Þjóðmál - 01.12.2008, Page 88
86 Þjóðmál VETUR 2008
óeirðum, uppþotum og götubardögum, stjórna
útifundum og hleypa þeim upp . Áhersla var lögð
á að uppræta með nemendum alla sjálfstæða
hugsun og innræta þeim skilyrðislausa hlýðni
við Komintern . Gera átti úr þeim samvirka
heild . Verkleg kennsla var í götubardögum og
skæruhernaði tvisvar í viku, en vikulega var
æfð skotfimi með skammbyssum, vélbyssum
og fótgönguliðsbyssum .108 Einn kennari skól-
ans, finnski kommúnistinn Tuure Lehén,
sem gekk undir dulnefninu Alfred Langer og
var kvæntur Herttu Kuusinen (dóttur Otto
V . Kuusinen), hafði tekið saman handbók,
Veginn til sigurs, um byltingarstarfsemi . Þar
voru kaflar um skemmdarverk, skæruhernað
og vopnaðar uppreisnir . Mælti Lehén með að
efna til verkfalla fyrir valdatöku kommúnista
í því skyni að mynda öngþveiti, velja tíma,
sem kæmi andstæðingunum að óvörum,
og leggja fyrst undir sig þau svæði, þar sem
kommúnistar væru sterkastir, og uppræta þar
alla andstöðu, en víkka síðan smám saman út
yfirráðasvæðið . Varaði Lehén sérstaklega við
allri linkind . Þessi handbók var strangleynileg,
og er talið, að aðeins hafi tvö eintök komist út
fyrir veggi Lenínskólans . Sænskur kommúnisti,
sem hefur væntanlega setið í Norðurlandaskor
Lenínskólans ásamt Íslendingum, sagði frá
þjálfun nemenda í byltingarstarfsemi .109 Finnar
voru hins vegar í sérstakri skor, og má ætla, að
þeir hafi fengið enn rækilegri þjálfun í hernaði .
Furðu sætir, að Jón Ólafsson skuli ekki
hirða um þessar heimildir, sem birtust þó hér
á Íslandi . Raunar kemur þetta allt líka fram
í verkum manna, sem Jón vitnar sjálfur í, til
108 „Í hvaða bekk var Þóroddur? Þeir fengu tilsögn í
götubardögum,“ Mbl. 15 . apríl 1948, en heimild blaðsins
var sænskur nemandi í skólanum, sem sagði Göteborgs
Handels & Sjöfartstidning frá reynslu sinni .
109 „Kennslubók í ofbeldi,“ Mbl. 15 . desember 1949, en
heimild blaðsins var Herbert Tingsten, ritstjóri Dagens
Nyheter, sem hafði eitt eintak handbókarinnar í vörslu
sinni; „Meðal annarra orða . . . Kommúnistabókin: Mannúð
er vítaverð,“ Mbl. 16 . desember 1949 (frásögn af bók
Lehéns) . „Íslenskir kommúnistar hafa sótt njósnaskólann
í Moskvu,“ Mbl. 13 . desember 1958, en heimild blaðsins
var nýútkomin bók eftir Arvo Tuominen, Kremls klockor
(Stockholm 1957) . Sbr . um Lehén „My Love is like a
Red, Red Rose,“ Time 8 . nóvember 1948; „Humanität ist
gefährlich,“ Spiegel 11 . maí 1950 .
dæmis Woodfords McClellans .110 Hér skal nefnt
annað dæmi um tilhneigingu Jóns Ólafsson ar
til að reyna að gera þessar þjálfunarbúðir að
meinlausum fræðslustofnunum . Í Nýrri sögu
rekur Jón í stuttu máli feril tveggja félaga úr
Vesturskólanum, þeirra Þórodds Guð munds-
sonar og Eyjólfs Árnasonar:
Þóroddur og Eyjólfur voru báðir til dauða dags
traustir félagar í kommúnistaflokknum og þeim
flokkum, sem tóku við af honum . Flokksstarf þeirra,
eftir að Moskvuvist lauk, var í raun til mikillar
fyrirmyndar og í fullu samræmi við það, sem
skólarnir ætluðust til af útskrifuðum nemendum
sínum: Þeir áttu að verða kjarninn í flokkunum,
undirstaðan, sem hægt væri að reiða sig á .
Einkennilegt er, að Jón getur þess hvergi, að
fyrrverandi eða tilvonandi nemendur í leyni-
skólunum tveimur í Moskvu gengu hvað eftir
annað hart fram í hörðum átökum á Íslandi .
Jafet Ottósson og Hjalti Árnason hlutu dóma
fyrir þátttöku sína í óeirðunum við Gúttó
7 . júlí og 9 . nóvember (Gúttóslagnum)
1932 . Jens Figved hlaut dóm fyrir aðild að
óeirðunum 7 . júlí og Stefán Pjetursson fyrir
þátt töku í Gúttóslagnum .111 Einn nemandinn,
Hall grímur Hallgrímsson, skrifaði ekki aðeins
greinar um hermál í málgögn kommúnista og
sósíalista, heldur tók beinlínis þátt í spænska
borg ara stríðinu og skrifaði um það bók .
Fjórir fyrrverandi byltingarskólamenn, Eggert
Þorbjarnarson, Hallgrímur Hallgrímsson,
Haraldur Bjarnason og Helgi Guðlaugsson,
voru síðan handteknir í dreifibréfsmálinu í
janúar 1941, þegar reynt var að fá breska her-
menn til að óhlýðnast yfirmönnum sínum,
en í stríði er slík iðja litin mjög alvarlegum
augum, eins og nærri má geta .112 Segir þetta
ekki sína sögu?
110 W . McClellan: „Africans and Black Americans in the
Comintern Schools,“ The International Journal of African
Historical Studies, Vol . 26, No . 2 (1993), bls . 376 . Sbr .
einnig Joni Krekola: Stalinismin lyhyt kurssi, en útdráttur
hennar á ensku e . höfundinn birtist í Communist History
Network Newsletter, No . 20 (haustið 2006) .
111 Hrd. 1935, Nr . 153/1934, bls . 358-415 .
„Hæstaréttardómur í uppþotsmálum kommúnista frá 7 . júlí
og 9 . nóv . 1932,“ Mbl. 22 . júní 1935 .
112 „Dreifibréfsmálið dæmt í Hæstarétti,“ Mbl. 18 . mars 1941 .