Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 35
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 2015 31
Þóra Jenný Gunnarsdóttir, thoraj@hi.is
Mary Jo Kreitzer er einn af stofnendum og
núverandi stjórnandi Center for Sprituality
and Healing (CSH) við Háskólann í
Minnesota. Hún hefur heimsótt Ísland
þrisvar og haldið opinbert erindi þar sem
hún kynnti CSH og hugmyndir sínar um
viðbótarmeðferð. Mary Koithan er dósent
við Háskólann í Arizona. Ritstjórunum finnst
þörf á að minna á heildræna samþætta
hjúkrun í nútímaheilbrigðisþjónustu og er
þetta ágæt tilraun til að útfæra hugmyndir
um heildræna þjónustu með nýjum hætti
út frá sjónarhóli hjúkrunar. Þær telja
mikilvægt að horfa á einstaklinginn og
tengsl hans við sína nánustu, umhverfi sitt
og sjálfan sig. Vellíðan er ekki bara góð
heilsa heldur samspil margra þátta.
Í upphafskafla bókarinnar setur Mary
Koithan fram sex meginatriði sem
einkenna heildræna samþætta hjúkrun.
Þau eru: Manneskjan er heildræn vera og
ekki aðskilin frá umhverfi sínu. Manneskjan
hefur innri þörf fyrir heilbrigði og vellíðan.
Náttúran getur haft endurnærandi áhrif og
stuðlað þannig að heilbrigði og vellíðan.
Heildræn hjúkrun snýst um manneskjur og
byggist á samskiptum. Heildræn hjúkrun
byggist á gagnreyndri þekkingu og notar
þær aðferðir sem efla heilbrigði eftir því
hver þörfin er og hvernig aðstæður eru
hverju sinni. Heildræn hjúkrun leggur
áherslu á heilbrigði og vellíðan bæði hjá
þeim sem hana þiggur og þeim sem þá
þjónustu veitir.
Höfundar bókarkaflanna fjörutíu og
tveggja koma víðs vegar að þótt flestir séu
frá Bandaríkjunum. Þetta eru bæði ungir
og rosknir hjúkrunarfræðingar frá ólíkum
sviðum innan hjúkrunar, bæði frá háskólum
og frá sjúkrastofnunum. Bókin skiptist
í sex hluta. Í fyrstu tveim hlutunum er
nánar fjallað um hvað einkennir samþætta
heildræna hjúkrun og lögð áhersla á
hvernig hjúkrunarfræðingar geta hlúð að
sjálfum sér, umhverfi sínu og umhverfi
sjúklinga. Tekin eru dæmi um útfærslu
þessara atriða innan heilbrigðisstofnana
og í umhverfi hjúkrunar, til dæmis í heilsu
þjálfun (e. health coaching), næringu,
hreyfingu og lífsstíl. Í næstu þrem hlutum
bókarinnar er farið nánar í hvernig hægt
er að hagnýta samþætta heildræna
hjúkrun við að draga úr einkennum. Þar
er að finna kafla sem fjalla sérstaklega
um einkenni eins og kvíða, streitu, ógleði,
þunglyndi, þreytu, verki og svefnerfiðleika.
Í köflunum eru góðar skýringartöflur sem
sýna hvernig hægt er að beita þessari
hjúkrun til að draga úr þessum einkennum
og tekin klínísk dæmi. Sem dæmi má taka
kaflann um svefnerfiðleika en þar er farið í
mikilvægi þess að hlusta vel á sjúkrasögu
sjúklingsins og leggja mat á hvaða þættir
hafa áhrif á svefn. Sett er fram í töflu
hvaða þætti svefnvandamála er hægt að
hafa áhrif á, fyrst með einföldum hætti
og síðan smám saman farið í flóknari
meðferðartegundir. Einnig er að finna kafla
um hvernig heildræn samþætt hjúkrun
endurspeglast við tilteknar aðstæður,
svo sem líknarhjúkrun, geðhjúkrun,
öldunarhjúkrun og samfélagshjúkrun
og hvernig má þróa hana á ákveðnum
menntunarstigum hjúkrunarfræðinga.
Í lok bókarinnar eru kaflar skrifaðir af
hjúkrunarfræðingum frá sex löndum
þar sem þeir lýsa því hvernig samþætt
heildræn hjúkrun er veitt í þeirra landi og
hvernig hana má þróa frekar. Þessi lönd
eru Þýskaland, Tyrkland, Bretland, Írland,
Ísland og Svíþjóð.
Bókin hefur fengið afar góðar viðtökur í
Bandaríkjunum og í Evrópu. Talsverður
áhugi er á því að koma skilaboðum hennar
frekar á framfæri og rýna enn betur í hvað
felst í heildrænni samþættri hjúkrun. Því
var ákveðið að halda ráðstefnu og er það
heiður fyrir Ísland að fá að vera gestgjafi
þessarar vonandi bara fyrstu ráðstefnu
um þetta efni. Margir útdrættir hafa verið
sendir inn og koma þeir víðs vegar að
og því óhætt að segja að ráðstefnan
verði alþjóðleg. Á ráðstefnunni verða um
70 erindi, veggspjöld og vinnusmiðjur
auk þriggja gestafyrirlesara. Ráðstefnan
verður haldin í Hörpu 18.20. maí 2015.
BÓKARKYNNING
HEILDRÆN SAMÞÆTT HJÚKRUN
Í byrjun árs 2014 kom út bók um heildræna samþætta hjúkrun sem ber heitið
Integrative Nursing. Bókinni er ritstýrt af tveimur bandarískum hjúkrunar
fræðingum, Mary Jo Kreitzer og Mary Koithan. Í henni eru fjörtíu og tveir kaflar
sem allir varpa ljósi með einum eða öðrum hætti á heildræna samþætta hjúkrun.
Integrative Nursing. Ritstjórar: Mary Jo
Kreitzer og Mary Koithan. Útgefandi:
Oxford University Press 2014. ISBN:
9780199860739. Bókin er 575 bls.