Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Blaðsíða 57
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 2010 53
Árangursstig (performing). Með mikilli
þrautseigju og þrjósku, auknu trausti
innan hópsins og samvinnu kemst
hópurinn á árangursstigið. Samheldni
verður meiri, sameiginlegum markmiðum
er náð og samvinnan einkennist af
sveigjanleika. Teymið tekur þátt í að
finna lausnir á vandamálum, framkvæma
breytingar og umgangast deilur og
ágreiningsmál á uppbyggilegan hátt.
Árangur verður sýnilegur. Teymið mitt
er á árangursstiginu sem er góð staða.
Sveigjanleiki og gagnkvæmur stuðningur
á sér stað innan teymisins og hópmeðlimir
láta sér annt hver um annan og veita hver
öðrum stuðning og aðstoð. Tryggð við
teymið, einstaklingana innan þess og
skjólstæðingana er mikil. Ég er stolt af
teyminu mínu.
En til hvers að leggja þetta allt saman á
sig? Jú, kostir góðs teymis eru miklir. Að
mínu mati gefur þverfagleg teymisvinna
fagaðilum tækifæri til sérhæfingar og
sjónarhorn margra fagstétta veitir meiri
heildarsýn á flókin og erfið vandamál.
Mikið rúm er fyrir sveigjanleika og
nýbreytni og þjónusta við skjólstæðinginn
verður fyrir vikið markvissari, heildrænni
og betri.
Ég vil hvetja hjúkrunarfræðinga, sem
sjá hag í því að stofna þverfagleg teymi
utan um viðfangsefni sín, til dáða hvar
sem þeir vinna. Þó svo að ferlið sé erfitt
og á köflum ekki skemmtilegt þá er það
mjög lærdómsríkt og vinnan skilar sér
að lokum í hæfu teymi til handa okkur
sem innan þess vinnum og ekki síður
skjólstæðingum okkar.
Ég skora á Birgi Hilmarsson, hjúkrunar
fræðing í samfélagsteymi geðsviðs LSH,
að skrifa næsta þankastrik.
Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. Í þankastriki gefst
hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um ýmislegt sem varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið. Pistlarnir geta
fjallað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga eða starfsfólk, eitthvað sem hefur orðið höfundum til
hugljómunar eða hvaðeina annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess.