Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 81
Þjóðmál VETUR 2008 79
þykkti 8 . júní 1934 að veita honum stranga
viðvörun . Hann fengi þriggja mánaða frest til að
leiðrétta afstöðu sína, en að því liðnu yrði mál
hans tekið til endanlegrar afgreiðslu . En aftur
kom Stefáni illa, að leyniþjónusta Kremlverja
hafði nánar gætur á öllum útlendingum .
Hann bjó ásamt sænskum kommúnista, Tage
Larsson, í heimavist við Gerzen-götu í Moskvu .
Þeir höfðu dulnefni eins og aðrir nemendur
Lenínskólans, og kallaðist Stefán Jón Helgason
og Larsson Oman . Þeir herbergisnautar fengu
sér stundum saman í staupinu . Eftir að þeir
höfðu setið að sumbli langt fram á aðfaranótt
29 . júní, tilkynnti húsvörður það starfsmanna-
deild Kominterns (sem starfaði í nánum tengsl-
um við leyniþjónustuna og var í rauninni arm ur
hennar inn í Komintern) . Larsson var kall aður
til yfirheyrslu í starfsmannadeildinni 1 . júlí . Þá
sagði hann, að Stefán hefði gerst opinskár við
sig, þegar þeir sátu að sumbli . „Ég berst fyrir
verkalýðshreyfinguna, og það er ekki endilega
það sama og að berjast fyrir Komintern,“ hafði
hann eftir Stefáni . „Komintern er að eyðileggja
flokkinn,“ sagði Stefán honum . „Ég fer heim
til að berjast opinskátt gegn Komintern .“ Þegar
Larsson efaðist um, að hinum íslenska félaga
sínum yrði leyft að fara heim, sagði Stefán,
að til væru aðrar leiðir til að komast burt .
Gaf hann í skyn, að hann gæti fengið aðstoð
danska sendiráðsins . Maðurinn, sem yfir heyrði
Larsson, skrifaði samdægurs Otto Kuusinen
í framkvæmdanefnd Kominterns, skýrði frá
niðurstöðum og sagði: „Ég bið yður um að
gefa mér fyrirmæli yðar, hvað gera skuli við
HELGASON . Ef til vill ætti að senda hann
til framleiðslustarfa í Sovétríkjunum .“ Með
orðunum „framleiðslustörfum“ var eflaust átt
við nauðungarvinnu einhvers staðar í Síberíu .58
Samþykkt var þremur dögum seinna, 3 . júlí
1934, að reka Stefán úr kommúnistaflokknum
(en raunar hafði hann áður verið rekinn úr
honum heima á Íslandi) .59 Stefán sá sitt óvænna
og gerði alvöru úr því, sem hann hafði gefið
í skyn í spjallinu við Larsson, og leitaði til
58 Arnór Hannibalsson: Moskvulínan, bls . 133-9 .
59 „Stefán Pétursson [svo] rekinn úr
kommúnistaflokknum,“ Abl. 5 . maí 1934 .
danska sendiráðsins í Moskvu . Þar var honum
sagt, að hann skyldi ekki sækja neinn farangur
á heimavistina við Gerzen-götu, heldur flýta
sér úr landi . Útbjó sendiráðið fyrir hann falsað
vegabréf, og tókst honum að komast með það
í höndunum til Finnlands og þaðan til Íslands .
Hefur það eflaust bjargað lífi hans .60 Um haustið
sótti Stefán ásamt Steini Steinarr um inngöngu
í Jafnaðarmannafélag Íslands .61 Gerðist Stefán
blaðamaður á Alþýðublaðinu og síðar ritstjóri
þess . Hann var um skeið þjóðskjalavörður .62
Hvaða Íslendingar voru í Lenínskólanum
um leið og Stefán? Hér hefur þegar einn verið
nefndur, Kristján Júlíusson . Hann fæddist
á Húsavík 1906 og var einn af stofnendum
Kommúnistaflokks Íslands . Reit hann fundar-
gerð stofnfundar flokksins . Hann fór í verka-
mannasendinefnd til Ráðstjórnarríkjanna
1931 .63 Kristján var bátasmiður á Húsavík og
nokkrum sinnum í framboði í Norður-Þing-
eyjar sýslu fyrir Sósíalistaflokkinn . Hann fluttist
síðar til Reykjavíkur, þar sem hann keypti
gömul hús og gerði upp . Varð hann efnaður
maður . Hann brá þó ekki stuðningi við Stalín
og kostaði 1975 útgáfu ævisögu hans eftir J . T .
Murphy, sem Sverrir Kristjánsson þýddi . Hann
gaf Öryrkjabandalaginu og Blindrafélaginu
nokkrar íbúðir . Líklega hefur Kristján verið í
Lenínskólanum frá því snemma árs 1933 og
fram á vorið 1934 . Hann lést 1988 .64 Einnig er
sennilegt, að Skafti Einarsson hafi verið einhvern
60 Frásögn Péturs Thorsteinsson sendiherra eftir
Aðalgeiri Kristjánssyni . Morgunblaðið greindi frá því
í „Reykjavíkurbréfi“ 23 . september 1934, að danski
sendiherrann í Moskvu hefði bjargað Stefáni úr landi . Sbr .
einnig Kai Moltke: Stalins Gengangere, København 1970,
bls . 20, þar sem segir frá flótta Stefáns, sem Moltke (sem þá
var í Moskvu) vissi af .
61 „Komnir heim til föðurhúsanna,“ Rauði fáninn, 6 . árg .
12 . tbl . (október 1934), bls . 1 .
62 „Stefán Pétursson [svo],“ Verkamaðurinn 27 . október
1934 . Þar segir, að Stefán sé orðinn aðstoðarritstjóri
Alþýðublaðsins . Aðalgeir Kristjánsson: „Stefán Pjetursson fv .
þjóðskjalavörður,“ Mbl. 26 . apríl 1987; Benedikt Gröndal:
„Stefán Pjetursson þjóðskjalavörður,“ Mbl. 22 . maí 1987 .
63 „Dagbók,“ Mbl. 9 . október 1931 [Mishermi] .
64 Haraldur Jóhannsson: „Kristján Júlíusson bátasmiður,“
Mbl. 15 . september 1988 . Í greininni segir, að Kristján hafi
dvalið á annað ár í Ráðstjórnarríkjunum . Þar eð hann kom
væntanlega heim vorið 1934, hefur hann því væntanlega
farið utan í ársbyrjun 1933 .