Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 28
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 201524
Við sem störfum við hjúkrun þekkjum öll langar og ómarkvissar munnlegar
skýrslugjafir um sjúklinga. Þetta er ekki aðeins þreytandi, heldur getur orðið til
þess að mikilvægar upplýsingar tapast. Með því að taka upp samskiptakerfið
SBAR er hægt að gefa markvissari upplýsingar um sjúklinga og auka þar með
öryggi þeirra.
Rannsóknir sýna að misbrestur í
upplýsinga gjöf kemur mjög oft við
sögu þegar eitthvað fer úrskeiðis
á sjúkrastofnunum. Ástæður þess
eru margar en ein þeirra er að
upplýsingagjöfin er hvorki stöðluð né
skipulögð. Í bandaríska sjóhernum var
þróað sérstakt samskiptakerfi, SBAR, til
þess að gera samskipti og upplýsingagjöf
markvissari og öruggari. SBAR var síðan
lagað að heilbrigðiskerfinu og er nú notað
með góðum árangri víða um heim meðal
lækna og hjúkrunarfræðinga.
SBAR á að nota þegar upplýsingum
um ástand, líðan og meðferð sjúklinga
er miðlað, til dæmis þegar við þurfum
ráðgjöf, þegar sjúklingur flyst milli
deilda eða þegar við felum öðrum
ábyrgð á honum, eins og til dæmis á
vaktaskiptum.
Markmiðið með notkun SBAR er að miðla
nákvæmum upplýsingum um ástand
sjúklinga á markvissan og árangursríkan
hátt. Áður en upplýsingagjöf hefst þarf
sá sem gefur skýrsluna að vera búinn að
kynna sér sögu sjúklings og afla þeirra
upplýsinga sem þarf, til dæmis taka
lífsmörk eða skoða sjúkling. Mikilvægt
er að sá sem tekur við upplýsingunum
sé meðvitaður um að verið sé að nota
SBAR og að hann trufli ekki í miðri
upplýsinga gjöf, heldur spyrji að henni
lokinni.
SBAR er skammstöfun þeirra fjögurra
atriða sem þarf að hafa í huga þegar
upplýsingunum er miðlað. Skammstöfunin
stendur fyrir stöðu, bakgrunn, athuganir
og ráðleggingar.
Eygló Ingadóttir, eygloing@landspitali.is
S – Staðan: Kynna þarf aðstæður og segja
frá því hvert sé vandamálið. Þessi kynning
á að taka mjög stuttan tíma. Ef um er að
ræða símtal, þá þarft sá sem hringir að
byrja á því að kynna sig og segja frá því
hvers vegna hann hefur samband.
B – Bakgrunnur: Aðdragandinn að
vanda málinu er kynntur. Greint er frá
stað reyndum sem skipta máli hér og nú
og vanda málið er sett í samhengi.
A – Athuganir: Helstu niðurstöður ýmissa
athugana sem skipta máli fyrir sjúklinginn
eru kynntar. Hér ber að gefa yfirlit yfir
nýjustu upplýsingar og gera tilraun til að
túlka þær.
R – Ráðleggingar: Hvað telur þú að þurfi
að gera? Hver er ákvörðunin? Nú á sá
sem miðlar upplýsingunum að segja hvað
hann heldur að þurfi að gera og gera
tillögu að áætlun og verkaskiptingu. Ef
BETRI UPPLÝSINGAGJÖF UM SJÚKLINGA – SBAR