Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2010, Page 48
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 86. árg. 201044
Ingibjörg Þórhallsdóttir, ingalo@virk.is
VINNAN SKAPAR MANNINN
Endurkoma til vinnu eftir veikindi eða slys
Að hafa vinnu er mikilvæg forsenda þess að halda
heilsu og vinnan getur verið mikilvæg endurhæfing
eftir langtímaveikindi eða slys. Fyrir marga er erfitt
að koma aftur í vinnu eftir langtímaveikindafjarvist
og bótakerfið stuðlar stundum að því að fólk hafnar
á örorkubótum. Nú er unnið hörðum höndum að því
að efla starfsendurhæfingu og auðvelda endurkomu
fólks til vinnu og nú þurfa allir að leggja hönd á plóg.
Fyrir flesta er vinnan mikilvæg vegna
þeirra tekna sem hún skapar og oft
ekki síður vegna félagslegra tengsla. Við
verjum um það bil þriðjungi lífs okkar á
fullorðinsárum í vinnunni, margir eignast
þar sína bestu vini og upplifa þar bæði
sæta sigra og beiska ósigra. Framkoma
annarra ræðst oft af atvinnustöðu fólks
og í vinnunni er oft stofnað til félagsstarfs
eða áhugamála sem ná langt út fyrir
vinnutímann.
Vinnan hefur einnig áhrif á heilsu og
er stór þáttur í sjálfsmynd og vellíðan
einstaklinga, hvað þeir gera, hverju þeir
fá áorkað og hvernig samskipti þeir eiga
við aðra. Ef einstaklingur getur ekki mætt
til vinnu í lengri tíma eða missir hana
vegna veikinda eða slyss hefur hann
ekki bara „misst“ heilsuna heldur líka
mikilvæg félagsleg tengsl. Því lengur sem
ástandið varir því meiri er hættan á því
að einstaklingurinn eigi ekki afturkvæmt
á vinnumarkað.
Starfsendurhæfing felst meðal annars í
að aðstoða fólk við að vera í, fara aftur
í eða viðhalda ráðningarsambandi eftir
veikindi eða slys og koma í veg fyrir eða
seinka því að fólk hverfi af vinnumarkaði
af heilsufarsástæðum.
Ingibjörg Þórhallsdóttir
er sérfræðingur hjá VIRK
starfsendurhæfingarsjóði.