Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Blaðsíða 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 2010 5
Hugsunin var að sá sem tekur óþarfa áhættu og tryggir ekki eigið öryggi nær
ekki sama árangri við að hjálpa öðrum. Á sama hátt erum við í flugvélum hvött til
þess að setja fyrst súrefnisgrímuna á okkur sjálf áður en við aðstoðum barnið við
hliðina á okkur.
Heilsulaus eða útkeyrður hjúkrunarfræðingur gerir skjólstæðingum sínum lítið
gagn. En til eru fleiri ástæður fyrir því að hugsa um heilsuna. Við hjúkrunarfræðingar
viljum gefa gott fordæmi. Við viljum líka geta ráðið við vinnuna og notið þess að
vera í fríi. Því viljum við forðast veikindi eins og kostur er.
Nú er almennt viðurkennt að heilsa okkar er ekki mál hvers og eins. Það skiptir
miklu máli fyrir samfélagið í heild að við öll, hjúkrunarfræðingar sem aðrir
borgarar, séum frísk. Þá getum við tekið þátt í verðmætasköpun og eins verða
útgjöld samfélagsins vegna veikinda lægri. Ekki þarf að tíunda hér áætlaðan
framtíðarkostnað samfélagsins vegna lífsstílssjúkdóma og annarra kvilla.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur ákveðið að leggja sitt af mörkum og
hrinti í haust af stað heilsueflingarátaki sem er fyrst og fremst hugsað fyrir
hjúkrunarfræðinga en einnig fyrir almenning. Í þessu tölublaði eru þrjár greinar
sem tengjast átakinu. Fjallað er um heilsunámskeiðin, sem félagið býður upp
á, og um könnun á heilsu þeirra sem mættu á heilsuþingið 24. september sl.
Þá er ítarleg grein um tækifæri hjúkrunarfræðinga til heilsueflingar en greinin var
upphaflega erindi á heilsuþinginu.
Í viðtali kemur svo fram að hreyfing á meðgöngu og eftir barnsburð getur skipt
verulegu máli. Einnig er í tölublaðinu grein um starfsendurhæfingu en það er
mikilvægt fyrir heilsuna að menn geti stundað vinnu.
Leyfilegt er samt að slaka á og borða góðan mat þegar hátíðir eru. Ritstjórnin
óskar öllum lesendum gleðilegra jóla og ánægjulegra áramóta. Sjáumst í
heilsubaráttunni á nýju ári.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Christer Magnusson
Ritstjórnarfulltrúi
Sunna K. Símonardóttir
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu og fræðigreina er
að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Auðna Ágústsdóttir
Brynja Ingadóttir
Dóróthea Bergs
Herdís Sveinsdóttir
Ingibjörg Jóna Friðbertsdóttir
Sigríður Skúladóttir
Ráðgjafi vegna handrits í ritrýni:
Árún K. Sigurðardóttir
Fréttaefni:
Aðalbjörg Finnbogadóttir, Christer Magnusson,
Jón Aðalbjörn Jónsson, Sigríður Halldórsdóttir
og Sigrún Ólafsdóttir
Ljósmyndir:
Christer Magnusson, Lárus Karl Ingason,
Sigurður Bogi Sævarsson,
Soffía Sigurðardóttir o.fl.
Próförk og yfirlestur
Ragnar Hauksson og Ágústa Þorbergsdóttir
Auglýsingar:
Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855
Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður, FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4000 eintök
Pökkun og dreifing: Pósthúsið
HEILSUEFLING
Þegar ég var vettvangs hjúkrunar fræðingur
í sænska hernum var kjörorð okkar:
„Dauður hjúkrunarfræðingur er slæmur
hjúkrunarfræðingur.“
Christer Magnusson.
Ritstjóraspjall