Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 25
Þjóðmál SUmAR 2009 23
þeirrar skoðunar, að við getum ekki lengur
staðið á eigin fótum fjárhagslega og að okkur
verði bezt borgið með því að leita skjóls hjá
Evrópusambandinu . Þessi spurning snýst
líka um það, hvort við viljum varðveita til
framtíðar eina verðmætustu eign íslenzku
þjóðarinnar, sem eru fiskimiðin eða hvort
við eigum að láta af hendi yfirráðin yfir henni
gegn því að fá annan gjaldmiðil, evruna . Í
nýrri skýrslu virtrar rannsóknar stofn unar
í berlín um Ísland og Evrópus am bandið
segir, að við Íslendingar stöndum frammi
fyrir því, hvort við viljum láta yfirráðin yfir
fiskinum af hendi fyrir evruna . Því er spáð,
að við munum velja fiskinn .
Pólitíska staðan á vettvangi stjórnar-
flokkanna er hins vegar sú, að VG lét
Samfylkinguna kúga sig . Sam fylk ingar menn
tala af fyrirlitningu um það, að Vinstri grænir
hafi „étið ESb ofan í sig fyrir ráðherrastóla“ .
Í sinni grófustu mynd er þetta rétt . Og það
sem meira er . Það var engin ástæða fyrir þá til
að gera það . Samfylkingin hefði ekki tekið þá
pólitísku áhættu að mynda ríkisstjórn með
Fram sóknarflokki og borgarahreyfingunni,
en sú hótun var það eina, sem Samfylkingin
gat notað á VG .
Hvers vegna gafst VG upp? Eina hugsan-
lega skýringin er sú, að Vinstri grænir voru
búnir að bíða svo lengi eftir því að komast
í ríkisstjórn að þeir hafi ekki verið tilbúnir
til að taka áhættu með því að halda fast við
andstöðu sína við ESb-aðild .
Afleiðingin af uppgjöf VG í ESb-mál inu
er tvíþætt . Flokkurinn er klofinn . nú þegar
hafa fimm þingmenn hans lýst því yfir, að
þeir muni greiða atkvæði gegn þings álykt-
unartillögu utanríkisráðherra um aðildar-
umsókn og hugsanlega munu fleiri þing-
menn bætast í þann hóp . jafn framt er alvar leg
óánægja í innsta kjarna VG með þessa uppgjöf,
sem kom skýrt í ljós á flokks ráðsfundi þeirra
daginn sem ríkis stjórn in var mynduð og
birtist m .a . í grein eftir Hjörleif Guttormsson
í Morgun blaðinu fyrir skömmu .
Hins vegar líta fjölmargir kjósendur VG í
þingkosningunum svo á, að þeir hafi verið
sviknir . Sjálfur hef ég talað við kjósendur,
sem alla tíð hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn
en kusu Vinstri græna nú vegna þess að þeir
treystu VG bezt til að standa gegn aðild að
ESb . Það er út af fyrir sig umhugsunarefni
fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins, að þessir
kjósendur hurfu til stuðnings við VG vegna
þess, að þeir töldu ekki víst að forystumenn
Sjálf stæðisflokksins mundu standa við sam-
þykkt ir landsfundarins, en það er önn ur saga .
Þessir kjósendur munu yfirgefa VG í
sveit arstjórnarkosningunum vorið 2010
vegna þess að þeir telja sig illa svikna og
hið sama munu fleiri kjósendur VG gera .
uppgjöfin í ESb-málinu eru mikil mistök
af hálfu forystumanna VG .
Samfylkingin er ekki enn búin að átta
sig á hvers konar stjórnmálaflokkur hún
er eða vill vera . Þennan veruleika felur
Samfylkingin fyrir kjósendum með þeirri
ofuráherzlu, sem flokkurinn leggur á aðild
Íslands að ESb . Flokkurinn telur, að hann
þurfi ekki að gera kjósendum grein fyrir því,
hvernig hann ætlar að takast á við aðkallandi
vanda í efnahags- og atvinnumálum og
vandamálum heimilanna sérstaklega vegna
þess, að það muni duga að telja kjósendum
trú um, að sá vandi leysist með því einu að
sækja um aðild að ESb .
á þessari vegferð Samfylkingarinnar ger-
ist ýmislegt . talsmenn flokksins hafa á und-
anförnum árum lagt áherzlu á, að flokk-
urinn berðist fyrir lýðræðislegum umbótum
á Íslandi . Veruleikinn er hins vegar sá, að
þetta er eini stjórnmálaflokkurinn, sem er
beinlínis andvígur því, að íslenzka þjóðin
sjálf taki ákvörðun um það, hvort hún
vilji sækja um aðild . Í þeirri afstöðu, sem
jóhanna Sigurðardóttir hefur gerzt helzti
talmaður fyrir felst yfirgengilegur hroki .
Grundvallaratriði í málflutningi þeirra,
sem hvetja til þess að fulltrúalýðræði 20 .
ald ar innar verði þróað í átt til beins lýðræð-