Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Side 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Side 39
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 2010 35 Mynd 2. Þjónusta Spors í mæðravernd og ungbarnavernd. Spor leggur sérstaka áherslu á alhliða fjölskylduvernd, að hugað sé að andlegum, tilfinningalegum og félagslegum þáttum fjölskyldunnar ekki síður en líkamlegri líðan móður og ófædds barns. Markmiðið er að fjölskyldan fari ekki á mis við að fá þjónustu sem getur bætt aðstæður hennar og bætt líðan og gert foreldrana færari að takast á við uppeldishlutverkið og mynda heilbrigð tengsl við barnið sitt. Nýjungar Spors í mæðravernd og ungbarnavernd eru þrenns konar: • Endurskoðun og frekari útfærsla á upplýsingaöflun um fjölskylduna, sögu hennar, hagi og aðstæður. • Uppsetning á tilvísunarkerfi heilsugæslu og félagsþjónustu til að auðvelda aðgang og auka not af þjónustu. • Félagsþjónustan og heilsugæslan hvor um sig mun tilnefna svokallaða innherja. Þeirra verkefni er að vera tengiliðir inn í stofnanirnar og mynda innherjaráð. Hlutverk þess er að auðvelda og einfalda samskipti á milli stofnananna. Innherjarnir eru tengiliðir inn í sína stofnun og hlutverk þeirra er að afla upplýsinga fyrir aðra starfsmenn, greiða fyrir málum auk þess að veita faglega ráðgjöf. Lokaorð Þetta vorum við að hugsa 2000­2002 og höfum við sem betur fer komist aðeins áfram en ekki nóg. Nú er heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins að innleiða nýjar vinnuleiðbeiningar um tengslamyndun og geðvernd í ung­ og smábarnavernd á öllum sínum stöðvum. Vonandi skapast við það ný sóknarfæri fyrir aukið samstarf heilsugæslu og félagsþjónustu á þessu sviði. Hugum vel að framtíð barna okkar og barnabarna. Sigríður Aðalheiður Pálmadóttir er hjúkrunarforstjóri á heilsugæslustöðvunum Hamraborg og Hvammi í Kópavogi. Fr ét ta pu nk tu r Nýtt nám í Háskólanum á Akureyri Við framhaldsnámsdeild heilbrigðis vísinda- sviðs Háskólans á Akureyri er frá ára mótum boðið upp á nám til diplóma- eða meistara- prófs með áherslu á fólk með langvinn veikindi. Veitt er greinargóð innsýn í líf með langvinn veikindi, sem tengjast hinum ýmsu sjúkdómum, og hvernig hinn langveiki lærir að kljást við og lifa með veikindum sínum. Fjallað er á gagnrýninn hátt um ýmis hugtök er tengjast hugmyndafræði þess að heilbrigðisstarfsfólk aðstoði hinn langveika til sjálfshjálpar. Áhersla er lögð á heildræna sýn þar sem sjónum er beint að sjálfseflingu og sjálfsbjörg, hvernig bæta megi líf og aðstæður fólks með langvinn veikindi og hugað er að samspili einstaklings, fjölskyldu og umhverfis. Námið hentar þeim vel sem hafa áhuga á málefnum þeirra sem glíma við langvinnan heilsubrest. Námið hefur fengið heitið „Diplóma- og meistaranám með áherslu á fólk með langvinn veikindi“. Í boði er einnig meistaranámskeiðið „Langvinnir sjúkdómar og lífsglíman“ (10 ECTS-einingar) sem stakt námskeið eða valnámskeið sem hluti af öðru námi. Á vorönn 2011 verður einnig kennt námskeiðið „Öldrun og heilbrigði í íslensku samfélagi“ (10 ECTS-einingar). Námskeiðið hentar fagfólki á sviði heilbrigðis- og félagsvísinda sem vill öðlast víðtæka þekkingu á hugtakinu öldrun og málefnum aldraðra. Nánari upplýsingar um þessi námskeið eru á vef Háskólans á Akureyri. SPOR heilbrigð tengsl foreldris og barns Tilvísunarkerfi Mæðravernd og ungbarnavernd • Venjubundið eftirlit • Upplýsingaöflun Félagsþjónustan • Fjölskylduráðgjöf • Félagsleg þjónusta • Barnavernd Samstarf • Samstarfshópur • Foreldrafræðsla • Innherjaráð • Þjónusta fyrir unga foreldra

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.