Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Side 56
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 201552
Umræður milli unglinga og foreldra um kynheilbrigðismál
Niðurstöður bentu til þess að umræður um kynlíf milli nemenda
og foreldra þeirra á þeim tveimur mánuðum, sem liðu milli
fyrirlagna, hefðu aukist. Skoðað var hversu oft unglingurinn
hefði á síðustu fjórum vikum rætt við annað hvort foreldri
(forráðamann) um kynlíf. Hlutfall þeirra sem höfðu einu sinni
eða oftar rætt við foreldra var 23% í fyrri könnun en hafði
aukist í 37% í þeirri seinni en það er aukning um 24%. Það
voru 28% í FI en 24% í FII sem mátu samræður við foreldra
mjög góðar eða góðar. Nemendur voru spurðir hvort þeir hefðu
rætt um tiltekna efnisþætti við foreldra sína. Fimm algengustu
umræðuefnin eftir kynfræðsluna (FII) voru hvað væri rétt og
rangt varðandi kynhegðun (24% FI; 27% FII), hvaða breytingar
yrðu á lífi þeirra ef þau eignuðust barn (27% FI; 26% FII),
kynsjúkdóma (19% FI; 24% FII), getnaðarvarnir (19% FI; 23%
FII) og afstöðu foreldra til kynlífs unglinga (20% FI; 21% FII).
UMRÆÐUR
Niðurstöður gefa vísbendingar um að kynfræðsluefnið
Kynveruleiki í ljósi kynheilbrigðis hafi einkum haft jákvæð áhrif
á þekkingu og umræður milli nemenda og foreldra en í minna
mæli á viðhorf þeirra, einkum stúlkna. Hluti af skýringunni gæti
verið sá að viðhorf voru töluvert jákvæð í upphafi.
Þekking nemenda reyndist vera meiri eftir kynfræðsluna en
fyrir hana og er það í samræmi við aðrar íhlutandi rannsóknir
á árangri kynfræðslu hvað varðar þekkingu (Coyle o.fl., 2004;
Kirby o.fl., 1991; Schaalma o.fl, 1996; Zimmerman o.fl., 2008).
Stúlkur stóðu sig betur en drengir hvað varðar heildarþekkingu
í báðum könnunum en kynjamunur kom jafnframt fram
á þekkingarlegum atriðum í rannsókn á kynfræðsluefninu
Kynfræðsla: Lífsgildi og ákvarðanir (Arna Axelsdóttir o.fl.,
1990). Rannsókn okkar sýndi að nemendur höfðu mest fengið
kynfræðslu í skólanum en sýnt hefur verið fram á að kynhegðun
er önnur meðal þeirra sem fá kynfræðslu aðallega í skólanum
heldur en meðal þeirra sem fá hana einkum hjá vinum eða
fjölmiðlum (Wellings o.fl., 1995). Fram kom í þeirri rannsókn að
drengir voru síður líklegir til að byrja að stunda kynlíf fyrir 16 ára
aldur og líkur meðal stúlkna voru ekki meiri.
Viðhorf drengja til sjálfsvirðingar gefa til kynna að sumum finnst
eftirsóknarvert að stunda kynlíf þar sem í því geti falist að þeir
fullorðnist. Á sama tíma er til staðar óvissa gagnvart því að ræða
við rekkjunaut og að segja nei við hann. Í kynfræðsluefninu var
tekið á þessum atriðum en þetta gefur til kynna að skerpa megi
á þessum efnisþáttum. Viðhorf til ábyrgðar og ábyrgðarleysis
í kynlífi benda til í heild að nemendur hafi myndað sér nokkuð
ábyrga afstöðu til kynlífs. Niðurstöður um viðhorf til fordóma
gefa vísbendingar um að nauðsynlegt sé að vinna meira með
viðhorf gagnvart kynhegðun stúlkna og hvað þeim leyfist.
Það viðhorf hefur verið lífseigt í samfélaginu að stúlkur eigi að
vera sómakærar þegar kemur að kynlífi en drengjum leyfist
mun meira. Þarna gætir ekki jafnræðis milli kynjanna. Það er
mikilvægt að það gildi jafnt fyrir bæði kyn að það að vera með
smokk á sér sýni fram á vilja til þess að vera ábyrgur í kynlífi.
Þegar hlutfallsleg svörun er skoðuð milli kynja þá kemur í ljós
töluverður munur á afstöðu kynjanna eins og til fóstureyðinga,
hvað stúlkum leyfist og ábyrgð gagnvart þungun. Kannanir hafa
áður sýnt kynjamun er lýtur að viðhorfum til kynheilbrigðismála
(Coyle o.fl., 2004; Murphy o.fl., 1998). Eins er verðugt að huga
að viðhorfum drengja sérstaklega þar sem oft hefur komið
í ljós að þeir njóti minni kynfræðslu hjá foreldrum en stúlkur
(Raffaelli o.fl., 1998) en jafnframt er sú staðreynd fyrir hendi
að kynfræðsluefni virðist höfða á mismunandi hátt til kynjanna
(Aarons o.fl., 2000). Hjá drengjum komu fram marktækar
viðhorfsbreytingar á þá lund að fleirum fannst þeir fullorðnast
við það að hafa fyrstu samfarir, færri fannst að barneign hefði
áhrif á framtíðaráform þeirra, fleiri töldu erfitt að tjá sig um kynlíf
við rekkjunaut, fleirum fannst erfitt að segja nei ef rekkjunautur
vildi hafa samfarir og nokkrum fannst það í lagi að þvinga
stúlku til samfara. Afstaða drengja bendir til tilhneigingar til
kæruleysis gagnvart barneign en jafnframt að ýmsir erfiðleikar
geti tengst kynlífi þegar kemur að því að ræða málin, setja
mörk og að koma fram við stúlku á sæmandi hátt. Þetta bendir
til þess að drengir hafi þörf fyrir meiri umfjöllun um þessi mál í
áframhaldandi kynfræðslu.
Breyting varð á afstöðu nemenda til þess hvort þeir töldu
vini vera byrjaða að stunda kynlíf en liðlega helmingur í seinni
fyrirlögn taldi vini hafa haft samfarir. Það helst að vissu leyti
í hendur við kynhegðun þeirra en 6% aukning varð milli
fyrirlagna á fjölda þeirra sem stunduðu kynlíf . Þessi fjölgun á
kynferðislega virkum unglingum á þessu stutta tímabili miðast
við afar fáa einstaklinga en getur gefið vísbendingar um þróun
mála á þessum tíma. Íslenskar landskannanir frá 2009 og
1996 hafa sýnt að kynlífsvirkni eykst töluvert milli 13 og 14 ára
aldurs (Sóley S. Bender, 2012). Slíkt staðfesta einnig erlendar
rannsóknir frá Kanada (Thomas o.fl., 1998) og Bandaríkjunum
(Coyle o.fl., 2004). Þetta gefur til kynna mikilvægi þess að
tryggja nemendum vandaða alhliða kynfræðslu ekki seinna en
í 7. bekk ef ætlunin er að hvetja unglinga til að byrja seinna
að stunda kynlíf og að þeir séu ábyrgir þegar að því kemur.
Ýmsar fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós að þeir sem hafa fengið
alhliða kynfræðslu eru líklegri til að fresta því að byrja að stunda
kynlíf (Coyle o.fl., 2004; Hubbard o.fl., 1998; Kirby o.fl., 1991;
Tortolero o.fl., 2010) og líklegri til að nota getnaðarvarnir á
markvissan hátt (Aarons o.fl. 2000; Coyle o.fl. 2001; Kirby o.fl.
2004).
Samræður milli unglinga og foreldra um kynheilbrigðismál
jukust í heildina á milli fyrirlagna en fyrri íhlutandi rannsóknir
hafa einnig sýnt fram á það (Arna Axelsdóttir, o.fl., 1990;
Hubbard o.fl. 1998; Kirby o.fl., 1991). Kynfræðsluefnið gaf
nemendum mörg tækifæri til umræðna í kennslustundum en
nemendur fóru ekki heim með nein verkefni til að vinna með
foreldrum. Það virðist því hafa verið nægjanlegt að unglingar
ræddu málin í kennslustund og það varð ef til vill kveikja að því
að þeir ræddu betur við foreldrana um þessi mál.
Kostir og takmarkanir
Svarhlutfall rannsóknarinnar var hátt enda lagt fyrir í
kennslustund. Kynfræðslan byggðist á nýju námsefni sem kennt
var í átta kennslustundum og var byggt á hugmyndafræðilegum