Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Page 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Page 29
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 2010 25 Hefur það mikilvægan tilgang og merkingu í okkar augum að velja hið heilsusamlega? Læsi á eigið heilbrigði og færni til að efla eigin heilsu helst í hendur við getuna til að sinna þörfum annarra og vinna með þeim að eflingu heilsu og lífsgæða (sjá til dæmis Kendall, 1998). Heilsulæsi snýr að læsi á texta og tölur, aðgengi að upplýsingum, sem henta aðstæðum hverju sinni, og jafnframt þekkingu og hæfileikum til að hagnýta upplýsingarnar við eigin aðstæður (Nutbeam, 2008). Því betra sem okkar eigið heilsulæsi er þeim mun líklegra er að okkur takist að efla heilsulæsi annarra og þar með heilsu þeirra og lífsgæði. Samvinna er lykilorð. Heilsa og aðstæður íslenskra hjúkrunarfræðinga Um nokkurt skeið hafa hjúkrunarfræðingar haft áhyggjur af vaxandi álagi og byrðum á starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar. Áhyggjurnar beinast að öryggi og velferð sjúklinga en jafnframt þeirra eigin að stæðum og öryggi (Sigrún Gunnarsdóttir, 2006; Bryndís Þorvalds­ dóttir, 2008). Ný rannsókn á Landspítala varpar ljósi á flókin og fjölbreytt viðfangs­ efni í daglegum störfum hjúkrunar ­ fræðinga. Til dæmis kemur í ljós að á morgunvakt fer hjúkrunarfræðingur að jafnaði 127 sinnum á milli staða í vinnu sinni á legudeild skurðsviðs. Þá er ótalið hversu oft skipt er um viðfangsefni og hversu oft hjúkrunarfræðingur verður fyrir óvæntum truflunum (Helga Bragadóttir, 2009). Ekki er um að villast að störf hjúkrunar­ fræðinga eru flókin. Þrátt fyrir umfangs­ miklar og mjög erfiðar breytingar undan­ farið fer lítið fyrir fregnum af skakka­ föllum, álagseinkennum eða fjar vistum. Til dæmis ber ekki mikið á tilkynn ingum um að atvikum og fjarvistum innan heilbrigðis þjónustunnar hafi fjölgað undan farin misseri. Rannsóknir á starfs­ ánægju hjúkrunarfræðinga sýna svipaðar niðurstöður og fyrri ár (Anna Gunnars­ dóttir, 2008, og Erla Björk Sverrisdóttir, 2009). Hér getur margt komið til, til dæmis tregða til að tilkynna, tregða til að upplýsa um vanlíðan og veikindi, harkan við að mæta til vinnu, þrautseigja, persónulegur styrkur eða hæfileikar til að aðlagast breytingum. Sömuleiðis geta hagstæðar aðstæður á vinnustað vegið á móti auknu álagi, svo sem samstaða og stuðningur frá samstarfsfólki og stjórnendum. Til að varpa ljósi á samspil ýmissa þátta er fróðlegt að skoða hvað hefur áhrif á líðan okkur í vinnu, hvernig íslenskum hjúkrunarfræðingum líður í starfi og hvað hefur helst jákvæð áhrif á starfstengd lífsgæði hjúkrunarfræðinga hér á landi. Aðstæður í starfi og áhrif á heilsu Kröfur og sjálfræði í eigin störfum, réttlæti og stuðningur hafa úrslitaáhrif á heilsu og lífsgæði (Nieuwenhuijsen o.fl., 2010). Rannsóknir hafa margsinnis leitt í ljós að með auknu álagi í störfum aukast líkur á streitueinkennum, bakverkjum og sjúkdómum í hjarta og æðum. Komið hefur í ljós að hætta á hjarta­ og æðasjúkdómum fylgir skorti á stuðningi frá stjórnendum (Nyberg o.fl., 2008) og óréttlátri endurgjöf fyrir unnin störf (Kuper o.fl., 2002). Af þessu má sjá að dýrmætt er að draga eins og kostur er úr neikvæðum áhrifum vinnu á heilsu og líðan. Að minnsta kosti er til mikils að vinna með því að haga vinnuaðstæðum þannig að efla megi vellíðan og starfsgetu. Óneitanlega er það styrkur okkar nú að þekkingu um hagfelldar aðstæður í vinnu hjúkrunarfræðinga hefur fleygt fram undanfarin ár og felur það í sér ákjósanleg tækifæri til að styrkja vinnuvernd hjúkrunarfræðinga. Víðtæk þekking á starfsumhverfi hjúkr­ unar fræðinga á stoðir í bandarískum og kana dískum rannsóknum. Grundvallarrit hjúkrunar samtaka í Ontario í Kanada um heilbrigt starfsumhverfi byggist á gagn­ reyndri þekkingu og er mikilvægt framlag til að efla og bæta velferð sjúklinga og starfsfólks (RNAO, 2008). Í ritinu er líkan sem sýnir mikilvæga þætti í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga sem hafa áhrif á starf hjúkrunarfræðinga á deild eða einingu, á stofnun og í samfélaginu. Í fyrsta lagi er um að ræða áhrif umhverfis og skipulags, í öðru lagi áhrif samskipta, samstarfs og menningar og í þriðja lagi eru áhrif fagmennsku sem heyrir til hjúkrunarfræðingsins sjálfs, samstarfsfólks, stofnunar og samfélags. Jákvæð staða áhrifaþáttanna þriggja ýtir undir að hjúkrunarfræðingurinn geti veitt góða þjónustu og eykur jafn­ framt líkur á vellíðan og góðri heilsu hjúkrunarfræðingsins. Ráðleggingar, sem settar eru fram í ritinu til hjúkrunarfræðinga og stjórnenda, grundvallast á gagnrýndri þekkingu og eru mikill fengur fyrir vinnu­ vernd hjúkrunarfræðinga og öryggi sjúklinga. Ritið er aðgengilegt á heimasíðu samtakanna. Hvað hefur áhrif á líðan hjúkrunarfræðinga hér á landi? Rannsóknir hér á landi sýna að þrátt fyrir álag í starfi meta hjúkrunarfræðingar störf sín ánægjuleg. Endurteknar rannsóknir sýna að starfsánægja hjúkrunarfræðinga hér á landi er meiri en kollega þeirra í Evrópu og Bandaríkjunum og jafnframt sýna hjúkrunarfræðingar hér minni einkenni um kulnun en almennt þekkist (Anna Gunnarsdóttir, 2008; Erla Björk Sverrisdóttir, 2009; Sigrún Gunnarsdóttir, 2006). Hafa ber í huga að í könnunum mörg undanfarin ár segjast Íslendingar almennt mjög ánægðir í starfi. Ekki er vitað hvernig Mynd 1. Þrjár meginstoðir heilsueflingar og lífsgæða. 1. Þekking og skilningur 2. Hæfni og trú á eigin getu 3. Tilgangur og gildismat Skjólstæðingar og fagfólk Skv. WHO, 1986; 2005; RNAO, 2008. Sigrún Gunnarsdóttir, 2006. Leiðsögn Hvatning Stuðningur

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.