Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 49
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 2015 45
Fyrir mistök urðu nokkrar villur í prentaðri útgáfu
greinarinnar „Óframkvæmd hjúkrun á sjúkrahúsum á
Íslandi: Lýsandi rannsókn“ í síðasta tölublaði Tímarits
hjúkrunarfræðinga. Er beðist velvirðingar á því.
Leiðrétta grein er nú að finna á vef tímaritsins og er
lesendum bent á að nota þessa útgáfu.
LEIÐRÉTTING – ÓFRAMKVÆMD HJÚKRUN
Greinin er mikilsvert framlag til þekkingar manna á vinnu
aðstæðum hjúkrunarfræðinga og viðleitni þeirra til þess að
bæta öryggi sjúklinga. Fyrsti höfundur greinarinnar, Helga
Bragadóttir, hefur rannsakað ýmsar hliðar þessa máls og eru
lesendur hvattir til þess að kynna sér rannsóknir hennar. Tímarit
hjúkrunarfræðinga hefur til dæmis birt eftirfarandi greinar,
ritrýndar og óritrýndar:
Helga Bragadóttir, Hlín Árnadóttir og Bryndís Bjarnadóttir
(2010). Lyfjamistök hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsum. Tímarit
hjúkrunarfræðinga, 86(3), 611.
Alda Ásgeirsdóttir og Helga Bragadóttir (2011). Rannsókn á vinnu
og vinnuumhverfi sjúkraliða á bráðalegudeildum Landspítala.
Tímarit hjúkrunarfræðinga, 87(5), 4855.
Sveinfríður Sigurpálsdóttir, Ragnar F. Ólafsson og Helga
Bragadóttir (2012). Viðbótarvinnuálag á hjúkrunarfræðinga í
bráðaþjónustu: Lýsandi rannsókn. Tímarit hjúkrunarfræðinga,
88(5), 5056.
Sigrún Gunnarsdóttir og Helga Bragadóttir (2012). Þættir
sem hafa áhrif á vinnu hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða á
bráðalegudeildum. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 88(1), 4656.
Helga Bragadóttir, Margrét Sigmundsdóttir, Brynja Inga dóttir,
Katrín Blöndal, Lovísa Baldursdóttir og Elín J.G. Hafsteins dóttir
(2013). Örugg lyfjavinna hjúkrunarfræðinga – lengi býr að fyrstu
gerð. Tímarit hjúkrunarfræðinga, 89(5), 4447.
Félagsmenn með fulla aðild að Fíh eru hjúkrunarfræðingar sem eru félagsmenn og þiggja laun skv.
kjarasamningi sem félagið hefur gert fyrir þeirra hönd og/eða greiða félagsgjöld af dagvinnulaunum og atvinnu-
veitandi greiði tilskilin gjöld í sjóði félagsins f.h. starfsmannsins.
Félagsmenn með fagaðild að Fíh eru hjúkrunarfræðingar sem hafa óskað eftir fagaðild og greitt fagaðildargjald
til félagsins en þiggja ekki laun samkvæmt kjarasamningi félagsins.
Lífeyrisþegar teljast til fagaðila.
Aðalfundur 2015
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn
mánudaginn 18. maí 2015 á Grand Hótel, Reykjavík.
Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi. Atkvæðisrétt hafa
félagsmenn með fulla aðild og fagaðild sem skrá sig til þátttöku á
fundinn fyrir 11. maí. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðis-
rétt.
Nánar auglýstur síðar á vefsvæði félagsins www.hjukrun.is