Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 72
70 Þjóðmál VETUR 2008
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Í þjálfunarbúðum
byltingarmanna
Íslendingar í Lenínskólanum og
Vesturskólanum í Moskvu
Íbók Þórs Whiteheads um Kommúnista-hreyfi nguna á Íslandi 1921–1934 eru taldir
upp fimmtán Íslendingar, sem eiga að hafa
verið í leynilegum flokksskólum Kominterns í
Moskvu árin milli stríða: Aðalbjörn Pétursson,
Andrés Straumland, Angantýr Guðmunds-
son, Ásgrímur Albertsson, Dýrleif Árnadóttir,
Eggert Þorbjarnarson, Hallgrímur Hallgríms-
son, Helgi Guðlaugsson, Jens Figved, Kristján
Júl íusson, Lilja Halblaub, Skafti Einarsson,
Stein grímur Aðalsteinsson, Stefán Pjetursson
og Þóroddur Guðmundsson .1 Heimildir Þórs
voru aðallega samtöl við gamla kommúnista,
en einnig er minnst á Moskvudvöl einhverra
þessara manna á prenti . Var vel af sér vikið að
afla upplýsinga um svo margt fólk án aðgangs
að skjalasafni Kominterns í Moskvu, en bók
Þórs kom út 1979 . Þegar safn Kominterns
1 Þór Whitehead: Kommúnistahreyfingin á Íslandi 1921-
1934, Reykjavík, 1979, bls . 55 . Ég þakka dr . Arnóri
Hannibalssyni prófessor, Ólafi Grími Björnssyni lækni
og Snorra G . Bergssyni sagnfræðingi fyrir margvíslegar
upplýsingar og ábendingar vegna þessarar ritgerðar .
Skammstafanir eiga allar að vera augljósar (Mbl. er t . d .
Morgunblaðið), og stafsetning er samræmd, nema annað sé
tekið fram .
opn aðist eftir hrun Ráðstjórnarríkjanna
1991, bætti Jón Ólafsson, sem kannaði skjöl í
Moskvu og skrifaði um flokksskólana þar, við
nöfnum fjögurra nemenda, Eyjólfs Árna sonar,
Guðrúnar Rafnsdóttur, Jafets Ottós sonar og
Haralds Bjarnasonar,2 en einnig höfðu Benja-
mín Eiríksson og Ásgeir Blöndal Magn ús-
son skýrt frá því opinberlega, að þeir hefðu
verið á slíkum skólum .3 Hér verða nefndir
þrír nemendur aðrir í þessum leyniskólum í
Moskvu, Hjalti Árnason, Jóhannes Jósepsson
og Elísabet Eiríksdóttir, en heimildir um þau
höfðu farið fram hjá Jóni Ólafssyni, þótt til-
tækar væru . Einnig skulu lögð fram gögn um
það, að Aðalbjörn Pétursson hafi ekki gengið í
neinn skóla Kominterns í Moskvu . Er þá alls
vitað um 23 Íslendinga í þessum leyniskólum .
2 Jón Ólafsson: „Í læri hjá Komintern,“ Ný saga, 9 . árg .
(1997), bls . 4-15; Jón Ólafsson: Kæru félagar, Reykjavík
1999 . Áður hafði Árni Snævarr skrifað nokkuð um
flokksskólana í bókinni Liðsmenn Moskvu, Reykjavík 1992,
í ljósi þeirra skjala, sem Jón hafði aflað í Moskvu .
3 Benjamín segir frá skólavist sinni og minnist á Ásgeir
Blöndal í bókinni Benjamín H. J. Eiríksson í stormum sinnar
tíðar, Reykjavík 1996, sem ég skrásetti, en sjálfur hafði
Ásgeir Blöndal greint frá skólavistinni í Moskvu í Æviskrám
MA-stúdenta, 1 . b ., Reykjavík 1988, bls . 358-9 .