Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Síða 44
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 201040
Gary Rolfe, g.rolfe@swansea.ac.uk
FRÆÐIMAÐUR Í FULLU FJÖRI
Þessi varasami staðgengill: stuttur inngangur að lestri og ritun fyrir hjúkrunarfræðinga
Hér byrjar ný greinaröð þar sem erlendum fræðimönnum í hjúkrun er boðið að skrifa pistla. Fyrstur í röðinni er Gary Rolfe en
hann er þekktur fyrir gagnrýnin skrif um hjúkrun og hjúkrunarrannsóknir. Gary Rolfe byrjar á því að vitna í Florence Nightingale
og fjallar svo um til hvers fólk skrifar um hjúkrun.
Gary Rolfe er prófessor í hjúkrun við heil
brigðis deild háskólans í Swansea á Bret
landi. Hann útskrifaðist sem geð hjúkrunar
fræðingur 1983 og hefur einnig numið
heimspeki og kennslufræði. Kennslu efni
hans er íhugun í starfi og klínísk þróun.
Eftir hann liggja átta bækur og á annað
hundrað fræðigreina og bókakafla. Helstu
umfjöllunarefnin eru heimspekilegar
vangaveltur um hjúkrunarstarfið, rann
sóknar aðferðarfræði, gagnreynd hjúkrun,
klínísk þróun og kennslufræði. Hann hefur
haldið erindi á ráðstefnum úti um allan
heim og á sæti í fjölda vísindaráða og
ritstjórnum vísindatímarita. Í Swansea er
hann formaður vísindaráðs og var fyrsti
framkvæmdastjóri rannsóknarstofnunar í
heilbrigðisfræði. Undanfarin ár hefur Gary
tekið þátt í stofnun tilraunahjúkrunardeilda
á heilbrigðisstofnunum í Wales. Slíkum
deildum er ætlað að koma í framkvæmd
og leggja mat á nýjar aðferðir og
rannsóknarniðurstöður. Nýlega hlaut
Gary verðlaun frá heilbrigðisstofnunum í
Wales fyrir þessa vinnu.
Í staðinn fyrir að lifa
Florence Nightingale segir í svarbréfi til
vinkonu sinnar, Mary Clarke:
Þú spyrð af hverju ég skrifa ekki. Mér
finnst að það fari betur á því að það
sem ekki er fyrsta flokks sé alls ekki til.
Að auki vil ég miklu frekar lifa en skrifa,
skriftir eru bara staðgengill fyrir lífið
sjálft. (Tilvísun í Cook, 1913.)
Bréf þetta var skrifað 1844, tíu árum fyrir
hina sögulegu ferð Florence Nightingale
til Skutari og fimmtán árum áður en hin
áhrifaríka bók hennar Notes on nursing
kom út (Nightingale, 1859). Þegar litið
er til baka virðist sérkennilegt að þessi
afkastamikli rithöfundur skyldi gera lítið
úr mikilvægi og gildi ritstarfa sinna með