Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 42
40 Þjóðmál VOR 2010
ríkisins yfir höfuð að standa í slíku . Eitt
lítið dæmi er sú furðulega ráðstöfun að
hafa rithöfunda líkt og áskrifendur að
launum . Ef ríkissjóður er á annað borð
að styrkja rithöfunda (sem er í besta falli
um deilanlegt) er þá ekki skynsamlegra að
styrkja ungan og upprennandi rithöfund
sem berst í bökkum, en greiða þeim sem
hefur fengist við skriftir í áraraðir og fengið
sitt tækifæri og er jafnvel metsöluhöfundur .
Með núverandi kerfi er skipulega reynt
að koma í veg fyrir að nýtt blóð, nýjar
hugmyndir og jafnvel nýir snillingar fái að
þrífast þar sem þeir sem eldri eru sitja fyrir á
sínum stalli í skjóli skattgreiðenda .
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
hefur einstakt tækifæri til að skera upp allt
þetta kerfi og þá er skynsamlegt að byrja á
Ríkisútvarpinu . Nú er andrúm til að gera
róttækar breytingar og byggja upp . Við
þurfum á því að halda . Það væri ekki ónýtt
fyrir sitjandi menntamálaráðherra að skrifa
nafn sitt í bækur sögunnar sem sá ráðherra
sem ruddi brautina fyrir blómaskeið
íslenskrar menningar og lista .
Í kaupbæti fær ráðherrann styrkari fjöl-
miðlun í takt við aukna áherslu á gegnsæi og
lýðræði . Með því að Ríkisútvarpið hverfur af
auglýsingamarkaði, mun staða einkarekinna
fjölmiðla styrkjast en varlega áætlað má ætla
að tekjur þeirra aukist um 360 milljónir
króna eða 30% af auglýsingatekjum Ríkis-
út varpsins . Um leið verður tryggt að fleiri
sjónarmið fái að njóta sín á öldum Rík is-
útvarpsins, þar sem einstaklingar um allt
land munu koma með beinum hætti að
dagskrárgerð . Og við munum öll njóta þess
með einum eða öðrum hætti .
Fjárglæfrastofninn íslenski var í útrým-inga rhættu þegar VG og Samfylkingin
tóku við stjórnartaumunum í febrúar
2009 . Síðan hafa velferðarflokkarnir okkar
grænu unnið kraftaverk – ekki bara með
allsherjarfriðun stofnsins heldur alls kyns
aðgerðum honum til aðhlynningar . Þar
hefur ríkisbönkunum okkar verið óspart
beitt í hjálpar- og uppbyggingarstarfinu
með góðum árangri . Stofn sem kominn
var að fótum fram hefur nú aftur á að skipa
sömu kraftmiklu einstaklingunum með
sömu brilljant viðskiptahugmyndirnar .
Pokasjóður verslunarinnar fékk hins vegar
það hlutverk að annast almenning . Var það
snjöll verkaskipting af hálfu ríkis stjórn-
arinnar . Ef mig misminnir ekki lét sjóð-
urinn af hendi rakna 50 milljónir króna til
mæðrastyrksnefnda og Hjálparstarfs kirkj-
unnar fyrir síðustu jól, eða þar síðustu, og
vakti hvarvetna lukku .
Ég hlýt sem félagi í VG að fagna sérstak-
lega félagslegum áherslum ríkisstjórnar inn ar
og almennt frábærum árangri . Geri ég það
loks að tillögu minni að stjórnin láti vinna
heildstætt umhverfismat á almenningi til
að skanna frekara greiðsluþol hans . Það
er nefnilega mikilvægt að láta ekki staðar
numið við uppbyggingarstarfið – fólkið í
landinu verður að gjöra svo vel að láta af
hendi rakna í samræmi við getu . Allir verða
að leggjast á eitt og veita fjárglæfra stofn-
inum áframhaldandi vaxtar mögu leika og
fljúgandi byr inn í nýtt hagvaxtarskeið .
Lesendabréf eftir Þjóðólf á heimasíðu
Ögmundar Jónassonar alþingismanns,
ogmundur .is, 24 . febrúar 2010 .
_____________________
Stofninn hjarnar við