Þjóðmál - 01.12.2008, Side 91
Þjóðmál VETUR 2008 89
Frá því er sagt, að frá 1995 hafi 16 . nóvemb-
er, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar verið
helgaður íslenskri tungu . Þann dag hafa verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar verið veitt við hátíðlega
athöfn og frá upphafi hefur Íslandsbanki, síðar
Glitnir, kostað verðlaunin .
Guðmundur lætur þetta fara í taugarnar á sér
með þessum orðum, „þótt ýmsir hafi furðað sig
á því að upphæðin, sem nemur einni milljón
króna og er óverulegur hluti af kostnaðinum
[af dagskránni], skuli ekki koma úr opinberum
sjóðum .“ Segir hann „ýmsum“ hafa ofboðið við
úthlutun verðlaunanna til Njarðar P . Njarðvíks
2006 vegna myndar á forsíðu Morgunblaðsins
daginn eftir af Nirði, menntamálaráðherra og
stjórnarformanni Glitnis með risastóra ávísun .
Frásögninni lýkur með þessum orðum: „Miðað við
vægi móðurmálsverðlaunanna og samfélagslegt
inn tak þeirra virðist ástæðulaust að þau þurfi að
kosta með sníkjum frá einkafyrirtæki .“
Að draga þetta eitt fram um dag íslenskrar
tungu en láta hjá líða að nefna gildi hans fyrir
þjóðlega samkennd ber merki um fljótaskrift á
lokametrum bókarinnar . Guðmundur ætti að
heimsækja skóla þennan dag eða kynnast hinu
frábæra framtaki, Stóru upplestrarkeppninni,
sem tengd hefur verið deginum . Hann mundi
örugglega fyllast þjóðlegri og menningarlegri
samkennd á slíkri stundu .
Fráleitt er að líkja samstarfi við einkafyrir-
tæki í þágu menningar, íþrótta, mennta og vís-
inda við „sníkjur .“ Hitt er rétt hjá Guðmundi,
að samstarfið og framkvæmd þess á að taka
mið af eðli hvers verkefnis . Þegar rætt er um
íslenska tungu og viðskiptalífið má nefna, að
Mjólkursamsalan hefur áunnið sér hrós margra
fyrir ræktarsemi við tunguna, þótt ekki sé þar
um neina góðgerðarstarfsemi að ræða .
Þjóðleg, hægfara, hægrisinnuð stefna er boð-
skap ur Guðmundar Magnússonar og hann saknar
ver aldar, sem var . Hann telur, að þjóðin hafi farið
mikils á mis með því að jöfn uður minnkaði – jöfn-
uði upp á við eru þó gerð skýr skil í bók hans, hitt
eru allir sammála um núna, að sumir fóru allt of
langt og margir þeirra eru nú að sleikja sárin .
Á sínum tíma var gagnrýnt, að fjórtán fjöl-
skyldur hefðu of mikil ítök í fjármála- og at-
vinnu lífi . Bók Guðmundar, Nýja Ísland, snýst
einkum um tíma, þegar þrjár fjölskyld ur höfðu
ekki aðeins undirtökin í viðskipt alífi nu heldur
eignuðust einnig alla fjölmiðla og forseti Íslands
var í skjallbandalagi með þeim fyrir utan að beita
í fyrsta sinn synjunarvaldi sínu til að bregða
fæti fyrir lög frá alþingi um dreift eignarhald á
fjölmiðlum .
Nýja Ísland bregður öðru ljósi á samtím-
ann en við höfum almennt fengið að kynnast
í fjölmiðlum undanfarin ár . Fram hjá þeirri
lýsingu verður ekki gengið, þegar leitast verður
við að dýpka myndina og skerpa línur hennar .
Dögun vetnisaldar?
Þorsteinn Ingi Sigfússon: Dögun vetnisaldar – rót-
eindin tamin, Baldur Arnarson þýddi, Hið ís lenska
bókmenntafélag, Reykjavík 2008, 337 bls .
Eftir Jakob Björnsson
Þetta er allmikil bók, 337 bls . að frátöldum ýmiss konar skrám . Hún var samin á ensku
af höfundi en þýdd á íslensku af Baldri Arnarsyni
í samráði við höfund . Enska textann má
nálgast á alþjóðlegri vefsíðu bókarinnar, www .
tamingoftheheproton .com .
Auk inngangsorða og ímyndaðs sendibréfs frá
2048 skiptist bókin í fimm hluta sem bera heitin
Litið yfir sviðið, Vetnið tamið, Innviðir vetn is-
samfélagsins, Umhverfis jörðina í átján stökk um
og Ferðalok .
Í fyrsta hlutanum, Litið yfir sviðið, er fjallað um
endanlega (tæmanlega) orkugjafa, þ .e . elds neyti
úr jörðu, ummyndun orku þeirra í orku form
sem maðurinn notar og þá losun gróður húsa-
loft tegunda sem þeirri ummyndun fylgir, um
kjarnorku og nýtingu hennar og um endur nýjan-
lega orkugjafa af margvíslegu tagi og um mynd un
þeirra, bæði nú og hugsanlega í fram tíðinni .
Í öðrum hlutanum, Vetnið tamið, er fjallað um
frumefnið vetni og eiginleika þess, hvernig það
er unnið, hvernig það er geymt og hvernig það er
hagnýtt . Þar er m .a . lýst margvíslegum gerðum
efnarafala (fuel cells) . Athygli vekur að þar er
lítið fjallað um brennslu vetnis í gashverflum
sem knýja rafala; aðferð sem nú þegar er tiltæk
meðan efnarafalar eru enn í þróun og það hefur