Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2015, Síða 60
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 1. tbl. 91. árg. 201556
var skráður í, lengd náms, einkunnir, mat á námsframvindu,
þann tíma sem færi í nám og vinnu og fjárhagslega stöðu.
Tvær spurningar, um námsframvindu og fjárhagslega stöðu,
voru á fimm bila Likertkvarða 15 (frá mjög vel til mjög illa)
og ein spurning, um tíma sem færi í nám og vinnu, var á níu
bila kvarða (frá 0 til 40 tímar). Þriðji hluti spurningalistans var
með 7 spurningum. Spurt var um hvort þátttakandi hefði þurft
á heilbrigðisþjónustu að halda á síðasta ári, hvort hann hefði
frestað því að leita eftir þjónustu og beðið var um skýringar
ef svo var. Jafnframt var spurt um hvort viðkomandi hefði
heimilislækni, hvort hann hefði nýtt þjónustu tannlæknadeildar
eða námsráðgjafar háskólans og hvort hann vildi nýta
heilbrigðisþjónustu sem yrði í boði á vegum háskólans. Að
auki var grennslast fyrir um hvers konar heilbrigðisþjónusta
væri mikilvæg, hvað skipti máli í sambandi við að sækja
þjónustu á vegum HÍ og um skipulag þjónustunnar (til dæmis
um afgreiðslutíma og kostnað). Einnig var spurt um áhuga á
heilsueflandi námskeiðum, kostnað þeirra og efnistök. Tvær
spurningar, um tegund þjónustu og um áhuga á heilsueflandi
námskeiðum, voru á fimm bila Likertkvarða 15 (frá mjög
lítilvæg til mjög mikilvæg; frá mjög lítinn til mjög mikinn).
Framkvæmd
Um rafræna könnun var að ræða. Hún var lögð fyrir í samvinnu
við nemendaskrá Háskóla Íslands sem sá um að senda bréf
til þátttakenda með upplýsingum um rannsóknina og slóð á
hana. Hún var útbúin fyrir bæði íslensku og enskumælandi
nemendur. Var hún lögð fyrir í apríl 2011 og henni var fylgt
eftir með tveimur ítrekunum. Leyfi Vísindasiðanefndar reyndist
ekki nauðsynlegt. Rannsóknin var tilkynnt til Persónuverndar
S5167/2011. Hún var útskýrð fyrir þátttakendum og höfðu þeir
frjálsar hendur með að samþykkja eða hafna þátttöku.
Tafla 1. Bakgrunnsupplýsingar eftir nemahópum.
Íslenskir nemendur Erlendir nemendur
n % n %
Kyn
Kona 1116 78 43 72
Karl 311 22 17 28
Alls 1427 100 60 100
Fjöldi barna
Ekkert 859 62 41 71
Eitt barn 241 18 5 9
Tvö börn 193 14 9 15
Þrjú eða fleiri börn 89 6 3 5
Alls 1382 100 58 100
Lögheimili
Innan Reykjavíkursvæðisins 1120 82 33 57
(Rvík, Álftanes, Garðabær, Hafnarfjörður
Kópavogur, Mosfellsbær og Seltjarnarnes)
Utan Reykjavíkursvæðisins 240 17 6 10
Erlendis 15 1 19 33
Alls 1375 100 58 100
Heimilislæknir á Reykjavíkursvæðinu
Er með heimilislækni 853 63 17 32
Er ekki með heimilislækni 498 37 36 68
Alls 1351 100 53 100
Tegund náms
Grunnnám (BA, BS eða BEd) 840 61 21 39
Diplómanám 24 2 2 4
Meistaranám (MA, MS, MEd) 372 27 15 28
Kandídatsnám 72 5 0 0
Doktorsnám 67 5 16 29
Alls 1375 100 54 100