Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Blaðsíða 40
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 201036
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
HÖRÐ VIÐBRÖGÐ VIÐ
NIÐURSKURÐARTILLÖGUM
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar var lagt fyrir Alþingi 1. október sl. Fljótlega kom í
ljós að tillögur um niðurskurð á heilbrigðisstofnunum utan höfuðborgarsvæðisins
voru illa undirbúnar og talsmenn ríkisstjórnarinnar fóru að draga í land. En þá var
þegar búið að valda tilfinningalegu uppnámi hjá fjölda sjúklinga og starfsmanna
heilbrigðisþjónustunnar.
Fljótlega eftir efnahagshrunið í október
2008 var ljóst að þörf væri á talsverðum
niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni.
Minna var þó gert en menn áttu von á.
Regluleg ráðherraskipti hafa þar líklega
haft sitt að segja. Í haust komu svo fram
tillögur sem fjármálaráðherra segir að séu
löngu tímabærar. Allir hafi vitað lengi að
Íslendingar hafi ekki efni á jafnmörgum
sjúkrahúsum og til eru nú. Menn hafi hins
vegar trassað það að móta stefnu og
endurskipuleggja heilbrigðisþjónustuna.
Kröftug viðbrögð við fjárlagafrumvarpinu
og þeim niðurskurði í heilbrigðiskerfinu,
sem þar er lagður til, hefur fengið nokkra
ráðherra og þingmenn til þess að hugsa
málið betur. Fjárlaganefnd boðaði
til dæmis 29. október að breytingar
yrðu gerðar á fjárlagafrumvarpinu. Anna
Sigrún Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur
og aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra,
tekur nú þátt í vinnuhópi sem á að
skila tillögum til ráðherra um breytingar
á fjárlagafrumvarpinu. Hún sagði
á hjúkrunarþingi 12. nóvember að
ráðherra hefði hitt alla forstöðumenn
heilbrigðisstofnana í september sl. Í
framhaldinu hefðu þeir fengið tækifæri
til að fara yfir fjárlagafrumvarpið og meta
áhrif þess.
Snúist til varnar
Margir fulltruar starfsmanna hafa hins
vegar sagt að samráðið hafi verið af
skornum skammti. Í ályktun hjúkrunarráðs
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga kemur
fram að tillögurnar séu illa ígrundaðar og að
sparnaðurinn leiði til nýrra útgjalda vegna
ferðalaga sjúklinga. Þetta sé gjörbylting
á heilbrigðiskerfinu en lítið sem ekkert
samráð hafi verið haft við stjórnendur og
fagfólk heilbrigðisstofnananna. Í sama
streng taka önnur hjúkrunarráð og eins
stjórnir svæðisdeilda Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Á Ísafirði var stofnað heimavarnarlið
til varnar heilbrigðisþjónustunni og
tóku félagar heimavarnarliðsins sig til
og skrifuðu skýrslu þar sem kemur
fram að raunverulegur sparnaður verði