Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 27
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 2015 23
Fimmtudaginn 18. desember 2014 voru afhentir tíu
styrkir til klínískra rannsókna úr vísindasjóði Landspítala.
Hver styrkur nemur einni milljón króna. Styrkirnir eru
ætlaðir ungum vísindamönnum á spítalanum. Einn af
styrkþegunum er Sigrún Sunna Skúladóttir, hjúkrunar
fræðingur á flæðisviði Landspítalans. Hún fær styrkinn
fyrir rannsókn sína á mjaðmabrotum 67 ára og eldri sem
leituðu á bráðamóttöku Landspítala 20082012.
Fékk eina milljón úr
vísindasjóði Landspítala
Meðumsækjandi hennar er Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir,
verkefnastjóri á flæðisviði. Aðrir samstarfsmenn eru
Elísabet Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur, verk efna
stjóri á fjármálasviði, Hlíf Guðmundsdóttir, sér fræðingur
í öldrunar hjúkrun, Lovísa Jónsdóttir, hjúkrunar fræðingur
og aðstoðardeildarstjóri, Helga Rósa Más dóttir,
hjúkrunar fræðingur og aðstoðar deildarstjóri, Ingi björg
Sigur þórsdóttir, hjúkrunarfræðingur á flæði sviði, og
Sigrún Helga Lund, töl fræðingur við Háskóla Íslands.
Styrkurinn verður notaður til að vinna nánar úr niður
stöðum úr meistaraverkefni Sigrúnar Sunnu og skipu
leggja hjúkrunar meðferð fyrir sjúklinga sem koma með
mjaðmabrot á bráðamóttökunni.
Sigrún Sunna
Skúladóttir.
Fr
ét
ta
pu
nk
tu
r
www.hi.is
HJÚKRUNARFRÆÐIDEILD
Diplómanám á meistarastigi
• Öldrunarhjúkrun
• Geðhjúkrun
• Skurðhjúkrun
• Svæfingahjúkrun
• Þverfræðilegt nám í kynfræði
Kandídatsnám á meistarastigi
• Ljósmóðurfræði (embættispróf)
Meistaranám
• Geðhjúkrun
• Hjúkrun langveikra og eldri borgara
• Hjúkrun aðgerðasjúklinga og sjúklinga með bráð og alvarleg veikindi
• Hjúkrunarstjórnun
• Ljósmóðurfræði
• Rannsóknanámsleið
• Auk fleiri kjörsviða
Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2015
Upplýsingar veitir Margrét Gunnarsdóttir, verkefnastjóri framhaldsnáms í
síma 525 5204, maggagu@hi.is
Nánari upplýsingar: www.hjukrun.hi.is
Framhaldsnám við Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands 2015-2016