Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 84
82 Þjóðmál VETUR 2008
anum í Moskvu 1934–1935 . Hann fæddist
1911 og tók gagnfræðapróf frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1931 . Hann var kominn
til Reykjavíkur, væntanlega frá Moskvu, 13 .
september 1935 .80 Jóhannes var formaður Fé-
lags ungra kommúnista í Reykjavík 1937–
1938, en fluttist síðan til Akureyrar, þar sem
hann stundaði ýmis störf, síðast sem skrifstofu-
maður hjá Möl og sandi, en gegndi einnig verk-
efnum fyrir sósíalista, þótt hann léti fara lítið
fyrir sér . Hann lést 1995 .81
Tímabilið 1936–1938
Benjamín Eiríksson sagði frá Moskvudvöl sinni í minningabók, sem ég skrásetti eftir
honum 1996 . Hafði Brynjólfur Bjarnason
haft milligöngu um, að hann fengi námsvist í
Moskvu, en Einar Olgeirsson verið því heldur
mótfallinn, því að hann vildi, að Haukur
Siegfried Björnsson færi austur . Benjamín
fæddist í Hafnarfirði 1910 . Eftir stúdentspróf
1932 hóf hann nám í Berlín, en færði sig til
Stokkhólms haustið 1933, eftir valdatöku
þjóð ernis jafnaðarmanna, nasista, í Þýskalandi .
Sum arið 1935 sigldi Benjamín frá Stokkhólmi
til Helsinki og fór síðan landleiðina til Rúss-
lands, en þangað kom hann 10 . júní 1935 .
Benjamín settist þó ekki á skólabekk fyrr en um
haustið, í framhaldsdeild Vesturskólans fyrir
þýsku mælandi nemendur, enda talaði hann
þýsku reiprennandi eftir dvöl sína í Þýskalandi .
Í skólanum gekk hann undir dulnefninu Erik
Torin . Fulltrúi leyniþjónustunnar þar í skóla
var Letti að nafni Balint . „Já,“ sagði hann
glaðlega, þegar Benjamín hitti hann fyrst og
benti á Ísland á landabréfi . „Þarna á ég marga
frábæra vini .“82 Benjamín kvaðst sannfærður
um það, að Eggert Þorbjarnarson hefði lesið
allan póst frá sér og til sín, þótt hann vissi engar
sönnur á því . Í framhaldsdeild Vesturskólans
80 Lbs . án safnmerkis . Fundargjörðabók Félags ungra
kommúnista í Reykjavík .
81 Hólmsteinn T . Hólmsteinsson: „Jóhannes Jósepsson,“
Mbl. 27 . október 1995 .
82 Hannes H . Gissurarson: Benjamín H. J. Eiríksson í
stormum sinna tíða, Reykjavík 1996, bls . 131 .
kynntist Benjamín í árslok 1935 þýskri stúlku,
Veru Hertzsch, sem varð unnusta hans . Hún
var sannfærður kommúnisti og hafði flust til
Ráðstjórnarríkjanna 1927 og gifst þar manni af
Gyðingaættum, er nefndist Abram Rozenblum .
Þau voru skilin, þegar þau Vera og Benjamín
hittust, en bjuggu á sama stað . Vesturskólanum
var lokað haustið 1936, en Benjamín komst
ekki frá Ráðstjórnarríkjunum fyrr en 5 .
desember það ár . Þá var Vera þunguð að barni
þeirra, en þeim fæddist dóttir í mars 1937, og
hlaut hún nafnið Sólveig Erla . Eins og komið
hefur fram, varð Halldór Kiljan Laxness vitni
að handtöku Veru vorið 1938, líklega 13 . mars,
þótt hann skýrði ekki frá því opinberlega fyrr
en aldarfjórðungi síðar . Vera lést í fangabúðum
í Kasakstan 1942, og er líklegt, að dóttir þeirra
Benjamíns hafi látist fyrr af vosbúð .83 Benjamín
tók þátt í starfi Sósíalistaflokksins, en gekk úr
honum með Héðni Valdimarssyni og fleiri
mönnum 1939 . Hann stundaði eftir það
framhaldsnám í hagfræði í Bandaríkjunum,
lauk doktorsprófi frá Harvard-háskóla og gerðist
ráðunautur ríkisstjórnar Íslands og bankastjóri
Framkvæmdabankans . Hann lést 2000 .
Hjalti Árnason var í Lenínskólanum 1935–
1936 samkvæmt upplýsingum Hendriks
Siemsens Ottóssonar í minningargrein um
hann . Hjalti fæddist 1903 og var frá Höfða-
hólum í Húnaþingi . Hann sat í miðstjórn
kommúnistaflokksins, að minnsta kosti frá
1932,84 en ekki eru upplýsingar um það, hverjir
sátu í miðstjórn flokksins 1935–1937, þótt
líklegt sé, að hann hafi verið í þeim hópi . Hjalti
hefur því væntanlega verið „félagi Johnson“, sem
heimildir eru til um úr skjalasafni Kominterns,
en ákveðið var að senda þann mann til Íslands
sumarið 1936 til að gefa íslenska flokknum
línuna . Einnig má ætla, að þetta sé sami maður
og gekk undir dulnefninu „Jon Jonsson“ í
83 Hannes H . Gissurarson: Kiljan, Reykjavík 2004, bls .
237-40 .
84 Lbs . 5228 4to, a-b . Komintern: 495 177 20, 82-86 .
Brynjólfur Bjarnason/Komintern, Rvík 3 . desember 1932 .
Þar er talin upp miðstjórn flokksins . Í minningargrein um
Hjalta í Þjv. 5 . júlí 1961 sagðist Guðjón Bene diktsson
einnig hafa setið með honum í miðstjórn kommún ista-
flokksins .