamál sem evrópski seðlabankinn þurfi að taka á . Síðustu tvær vaxtahækkanir þessa seðlabanka mældust illa fyrir hjá mörgum á evrusvæðinu og í raun víðar í heiminum . Það eru því margar raddir sem halda því fram að hér hafi bankinn étið upp þó nokkurn hluta af þeirri pólitísku viðskiptavild sem hann á ennþá eftir inni hjá 27 ríkisstjórnum Evrópusambandsins . Gagnrýnendur segja að kjarnaverðbólga hafi alls ekki sýnt að þurft hafi að framkvæma tvær síðustu stýrivaxtahækkanir og þetta hafi haft ónauðsynlega neikvæð áhrif á efnahag evrusvæðisins, veikt hann að óþörfu andspænis áhrifum þess efnahagslega fárviðris sem síðan skall á fjármálamörkuðum myntsvæðisins . Hið stóra verkefni seðlabankans á næstu árum verði ekki verðbólga heldur vítahringur verðhjöðnunar . Þessi gagnrýni kom ekki til umræðu í neinum þingsölum, mér vitandi . Áköfustu umræðurnar um ákúrur þessa fjarlæga seðlabanka evru fóru fram á blaðsíðum al- þjóðlegra tímarita um efnahags- og fjármál og svo einnig á bloggsíðum hagfræðinga sem eng inn stjórnmálamaður les . En hvað ætti svo sem að ræða? Það þarf undirskriftir allt að 27 rík isstjórna til að breyta einhverju um „gegn- sæi ákvarðanatökuferlis“ seðlabanka evrunn- ar . Bank inn hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að vera einmitt lokaður og ógagnsær . Ekki er líklegt að neinn fjármálaráðherra ríkjanna 27 nenni að láta vekja sig um miðja nótt til að ræða áhyggjur fjármálaráðherra eins lands sem lendir í útistöðum við eða er ósáttur við ákvarðanir seðlabanka evrunnar . Langur og strangur er vegur breytinga í svona samsteypum . Þetta ætti varla vel við smáþjóðir á borð við Íslendinga . Á undanförnum árum hafa Íslendingar undirstrikað og margsannað að stuttur og skjótur ákvarðanatökuferill er lykillinn að góðu gengi í efnahagsmálum, því best er að taka á vandamálum strax og bregðast við áskorunum hratt . Langhlaup en ekki spretthlaup Völd og áhrifamáttur seðlabanka eru ekki mikil þó svo að flestir sem þekkja lítið til starfsemi seðlabanka haldi að sú sé raunin . Þessvegna eru væntingar leikmanna til seðlabanka stundum broslegar . Seðlabankar geta yfirleitt aldrei beitt öllum vopnum sínum í einu því þau útiloka oftast að mörgu leyti hvert annað . Í opnum hagkerfum er ekki hægt að stýra á sama tíma þáttum eins og vöxtum/verðbólgustigi, gengi og frjálsum fjár- magnshreyfingum . Seðlabankar geta í mesta lagi unnið að tveimur af þessum þremur markmiðum í einu og jafnvel það getur reynst þeim afar erfitt . Þetta höfum við greinilega séð í þessari kreppu sem nú er hafin og einnig þegar gjaldmiðlasamstarf Efnahagsbandalagsins hrundi til grunna á árunum 1990–1993 . Það er einnig alls óvíst að lækkun stýrivaxta nái tilætluðum árangri ef bankakerfið er almennt illa farið vegna áfalla . Við slíkar aðstæður mun lækkun stýrivaxta skila sér illa til fyrirtækja og þegna samfélagsins nema kannski á Íslandi, þar sem verðtrygging skapar bankakerfinu visst öryggisnet í langtímaskuldbindingum og eykur framboð á lánsfé . Það er því mikilvægt að ekki sé unnið á móti seðlabankanum . Einnig er nauðsynlegt að sköpuð sé velvild hjá almenningi til seðlabankans með því að þröngva honum ekki út í horn sem mun þvinga hann til óvinsælla aðgerða . Þetta hefur að mínu mati gerst á Íslandi . Nánast allir sem hafa haft til þess tækifæri hafa unnið á móti stefnu Seðlabanka Íslands: Bankar, fjármálastofnanir, ríkisstjórn, þingheimur, fjölmiðlar og hagsmunasamtök . Afleiðingarnar blasa við . Fólk verður að gera sér grein fyrir því, að það er hlutverk seðlabanka að verja stefnu sína með öllum tiltækum ráðum . Hagfræðingar Seðlabanka Íslands hafa ítrek-

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.