Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 98

Þjóðmál - 01.12.2008, Síða 98
96 Þjóðmál VETUR 2008 (bls .57) að tóbaksflutningar hafi verið stöðvaðir með félaginu í nóvember 1985 . Slík ákvörðun hefur tæpast átt sér nokkrar viðskiptalegar forsendur, en Eimskip svo gott sem einokaði alla flutninga á áfengi og tóbaki til landsins fram á árið 1987, og það á uppsprengdu verði . Það var aldrei neinum blöðum um það að fletta að Hafskip sigldi krappan sjó fjárhagslega og ekki verður sagt að stjórnendur félagsins hafi ekki reynt að bjarga því, ýmist með sameiningu við önnur félög í sjóflutningum eða rýmri lánafyrirgreiðslu hjá Útvegsbankanum, sem var viðskiptabanki félagsins . Allt kom fyrir ekki . En hér var feitt á stykkinu fyrir pólitísku hýenurnar, en þefvísastar í þeim hópi voru þeir Ólafur Ragnar Grímsson, þá varaþingmaður, flokksbróðir hans Svavar Gestsson og Jón Baldvin Hannibalsson, allir stjórnarandstæðingar . Kostuleg er upprifjun höfundar á ákefð Ólafs Ragnars að koma Guðmundi J . Guðmundssyni í frí, svo hann gæti tekið sæti hans á þingi og slegið pólitískar keilur . Fúkyrðaflaumurinn gekk greiðlega um varir Ólafs Ragnars í þingsölum, eftir að tekist hafði að flæma Jakann burt . Var honum mjög hugleikið „einstætt lúxuslíf hérlendis og erlendis“ á Hafskipsmönnum og engu líkara en nokkurs öfundartóns gætti . Allt svona tal tilheyrir nú fortíðinni hjá þessum ágæta manni . Fleiri stjórnmálamenn en Jakinn fengu bágt fyrir atburðarásina . Albert Guðmundsson, sem verið hafði stjórnarformaður Hafskips og um tíma sömuleiðis formaður bankaráðs Útvegsbankans, var fjármálaráðherra frá maí 1983 til október 1985 . Þá tók við af honum Þorsteinn Pálsson, sem orðinn var formaður Sjálfstæðisflokksins, en erfiðlega hafði gengið að finna fyrir hann ráðherrastól, sem frægt varð, en Albert flutti sig í iðnaðarráðuneytið . Í nóvember 1986 sagði Helgarpósturinn frá því að Hafskip hefði greitt afslátt vegna farmgjalda á víntegundum, sem Heildverslun Alberts Guðmundssonar hafði umboð fyrir, til heildverslunarinnar, en ekki til ÁTVR, sem greitt hefði farmgjöldin . Fyrirkomulag af þessu tagi hafði lengi verið við lýði . Þegar líður að vori 1987 birtir Helgarpósturinn upplýsingar um tvær greiðslur frá Hafskip árið 1984 og 1985, sem Albert, þáverandi fjármálaráðherra, hafði fengið og ekki talið fram til skatts . Öllum mátti vera ljóst að Albert var grandalaus í þessu máli, en formaður Sjálfstæðisflokksins fann nályktina af honum, svældi hann úr embætti og kórónaði svo vitleysuna með yfirlýsingu um það að Albert gæti ekki orðið ráðherra aftur á vegum Sjálfstæðisflokksins . Albert brást hart við og stofnaði Borgaraflokkinn og fékk sjö þingmenn í kosningunum um vorið, en Sjálfstæðisflokkurinn hlaut sína verstu útreið fyrr og síðar, aðeins 18 þingmenn og um 27% atkvæða . Eftir þetta efuðust margir sjálfstæðismenn um dómgreind formannsins . Höfundur rekur skilmerkilega opinberu rann- sóknina sem fram fór og störf skiptaráðenda, lögreglu, saksóknara og dómstóla og ekki síður störf rannsóknarnefndar þingsins . Lögregla og dómstólar höfðu, þegar hér var komið sögu, ekki dregið fullnægjandi lærdóma af öfga full- um gæsluvarðhaldsúrskurðum í umtöluðum sakamálum áratug áður, og nú fengu Haf- skips menn að finna til tevatnsins með langri einangrunarvist, langt umfram þarfir rannsókn- arinnar . Það má kannski virða lögreglu og dóm stólum til vorkunnar, að þeir sáu ekki í gegnum markaðshagsmuni fjölmiðla og flaum- ósa stjórnmálamenn . En kannski stendur uppúr rannsókninni að nú vita menn hvað orða- leppurinn „góð reikningsskilavenja“ merkir . Í Hafskipsmálum var hátt reitt til höggs, en niðurstaðan reyndist hálfgert vindhögg . Það er ekki vansalaust af ákæruvaldi og lögreglu, svo ekki sé nú talað um stjórnmálamenn, að láta fjölmiðla draga sig á asnaeyrum útí hyldýpi, eins og greinilega var gert í þessu máli . Stefán Gunnar hefur skrifað góða og vandaða bók um mikið átakamál í Íslandssögunni . Honum tekst vel að varpa ljósi á allar hliðar þessa alræmda máls og hlut hvers og eins í því . Aðkoma málsaðilanna sjálfra að útgáfu bókarinnar rýrir á engan hátt sagnfræðilegt gildi hennar, heldur þvert á móti, enda hefur það óefað gert sérstaka myndaritstjórn mögulega og góðan prófarkalestur . Þótt höfundur felli ekki dóma, gefur framsetning hans, efnistök og stíll lesandanum góð færi til að draga eigin ályktanir og niðurstöður . En örlögin hafa einhvern veginn hagað því svo til að bókin hefur horfið í skuggann af bankahruni og efnahagsörðugleikum og er það skaði .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.