Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Side 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 201018
Gudrun Simonsen
FLORENCE NIGHTINGALE MILLI
HEIMS OG HELJU
Í maí 1855 hafði Florence Nightingale verið í Skutari í hálft ár og tekið þar til hressilega
eins og þekkt er. Nú var kominn tími til að athuga aðstæður á Krímskaganum þar
sem víglínur Krímstríðsins voru. En Florence Nightingale átti eftir að veikjast í þessari
ferð og háðu þessi veikindi henni það sem eftir var ævinnar.
Svartahafi, 5. maí 1855.
Kæru foreldrar!
Vesalings gamla Flo er nú á siglingu
um Bosporussund og yfir Svartahafið
með fjórum hjúkrunarkonum, tveimur
matsveinum og einum piltunga í átt
að Krímskaganum til að skoða með
eigin augum hersjúkrahúsið þar.
Hún er um borð í „Robert Low“ í
samfloti með rúmlega fjögur hundruð
sjúklingum sínum sem nú eru á leið
aftur til herdeilda sinna reiðubúnir að
láta skjóta á sig á nýjan leik. Í dag er
nákvæmlega hálft ár frá því ég kom til
Skutari til að takast á við verkefnið sem
Guð ætlaði mér. Sorgir og vonbrigði,
sem hafa verið hlutskipti mitt þessa
mánuði, eru ólýsanleg. En ég hef haft
það af! Ég er lifandi!
Já, Florence var á lífi. En veturinn í
Skutari hafði tekið mjög á hana. Á
nokkrum mánuðum hafði hún unnið verk
sem jafnaðist á við heila starfsævi og
sultur og kuldi eytt kröftum hennar eins
og hinna sem þreyðu þennan vetur í
Skutari. En hún hafði ákveðið að strax og
aðstæður á spítalanum í Skutari leyfðu
ætlaði hún að fara til Krím til að athuga
hvað nauðsynlega þyrfti að gera fyrir
sjúkraskýlin þar, og með eigin augum
vildi hún sjá vígvellina. Fyrsta heimsóknin
að víglínunni féll henni aldrei úr minni.
Ég sá skotgrafirnar. Hér höfðu
hermennirnir hafst við sólarhringum
saman, já, vikum saman, legið endilangir
í forinni eða setið í keng tvo sólarhringa
samfleytt án þess að geta sig hrært
og ekki haft annað til matar en hrátt,
salt flesk. Þrátt fyrir þetta höfðu þeir
hvorki misst kjark né þolinmæði. Eða
herbúðirnar! Ekki var að undra að
hermennirnir skyldu hafa þjáðst jafnmikið
og raun bar vitni; undraverðara var að
yfirleitt skyldi nokkuð vera eftir af hernum.
Þegar „Robert Low“ varpaði akkerum í
Balaklava flaug fregnin um herbúðirnar.
Um borð í skipinu var hefðardama! Engin
önnur en Florence Nightingale! Engillinn
frá Skutari! Konan, sem öllu stjórnaði í
Skutari, var komin til Krím!
Hermennirnir þustu út úr tjöldum og
skálum. Allir sem vettlingi gátu valdið,
gangandi eða skríðandi, fóru af stað.
Móttökurnar voru stórbrotnar. Ekki síst
þegar Soyer, sem aldrei dró af sér í
hrifningarvímu, lyfti Flo af hestbaki og
setti hana hátt upp á fallbyssu svo
allir gætu séð hana. „Herrar mínir! Hér
sjáið þið hugrökkustu dóttur Englands,
hermannanna einlægasta vin!“ Við
Í ár er 100 ára ártíð
Florence Nightingale en
hún lést 13. ágúst 1910.