Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 52
50 Þjóðmál SUmAR 2009
staðar á Vesturlöndum . æskulýðssamband
Íslands lenti í höndum vinstri manna, en
Samband ungra sjálfstæðismanna og ýmis
önnur samtök hættu þar þátttöku . ákvað
æskulýðssambandið að eiga aðild að tíunda
heimsmóti æskunnar í Austur-berlín við
kröftug mótmæli Morgunblaðsins .9
2 .
Heimsmót æskunnar í Austur-berlín 28 . júlí–5 . ágúst 1973 var helgað bar-
átt unni gegn heimsvaldastefnu og sam stöðu
með þjóðfrelsishreyfingum þriðja heimsins .
átta Íslendingar sóttu það, og var formaður
sendinefndarinnar Þorsteinn Vilhjálmsson
eðlisfræðingur .10 Skrifuðu þeir Þorsteinn
skýrslu um mótið, þar sem allt skipulag var
lofað . Flestir Íslendingarnir sóttu sérstakan
vináttufund með æskulýðssambandi Þýska
alþýðulýðveldisins, FDj (Freie deutsche
jugend) . „undir lok dvalarinnar gaf
íslenska sendinefndin út yfirlýsingu, þar
sem hún þakkaði FDj frábærar móttökur
og vel skipulagt mót .“ Enn sagði í skýrslu
Íslendinganna:
Þjóðverjarnir, sem við hittum, voru
yfirleitt tiltakanlega opnir, óþvingaðir
og hrokalausir . Þeir voru reiðubúnir
9 „njósnið um þátttakendur,“ Mbl. 26 . júlí 1973;
„Reykjavíkurbréf,“ Mbl. 29 . júlí 1973; „„Heimsmót
æskunnar“,“ Mbl. 1 . ágúst 1973 .
10 „Sendinefnd æSÍ á heimsmótinu,“ Þjv. 2 . ágúst 1973 .
til hreinskilinna viðræðna, jafnvel um
viðkvæm ágreiningsefni og vandamál
DDR . Okkur var tjáð, að innlendar vörur,
þar á meðal landbúnaðarvörur, væru
yfirleitt mun ódýrari en til dæmis í bRD
[Sambandslýðveldinu Þýskalandi, Vestur-
Þýskalandi] miðað við hið opinbera
gengi . Sama gildir um húsaleigu og afnot
almenningsfarartækja . á hinn bóginn eru
innfluttar vörur eins og til dæmis ávextir
dýrari í DDR en fyrir vestan .
niðurstaða Þorsteins Vilhjálmssonar og
annarra sendinefndarmanna var þessi: „Ef
eitthvað er að marka áróðurinn á Vestur-
löndum frá tíma kalda stríðsins, hefur
æðimargt breyst í DDR og annars staðar í
Austur-Evrópu síðan þá, eins og þessi skýrsla
gefur vonandi til kynna . Við leggjum lítið
af mörkum til áframhaldandi breytinga
í þá átt, sem við teljum rétta, með því að
stinga hausnum í sandinn .“11
Fréttamaður lundúnablaðsins The Times,
Peter broderick, sem sótti mótið fyrir blað
sitt, hafði skýringu á því, hversu „opnir og
óþvingaðir“ þýskir æskumenn voru í tali við
Þorstein Vilhjálmsson og félaga hans:
Ræðumenn og áheyrendur, jafnvel á
litlum, fámennum fundum, voru ávallt
ákveðnir fyrirfram . Skila varð ræðum til
þýðanda fyrirfram og til þess ætlast, að
ekki væri frá þeim texta vikið . Sá tími,
sem mönnum gafst til óopinberra sam-
ræðna, en hann var einnig skipulagður,
11 „Hausnum stungið í sandinn? tvær frásagnir af Heims-
móti æskunnar í A-Þýskalandi,“ Mbl. 31 . október 1973 .
Frásögn Þjóðviljans af sendiför íslenskra róttækl-
inga á heimsmót „æskunnar“ sem harðstjórn
komm únista hélt í Austur-berlín 1973 .
Þjv. 2. ágúst 1973.