Þjóðmál - 01.12.2008, Qupperneq 86

Þjóðmál - 01.12.2008, Qupperneq 86
84 Þjóðmál VETUR 2008 ínskólamanns, Steingríms Aðalsteinssonar, og ein dreginn kommúnisti . Hún var til dæmis 1939 í minni hluta flokksstjórnar Sósíal ista flokks ins, sem vildi (ásamt Brynjólfi Bjarna syni, Einari Olgeirssyni, Gunnari Benedikts syni, Halldóri Kiljan Laxness, Þóroddi Guð mundssyni, Jóni Rafnssyni og Pétri Laxdal) reka Benjamín H . J . Eiríksson eftir skrif hans um eðli seinni heimsstyrjaldarinnar í nóvember það ár .94 Hún var formaður Einingar til 1959, en lést 1971 . Ásgeir Blöndal Magnússon var í Lenín- skól an um 1937–1938 . Einnig má tímasetja Moskvu dvöl hans . Á fundi Félags ungra komm únista í Reykjavík 26 . febrúar 1937 þurfti að kjósa nýjan formann í stað hans, því að hann væri farinn „til útlanda“ . Hann var hins vegar kom nn á fund í félaginu og flutti erindi um Bjarma landsdvöl sína 6 . apríl 1938 .95 Ásgeir sagði hvergi neitt opinberlega um Moskvudvöl sína, svo að ég viti, en hann hefði eflaust haft frá mörgu að greina, því að hreinsanir Stalíns stóðu þá sem hæst, og bar margt til tíðinda . Fyrstu mánuðina, sem Ásgeir var í Moskvu, bjuggu þar tveir aðrir Íslendingar, Eggert Þorbjarnarson, sem hélt heim haustið 1937, og Eymundur Magnússon prentmyndasmiður, sem hafði verið þar frá 1935, en hann sneri til Íslands í október 1937 .96 Eymundur þekkti mjög vel barnsmóður Benjamíns Eiríkssonar, Veru Hertzsch, sem hvarf í mars 1938 . Heldur hefur verið tómlegt í Lenínskólanum veturinn, sem Ásgeir var þar, því að það var síðasta starfsár skólans, 1937–1938, en langflestir karlkyns nemendur voru sendir vorið 1937 til Spánar til að berjast í borgarastríðinu þar . Ásgeir fæddist 1909 og var rekinn úr Menntaskólanum á Akureyri fyrir stjórnmálastarfsemi á síðasta námsári sínu þar haustið 1930 . Hann lauk stúdentsprófi tólf árum síðar og eftir það cand . mag . prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands og 94 „Átta „sanntrúaðir“? í miðstjórn kommúnista,“ Mbl. 21 . nóvember 1939 . 95 Lbs . án safnmarks . Fundargjörðabók Félags ungra kommúnista í Reykjavík . 96 Upplýsingar Ólafs Gríms Björnssonar, sem fékk að sjá vegabréf Eymundar . gerðist starfsmaður Orðabókar Háskólans og síðar ritstjóri hennar . Hann lést 1987 .97 Samkvæmt upplýsingum Þórs Whiteheads stunduðu þrír aðrir Íslendingar, raunar allir Siglfirðingar, nám í skólum Kominterns í Moskvu á fjórða áratug, þótt ekki sé nákvæmlega vitað, hvenær það var: Aðalbjörn Pétursson, Ásgrímur Albertsson og Angantýr Guðmundsson .98 Líklega er Moskvunám Aðalbjarnar Péturssonar eitthvað málum blandið . Hann fór vissulega í tveggja mánaða ferð um Ráðstjórnarríkin sumarið 1930 og skrifaði um það bókina Rússland í dag . En engar heimildir eru til um, að hann hafi dvalist lengur þar eystra, en nægar um, að hann lét að sér kveða á Akureyri og Siglufirði á fjórða áratug, að því er virðist óslitið . Hann sagði síðan sjálfur í viðtali við Þjóðviljann á fertugsafmæli sínu 1942, að hann hefði aðeins farið til Ráðstjórnarríkjanna í þetta eina skipti .99 Heimildarmenn Þórs Whiteheads hafa vitað, að Aðalbjörn var um skeið í Rússlandi, og líklega dregið þá ályktun, að hann hafi verið þar í skóla eins og svo margir aðrir kommúnistar . Nokkur vafi leikur einnig á því, hvort Ásgrímur Albertsson hafi verið í skóla í Moskvu . Hann sagði ættingjum sínum, að hann hefði verið á verkalýðsskóla í Svíþjóð 1938 . Það gæti auðvitað verið skóli í Moskvu, en sá hængur er á, að skólar Kominterns fyrir útlenda byltingarmenn voru lokaðir 1938, eftir hinar miklu hreinsanir Stalíns . Hugsanlegt er, að heimildarmenn Þórs Whiteheads hafi vitað, að Ásgrímur var um skeið erlendis í einhvers konar verkalýðsskóla, og dregið þá ályktun, að hann hafi verið í Moskvu eins og svo margir aðrir félagar þeirra . Ekki verður þó að sinni úr þessu skorið . Hvað sem því líður, fæddist Ásgrímur Albertsson á Búðarnesi í Súðavík við Álftafjörð 1914 . Hann fluttist til Siglufjarðar 97 Æviskrár MA-stúdenta, 1 . b ., Reykjavík 1988, bls . 358- 9 . Sjá einnig minningargreinar um Ásgeir í Þjv. 5 . ágúst 1987 e . Jakob Benediktsson, Jón Aðalstein Jónsson, Árna Böðvarsson, Harald Jóhannsson, Gunnlaug Ingólfsson og Mörð Árnason . 98 Þór Whitehead: Kommúnistahreyfingin á Íslandi, bls . 55 . 99 „Aðalbjörn Pétursson fertugur,“ Þjv. 28 . ágúst 1942 (viðtal) . Sjá minningargreinar í Þjv. 20 . janúar 1955 eftir Brynjólf Bjarnason o . fl .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.